1. Korintubréf 6:16–20
Páll líkir líkama okkar við musterið
Helgar gjafir frá Guði
Korinta var stór borg við sjóinn. Í borginni var fullt af fólki sem ekki tilbað Guð. Páll kenndi fólkinu í Korintu um Jesú. Margir trúðu og tóku skírn.
Postulasagan 18:8–11
Eftir að Páll fór, heyrði hann að meðlimir kirkjunnar ættu við vanda að stríða. Margir í Korintu fylgdu ekki boðorðum Guðs um hvernig við ættum að hirða um og nota líkama okkar.
1. Korintubréf 6:13–18
Páll skrifaði þeim bréf. Hann sagði líkama okkar vera eins og musteri Guðs. Við sýnum musterinu virðingu, því það er hús Guðs. Við ættum líka að hirða um líkama okkar af virðingu, því þeir eru gjöf frá Guði.
1. Korintubréf 6:19–20
Himneskur faðir vill að við veljum að gera góða hluti með líkama okkar. Við getum haft heilagan anda með okkur þegar við gerum það.
1. Korintubréf 6:19
Páll sagði að Jesús Kristur hefði greitt gjaldið fyrir okkur með þjáningum sínum. Við sýnum elsku okkar til Jesú með því að taka góðar ákvarðanir varðandi líkama okkar og halda boðorð hans. Við sýnum Guði að við erum þakklát fyrir hina dásamlegu gjöf líkama okkar með því að hirða um þá eins og musteri.
1. Korintubréf 6:20