Aðalráðstefna
Drottinn horfir á hjartað
Aðalráðstefna október 2025


10:41

Drottinn horfir á hjartað

Allt sem Guð þarf til að ná fram tilgangi sínum og hjálpa okkur að verða þau sem hann vill að við verðum, er að hvert og eitt okkar snúi hjörtum okkar að fullu til hans.

Þegar spámaðurinn Samúel fékk þau fyrirmæli að velja nýjan konung Ísraels úr hópi sona Ísaí, hrópaði hann af ákafa þegar hann horfði á Elíab, elsta son Ísaí: „Hér stendur Drottins smurði áreiðanlega frammi fyrir honum.“ Elíab var þó ekki útvalinn þjónn Drottins. En Drottinn sagði við Samúel: „Horfðu ekki á hæð hans og glæsileik því að ég hef hafnað honum. Guð lítur ekki á það sem maðurinn lítur á. Maðurinn sér hið ytra en Drottinn horfir á hjartað.“

Þótt Davíð hafi kannski ekki verið líkamlega sterkastur eða færastur bræðra sinna, þá var hjarta hans sterkt í augum Guðs. Hann elskaði Guð af öllu hjarta og hafði djúpa löngun til að hlýða honum. Hann hafði óhagganlega trú á kærleika Guðs, mætti hans og fyrirheitnum blessunum, eins og hann sýndi síðar þegar hann barðist óttalaust við og sigraði Golíat með hjálp Drottins.

Þessi saga kennir okkur að allt sem Guð þarf til að ná fram tilgangi sínum og hjálpa okkur að verða þau sem hann vill að við verðum, er að hvert og eitt okkar snúi hjörtum okkar að fullu til hans. Við lögvitring sagði hann: „Elska skalt þú Drottinn, Guð þinn, af öllu hjarta þínu.“ Við spámanninn Joseph Smith sagði hann: „Sjá, Drottinn krefst hjartans og viljugs huga.“ Hinn upprisni frelsari bauð Nefítunum: „Þér skuluð bjóða mér sem fórn sundurkramið hjarta og sáriðrandi anda.“

Hvers vegna er það svo? Frelsarinn kenndi, að ef hjörtu okkar snúast að fullu til hans, vegna friðþægingarfórnar hans, getum við verið blessuð með þeim styrk og andlegum gjöfum sem við þurfum til að sigrast á jarðneskum áskorunum okkar, standast freistingar, hljóta leiðsögn og skilning og finna gleði og frið í lífi okkar. „Og af hinu smáa sprettur hið stóra.“ Hann sagðist geta „látið hið veika verða styrk þeirra“ og blessað okkur með öllu sem við þurfum til að ná árangri í þessu jarðneska lífi og öðlast eilíft líf. „Sælir eru hjartahreinir,“ sagði hann, „því að þeir munu Guð sjá.“

Ég tel að þetta sé ástæðan, hið minnsta að hluta, fyrir því að Jesús Kristur leiðrétti fræðimennina og faríseana svo oft í jarðneskri þjónustu sinni. Þrátt fyrir að halda lögmál hans dyggilega, gerðu þeir það af röngum ástæðum. Hann ávítaði þá og sagði: „Þessir menn heiðra mig með vörunum en hjarta þeirra er langt frá mér.“

Þetta er alvarleg áminning til allra lærisveina hans um að þetta snúist ekki bara um það sem við gerum – orð okkar og gjörðir – heldur einnig hvers vegna við gerum það sem Jesús Kristur hefur beðið okkur um að gera – langanir okkar og hvatir. Hann sagði: „Því að ég, Drottinn, mun dæma alla menn samkvæmt verkum þeirra, samkvæmt því, sem hjörtu þeirra þrá.“ Okkar himneski faðir þráir meira en vélræna hlýðni og þjónustu frá börnum sínum. Hann vill að við gerum þessa hluti af raunverulegum ásetningi, vegna þess að við elskum hann af öllu hjarta. Hann vill að við þráum að verða eins og hann.

Ef andleg heilsa hjartna okkar er aðaláhyggjuefni frelsarans – það sem hann leitar að í sönnum lærisveini – hvernig getum við þá rannsakað hjarta okkar og vitað hvort það sé rétt í augum Guðs?

Nýlega, þegar ég og konan mín komum heim úr trúboði okkar í Portúgal, fórum við í röð heilsufarsrannsókna til að meta líkamlegt ástand okkar. Sumar þessara rannsókna beindust að heilsu hjartans — svo sem blóðprufur, hjartaómun og álagspróf. Ég trúi að frelsarinn hafi einnig veitt okkur andlegar prófraunir sem við getum notað til að meta andlegt ástand hjartna okkar. Leyfið mér að deila nokkrum þeirra með ykkur.

