Aðalráðstefna
Spámenn Guðs
Aðalráðstefna október 2025


11:8

Spámenn Guðs

Að hlusta og hlýða röddu spámannsins, er afgerandi til að halda í allt það góða fram að síðari komu frelsara okkar.

Kæru ungmenni, hversu falleg er þessi ráðstefna sem við höldum! Við höfum þegar heyrt ræður frá þremur postulum Jesú Krists. Hve dásamleg blessun! Og við eigum eftir að heyra frá einum í viðbót, öldungi Henry B. Eyring. Hin andlega veisla heldur áfram!

Þegar ég talaði í fyrra lærðum við að horfast í augu við þennan heim í gegnum reynslu Davíðs með Golíat. Munið þið eftir steinvölunum fimm? Í dag ætla ég að fjalla um sögu úr Gamla Testamentinu sem ég las á ykkar aldri og fékk mig til þess að vilja vera eins og söguhetjan í henni. Biblían segir ekki frá nafni hennar, svo við skulum kalla hana konuna frá Súnemborg, því það er heimabær hennar.

Kona býr til brauð fyrir spámanninn

Dag nokkurn átti spámaðurinn Elísa leið um Súnemborg og við lesum: „Þar bjó auðug kona sem bauð honum að þiggja mat hjá sér. Upp frá því mataðist hann hjá henni þegar hann fór þar um.“ Ég ímynda mér að spámaðurinn Elísa hafi verið svo ánægður með boðið um að borða heima hjá henni! Hann hafði farið nokkrum sinnum til hennar þegar hún dag einn segir við eiginmann sinn: „[Nú er ég] viss um að maðurinn sem jafnan kemur við hjá okkur er heilagur guðsmaður.“

Konan segir: „[ er ég] viss.“ Það virðist sem hún hafi boðið Elísa heim til sín án þess að vita að hann væri spámaðurinn; hún fékk vitnisburð sinn fyrir tilstilli heilags anda með því að hlusta vandlega á það sem Elísa sagði og kenndi. (Munið að það voru engar myndir á þessum tíma! Svo það var erfitt að þekkja spámanninn af andlitinu einu.)

Kona útbýr herbergi fyrir spámanninn

En sagan endar ekki þar. Dag einn sagði hún við eiginmanninn sinn: „Við skulum útbúa lítið herbergi … og koma þar fyrir rúmi, borði, stól og lampa handa honum. Þegar hann kemur til okkar getur hann dvalist þar.“

Þessi trúa kona var fús til að byggja herbergi í húsi sínu svo að spámaðurinn, sem færi um borgina, gæti haft gistingu!

Í dag getum við dregið mikilvægan lærdóm af þessari reynslu.

Drottinn vitnaði fyrir konunni frá Súnemborg að Elísa væri spámaður Guðs og hún brást við með því að opna hús sitt fyrir honum.

Við getum líka meðtekið persónulegan vitnisburð um spámann Guðs í dag og opnað hjörtu okkar og huga – húsið okkar – fyrir boðskapnum sem himneskur faðir hefur fyrir okkur á þessum síðari dögum.

Kæru ungmenni, ég býð ykkur að spyrja ykkur sjálf þessarar spurningar: „Hef ég persónulegan vitnisburð um lifandi spámenn Drottins?“

Byrjum nú á byrjuninni.

Hvað er spámaður? Spámaður er maður sem er kallaður af Guði til að tala máli hans. Það eru spámenn á jörðinni í dag eins og var á fornum tímum.

Spámenn eru sjáendur og opinberarar. Það þýðir að þeir geta séð það sem aðrir geta ekki séð og þeir geta spáð fyrir um framtíðaratburði. Þeir geta líka búið okkur undir hörmungar. Spámenn taka á móti boðum og opinberunum frá Drottni. Níunda trúaratriðið fjallar um áframhaldandi opinberun á þessum síðustu dögum. Þar segir: „Vér trúum öllu, sem Guð hefur opinberað, öllu, sem hann nú opinberar, og vér trúum að hann muni enn opinbera margt stórfenglegt og mikilvægt varðandi Guðs ríki.“

Öldungur Gary E. Stevenson sagði: „Drottinn heldur áfram að opinbera spámönnum sínum boðorð sín og vilja, því hann þráir að leiða okkur til hamingju í þessu lífi og til himneskrar dýrðar í næsta lífi.“

Spámenn boða einnig fagnaðarerindið og eru innblásnir kennarar og sendiboðar Guðs til allra á jörðinni.

