Sögur úr ritningunum
Ekkja og tveir smápeningar – Jesús kennir um fórn


Markús 12:41–44

Ekkja og tveir smápeningar

Jesús kennir um fórn

Jesús fylgist með fólki gefa peninga í musterinu.

Jesús fór í musterið í Jerúsalem. Meðan hann var þar, horfði hann á fólk gefa peninga fyrir starfið í musterinu. Margt ríkt fólk gaf mikla peninga.

Markús 12:41

Smápeningar fátækrar konu.

Þá gaf fátæk ekkja tvo smápeninga sem kallaðir voru aurar. Það var ekki mikið en þetta var allur peningurinn sem hún átti.

Markús 12:42, 44

Konan gefur tvo smápeninga.

Jesús tók eftir ekkjunni og bað lærisveina sína að koma og sjá hvað hún hefði gert.

Markús 12:43

Jesús kennir um fórn konunnar.

Jesús sagði ekkjuna hafa gefið meira en nokkur annar. Ríka fólkið hafði gefið mikið af peningum en það var aðeins lítill hluti af því sem það átti. Ekkjan gaf aðeins lítinn pening en hún gaf allt sem hún átti.

Markús 12:43‒44