Sögur úr ritningunum
Ekkert getur aðskilið okkur frá elsku Krists – Loforð fyrir erfiða tíma


Rómverjabréfið 8:18–39

Ekkert fær aðskilið okkur frá elsku Krists

Loforð fyrir erfiða tíma

Páll skrifar Rómverjum bréf. Meðlimur kirkjunnar sætir óvináttu.

Róm var mjög stór borg með fullt af fólki. Sumir meðal fólksins voru fylgjendur Jesú Krists, en flestir ekki. Margir í Róm trúðu á hluti sem voru mjög ólíkir því sem Jesús kenndi. Stundum kom fólk í Róm illa fram við meðlimi kirkjunnar.

Kirkjumeðlimur biðst fyrir og hlýtur innblástur.

Páll postuli ritaði bréf til hinna heilögu í Róm. Hann vildi að þeir vissu að jafnvel þótt lífið væri stundum erfitt, þá hefði Guð miklar blessanir að veita þeim. Ef við elskum Guð, þá getur hann gert það að verkum að það sem erfitt er í lífi okkar leiði til einhvers góðs.

Rómverjabréfið 8:18, 28

Kirkjumeðlimurinn að hjálpa einhverjum sem hafði verið óvingjarnlegur við hana.

Páll skrifaði að ekkert gæti aðskilið okkur frá elsku Jesú Krists. Sama hversu erfiðar áskoranir okkar eru, þá megnar hann að hjálpa okkur að sigrast á þeim.

Rómverjabréfið 8:31, 35–39