Sérhver meðlimur Æðsta forsætisráðsins og Tólfpostulasveitarinnar er spámaður, sjáandi og opinberari. Þeir þjóna sem ráð undir handleiðslu Drottins og hafa vald til að lýsa yfir og túlka kenningar og setja stefnu fyrir kirkju hans. Þeir biðjast fyrir af kostgæfni og eiga samráð, því að ákvarðanir þessara sveita verða að vera einróma. Á þennan hátt fullvissar Drottinn okkur um að vilji hans muni verða gerður.

Spámenn vitna um Krist – tilvist hans, þjónustu hans og guðdómleika hans.

Við skulum lesa nokkra vitnisburði spámanna úr Mormónsbók.

Abinadí sagði:

„Guð mun sjálfur stíga niður meðal mannanna barna og endurleysa fólk sitt.

Og vegna þess að hann tekur sér bólfestu í holdinu, verður hann nefndur sonur Guðs.“

Lamanítinn Samúel bar einnig vitni um að Jesús Kristur væri „[sonur Guðs], föður himins og jarðar, skapara allra hluta frá upphafi“.

Og spámaðurinn Moróní sagði: „Ég hef séð Jesú, og … hann hefur talað við mig augliti til auglitis.“

Þegar Kristur heimsótti Nefítana, var eitt af því fyrsta sem hann gerði að kalla tólf postula. Og hann sagði við fólkið: „Blessaðir eruð þér, ef þér gefið gaum að orðum þessara tólf, sem ég hef valið.“

Leyfið mér nú að miðla nokkrum orðum til foreldra eða annarra fjölskyldumeðlima sem ala upp börn. Drottinn sjálfur kenndi Adam og Evu sannleika sáluhjálparáætlunarinnar. Og hann sagði við þau: „Þess vegna gef ég þér þau fyrirmæli, að fræða börn þín óspart um þetta.“

Hvað merkir að fræða óspart? Það er að læra sannleika fagnaðarerindisins, eiga persónulegan vitnisburð um hann og deila þeirri þekkingu með börnum okkar. Það er að efla bæði formlegar og óformlegar kennslustundir. Það er að lifa samkvæmt þeirri þekkingu og þeim vitnisburði.

Mormónsbók lýsir hinum 2.060 ungu stríðsmönnum sem „[mönnum] sannleika og árvekni, því þeim hafði verið kennt að halda boðorð Guðs og ganga grandvarir frammi fyrir honum“. Þessu ungu stríðsmenn hlýddu Helaman trúfastir, en hann var herforingi þeirra og einnig spámaður og þeir vissu að mæður þeirra höfðu fyllt hjörtu þeirra af sannleika og trú.

Foreldrar, í þessum heimi, þar sem margar eru raddirnar og stundum mikið myrkur, hefur Guð sjálfur boðið okkur að ala upp börn okkar í ljósi og sannleika. Hann treysti okkur fyrir þeirri ábyrgð að kenna börnunum okkar hinn bjargandi sannleika fagnaðarerindisins. Ef okkur mistekst að gera það, mun heimurinn ekki gera það.

Kæru ungu vinir, ég hef boð til ykkar: Á næstu dögum býð ég ykkur að krjúpa, opna hjörtu ykkar og biðja í trú til himnesks föður og biðja hann um að staðfesta fyrir ykkur að hans útvaldi spámaður og postular séu rödd hans á jörðinni í dag.