Að meta hjörtu ykkar með andlegum prófraunum

Í fyrsta lagi, það sem við einblínum á, forgangsröðun og hvati

„Því hvar sem fjársjóður þinn er þar mun og hjarta þitt vera,“ kenndi Jesús. Fjársjóður er eitthvað dýrmætt í okkar huga, eitthvað sem verðugt er erfiðis og athygli okkar. Það sem við veljum að verja tíma okkar í og beina athygli okkar að, sem og það sem hvetur okkur til að gera það sem við gerum, segir margt um hjarta okkar. Frelsarinn varaði við því, að þótt margir séu kallaðir af honum, þá séu fáir útvaldir „vegna þess að hjörtu þeirra beinast svo mjög að því, sem þessa heims er, og [þau] leita sér svo mannlegrar upphefðar“. Er frelsarinn í forgangi í mínu lífi? Er auga mitt einbeitt á dýrð hans í öllu sem ég geri?

Í öðru lagi, fúsleiki okkar til að hlýða boðorðum Guðs

Hvarvetna í ritningunum hafa Drottinn og spámenn hans tengt dramb og óhlýðni við að hafa forhert hjarta. Nefí hvatti bræður sína og sagði: „Hvers vegna haldið þið ekki boðorð Drottins? Hvernig má það vera, að þið farist vegna hörkunnar í hjörtum ykkar?“ Drottinn varaði hina heilögu í Missouri við: „En sá sem ekkert gjörir, fyrr en honum er boðið það, og tekur á móti boði með efa í hjarta og hlýðir því með hyskni, sá hinn sami er fordæmdur.“ Þótt frelsarinn vænti ekki fullkomnunar í því að halda boðorð sín, þá biður hann okkur að þrá og kappkosta að halda þau af öllu hjarta.

Í þriðja lagi, kostgæfni okkar við að læra ritningarnar og leita opinberana

Drottinn áminnti Oliver Cowdery: „Varðveit þess vegna orð þessi í hjarta þínu.“ Við erum hvött til að rannsaka ritningarnar af kostgæfni og, fyrir kraft heilags anda, leitast við að öðlast skilning og vitnisburð á sannleiksgildi fagnaðarerindisins í hjarta okkar.

Spámaðurinn Abinadí ávítaði presta hins illa Nóa konungs fyrir að gera það ekki og sagði: „Þið hafið ekki lagt ykkur fram um að skilja með hjartanu, og því hafið þið ekki verið vitrir.“ Legg ég mig einlæglega fram við að læra ritningarnar daglega og reyni af öllu hjarta að skilja þær með bæn?

Í fjórða lagi, hugsanir okkar og orð

Frelsarinn kenndi: „Frá hjartanu koma illar hugsanir“ og „af gnægð hjartans mælir munnurinn.“ Gæði hugsana okkar og orða er góð vísbending um hreinleika hjartans. Legg ég rækt við of margar neikvæðar hugsanir um verk og ásetning annarra, eða jafnvel minn eigin? Dæmi ég aðra og fordæmi af of mikilli hvatvísi? Leita ég að afsökunum eða réttlætingu fyrir mistökum mínum? Og hvað með orð mín? Lyfta þau upp og hvetja þá sem eru umhverfis mig? Eða skapa þau oft átök og gremju?

Eftir að læknisskoðununum mínum var lokið, sagði læknirinn mér að hjartað mitt væri almennt heilbrigt – en það væru nokkur áhyggjuefni sem þyrfti að taka á núna, áður en þau yrðu alvarleg. Hann mælti síðan með nokkrum lífsstílsbreytingum. Á sama hátt, þegar þið framkvæmið þessa andlegu skoðun á hjarta ykkar og takið eftir neikvæðum einkennum sem taka að læðast inn, örvæntið þá ekki! Frelsarinn hefur séð okkur fyrir frábærum andlegum lyfjum og meðferð til að hjálpa ykkur. Hann hefur lofað að gefa ykkur nýtt hjarta! Hér eru nokkrar aðgerðir sem geta aukið andlegan styrk hjartans.

Að bæta andlega heilsu hjartans

Í fyrsta lagi, ættuð þið að styrkja samband ykkar við Krist

Þegar við helgum okkur daglega tíma til að komast nær Kristi, breytist hjarta okkar. Daglegt nám í ritningunum, ásamt einlægri bæn og reglulegri föstu, mun auka kærleika ykkar til frelsarans og styrkja trú ykkar og þrá til að iðrast og auðmjúklega gefa hjarta ykkar Guði. Íhugið eftirfarandi dæmi frá Nefí: „Ég ákallaði Drottin. Og sjá. Hann vitjaði mín og mildaði hjarta mitt svo, að ég lagði trúnað á öll orð föður míns.“

Þegar við höldum áfram að næra fræ trúar með réttlátum þrám og verkum, munum við upplifa sömu helgun hjartans og Nefítarnir: „Engu að síður fastaði það og baðst oft fyrir og varð sífellt styrkara í auðmýkt sinni og stöðugt ákveðnara í trúnni á Krist, þar til sálir þess fylltust gleði og huggun, já, sem hreinsaði og helgaði hjörtu þess, þeirri helgun, sem fæst með því að gefa hjörtu sín Guði.“

Í öðru lagi, samræmið vilja ykkar hans

Frelsarinn kenndi: „Ef þér elskið mig munuð þér halda boðorð mín.“ Hann býður okkur að sýna kærleika okkar með því að gera sáttmála við sig og halda þá. