Postulasagan 9:1–31
Jesús birtist Sál
Boð um að iðrast og fylgja Drottni
Sál var farísei – leiðtogi Gyðinga sem þekkti ritningarnar vel. Sál trúði þó ekki að Jesús væri frelsarinn. Hann lét oft setja fylgjendur Jesú í fangelsi. Dag nokkurn ferðaðist Sál til borgar sem heitir Damaskus til að handtaka nokkra fylgjendur Jesú og fara með þá til Jerúsalem til að refsa þeim.
Postulasagan 9:1–2; 22:4–5; 26:5
Þegar Sál var á ferð sinni, skein skyndilega ljós á hann. Það var bjartara en sólin. Sál féll til jarðar. Hann heyrði rödd segja: „Sál, Sál.“ Þá spurði röddin Sál hvers vegna hann berðist gegn Jesú og skaðaði lærisveina hans.
Postulasagan 9:3–4; 26:13–14
Sál spurði, hver væri að tala. Drottinn sagði: „Ég er Jesús.“ Sál var hræddur og undrandi. Hann spurði Jesús hvað hann ætti að gera. Jesús sagði við Sál: „Statt upp og gakk inn í borgina.“ Þar myndi hann læra hvað hann ætti að gera næst.
Postulasagan 9:5–6
Sál hlýddi því og stóð á fætur. En nú var hann orðinn blindur. Hann sá ekki neitt. Fólkið sem fylgdi honum leiddi hann inn í borgina Damaskus. Sál át hvorki né drakk í þrjá daga.
Postulasagan 9:8–9
Ananías var einn af lærisveinum Jesú sem bjó í Damaskus. Jesús vitjaði Ananíasar í sýn og sagði honum að fara og hjálpa Sál.
Postulasagan 9:10–12
En Ananías var ráðvilltur. Hann hafði heyrt um Sál. Hann vissi hversu mikið Sál hafði barist gegn lærisveinum Jesú.
Postulasagan 9:13–14
Jesús bað Ananías samt um að hjálpa Sál. Jesús sagðist hafa valið Sál til að færa mörgum fagnaðarerindi sitt sem ekki væru Gyðingar og vissu ekki af honum.
Postulasagan 9:15–16
Ananías hlýddi Jesú. Hann fann Sál og gaf honum blessun. Ananías kallaði hann „bróður Sál.“
Postulasagan 9:17
Ananías sagði að Jesús hefði sent hann til þess að Sál gæti læknast og fyllst heilögum anda. Jafnskjótt fékk Sál sjónina aftur.
Postulasagan 9:17–18
Sál skírðist. Þá kenndi hann öllum í borginni um Jesú Krist. Það kom fólkinu á óvart hvað Sál hafði breyst mikið. Hann var nefndur Páll, það sem eftir var ævi hans. Hann kenndi öllum mönnum, Gyðingum og mörgum öðrum, að trúa á Jesú. Páll varð postuli Jesú Krists.
Postulasagan 9:18–22, 29–31; 13:9