Konan frá Súnemborg kenndi okkur að við getum haft þann vitnisburð í gegnum heilagan anda. Ég lofa ykkur að um leið og við vitum að þeir eru hinir Guðs smurðu verður líf okkar auðveldara þrátt fyrir áframhaldandi áskoranir okkar er við hlýðum röddu þeirra af trausti, trú og von. Að hlusta og hlýða röddu spámannsins, er afgerandi til að halda í allt það góða fram að síðari komu frelsara okkar.

Illska heimsins vex, en kirkja Jesú Krists og ríki hans eru sterkari en nokkurn tíma áður. Síon íklæðist skrautklæðum sínum og konungsdæmi Krists mun ekki falla. Drottinn ætlast til þess að við séum sterk í vitnisburði okkar, full trúar og að við iðrumst daglega. Frelsari okkar, Jesús Kristur, treystir á okkur að halda áfram verki hans.

Spámaðurinn Joseph Smith sagði: „Bræður, eigum við ekki að halda áfram í þágu svo mikils málstaðar?“ En þar sem þessi boðskapur er aðallega fyrir ykkur, ungmennin, myndi ég vilja nota orðið ungmenni í staðinn fyrir bræður. Tilbúin?

„[Ungmenni], eigum við ekki að halda áfram í þágu svo mikils málstaðar? Halda áfram en ekki aftur á bak. Hugrekki, [ungmenni], og áfram, áfram til sigurs! Hjörtu ykkar fagni og gleðjist ákaft.

Ég er þakklát fyrir leiðsögn og helgað framlag lifandi spámanna. Ég ber minn brennandi vitnisburð um að þeir eru kallaðir af Guði til að framkvæma, stofna og leiða ríki hans á jörðu í dag. Og það mun alltaf vera svo. Það mun alltaf vera Drottinn sem velur þjóna sína. Í nafni Jesú Krists, amen.

Heimildir

  1. Spænska þýðingin á þessu orðasambandi þýðir „ákaft boðið“.

  2. 2. Konungabók 4:8.

  3. 2. Konungabók 4:9; skáletrað hér.

  4. 2. Konungabók 4:10.

  5. Sjá Amos 3:7.

  6. „Undir leiðsögn Drottins er [forseti kirkjunnar] í forsæti yfir kirkjunni og er eini einstaklingurinn á jörðu með heimild til að beita öllum prestdæmislyklunum. … Hann hefur vald til að meðtaka opinberun og lýsa yfir vilja Guðs fyrir alla kirkjuna“ (Almenn handbók: Þjónusta í Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu, 5.1.1.1, Gospel Library).

  7. Sjá Kenning og sáttmálar 1:38.

  8. Gary E. Stevenson, „Fagnaðarerindi Jesú Krists: Gleðihljómur,“ Til styrktar ungmennum, júlí 2025, 5.

  9. Sjá Matteus 28:19–20; Kenning og sáttmálar 21:1, 4–5; 107:35.

  10. „Hver postuli hefur alla lykla ríkisins og notar þá lykla undir stjórn forseta kirkjunnar“ (Almenn handbók, 5.1.1.1).

  11. Sjá Almenn handbók, 5.1.1.1.

  12. Sjá Kenning og sáttmálar 107:27–31.

  13. „Postularnir tólf eru ‚sérstök vitni‘ um nafn Jesú Krists. … Þeir bera öllum heiminum vitni um guðleika hans og raunveruleika upprisu hans“ (Almenn handbók, 5.1.1.1).

  14. Mósía 15:1–2.

  15. Helaman 14:12.

  16. Eter 12:39.

  17. Spámaðurinn Joseph Smith talaði um Mormónsbók og kenndi: „Þessi bók segir okkur einnig að frelsari okkar birtist á þessari heimsálfu eftir upprisu sína, að hann hafi gróðursett fagnaðarerindið hér í allri sinni fyllingu, ríkidæmi, krafti og blessunum; að þeir hefðu postula, spámenn, hirða, kennara og trúboða; sömu reglu, sama prestdæmið, sömu helgiathafnir, gjafir, kraft og blessanir og þau nutu á Austurálfunni“ (History, 1838–1856, bindi C-1 [2. nóvember 1838–31. júlí 1842], 1282, josephsmithpapers.org).

