Sögur úr ritningunum
Jesús fyrirgefur konu – „Hún elskaði mikið“


Lúkas 7:36–50

Jesús fyrirgefur konu

„Hún elskaði mikið“

Símon býður Jesú heim til sín.

Maður að nafni Símon bauð Jesú að koma heim til sín að borða með sér. Símon var í hópi leiðtoga sem nefndust farísear.

Lúkas 7:36

Kona kemur að sjá Jesú.

Meðan þeir voru að matast, kom kona inn í hús Símonar. Hún hafði heyrt að Jesús væri þarna. Hún vildi sýna honum þakklæti sitt og kærleika.

Lúkas 7:37

Konan laugar fætur Jesú.

Konan grét þegar hún sá Jesú. Tár hennar féllu á fætur hans. Hún þerraði fætur hans með hári sínu. Hún kyssti fætur hans og bar ilmsmyrsl á þá.

Lúkas 7:38

Símon er í uppnámi yfir því að konan sé að tala við Jesú.

Símon vissi að þessi kona hafði drýgt margar syndir. Hann hélt að ef Jesús væri raunverulega maður Guðs, þá myndi hann vita að þessi kona væri syndari og hann myndi ekki leyfa henni að snerta sig.

Lúkas 7:39

Jesús útskýrir hvers vegna konan hafði þvegið fætur hans.

Jesús vissi hvað Símon var að hugsa. Hann sagði Símoni að konan hefði þvegið fætur hans af því að hún elskaði hann. Yfirleitt var gestum fært vatn til að þvo fætur sína. Símon hafði ekki gert neitt slíkt til að sýna Jesú elsku.

Lúkas 7:40–47

Jesús segir konunni að fara í friði.

Jesús sagði konunni að hún hefði hlotið fyrirgefningu synda sinna, vegna þess að hún elskaði hann og trúði á hann. Hann sagði henni að hún mætti fara í friði.

Lúkas 7:47‒50