  18. 3. Nefí 12:1; skáletrað hér.

  19. HDP Móse 6:58; skáletrað hér.

  20. Sjá Kenning og sáttmálar 68:25–28.

  21. „Við ættum að grípa hvert tækifæri til að miðla börnum kenningum Jesú Krists. Þessar kennslustundir eru dýrmætar og mun færri í samanburði við linnulaust starf andstæðra afla. Fyrir hverja klukkustund sem varið er í að innræta kenningu í lífi barns, eru óteljandi klukkustundir mótlætis fylltar skilaboðum og myndum sem ögra eða hunsa þennan frelsandi sannleika.

    Sum ykkar gætu velt fyrir sér hvort það gæti verið betra að tengjast börnum ykkar með skemmtun, eða þið gætuð hugleitt hvort barninu muni finnast kenningar ykkar yfirþyrmandi. Þess í stað ættum við að íhuga: ‚Hvaða kenningarorðum get ég miðlað, með svo takmörkuðum tíma og fáum tækifærum, sem munu styrkja þau gegn óhjákvæmilegum áskorunum gegn trú þeirra?‘ Orðin sem þið miðlið í dag gætu verið þau sem festast í þeim og dagurinn í dag mun senn líða hjá“ (Henry B. Eyring, „Einföld er kenning Jesú Krists,“ aðalráðstefna, október 2024).

  22. Sérhvert ungmenni er mikilvægt! (sjá Alma 57:6, 20).

  23. Alma 53:21; skáletrað hér.

  24. Sjá Alma 56:44–48; 57:21.

  25. Sjá Kenning og sáttmálar 93:40.

  26. Við höfum líka fordæmi foreldra Enosar, sem fræddu hann einnig „um umhyggju og áminningar Drottins“ (Enos 1:1) og kenndu honum um „eilíft líf og gleði heilagra“ (Enos 1:3). Enos þekkti skapgerð Guðs (sjá Enos 1:6, 15, 17).

  27. Sjá Kenning og sáttmálar 21:1–2, 4–6. „Þótt heimurinn staðhæfi að völd, eignir, vinsældir og nautnir holdsins skapi hamingju, þá er það ekki svo! Það er ekki mögulegt! Það sem þetta getur af sér, er ekkert annað en innantóm eftirlíking þeirrar ‚[blessunar] og hamingju‘ sem þeir njóta sem ‚halda boðorð Guðs‘ [Mósía 2:41].

    Sannleikurinn er sá, að það er miklu meira lýjandi að leita hamingjunnar þar sem þið getið aldrei fundið hana! Þegar þið aftur á móti gangið sjálf undir ok með Jesú Kristi og vinnið hið andlega verk sem þarf til að sigrast á heiminum, hefur hann, og hann einn, máttinn til að lyfta ykkur ofar aðdráttarafli þessa heims.

    Hvernig blessar það svo líf okkar að sigrast á heiminum? Svarið er skýrt: Að ganga í sáttmálssamband við Guð, bindur okkur við hann, á þann hátt sem gerir allt við lífið auðveldara. Misskiljið mig þó ekki: Ég sagði ekki að lífið yrði auðvelt eftir sáttmálsgjörð. Reyndar ættuð þið að búast við andstreymi, því andstæðingurinn vill ekki að þið uppgötvið mátt Jesú Krists. Að gangast sjálf undir ok með frelsaranum, þýðir að þið hafið aðgang að styrk hans og endurleysandi krafti“ (Russell M. Nelson, „Sigrast á heiminum og finna hvíld,“ aðalráðstefna, október 2022).

  28. Sjá Eter 8:26; Moróní 7:19–25.

  29. Sjá Jesaja 52:1.

  30. Sjá Sálmarnir 125:1; Jesaja 28:16.

  31. Kenning og sáttmálar 128:22; skáletrað hér.

  32. Sjá Kenning og sáttmálar 1:30.

  33. Sjá Trúaratriðin 1:5.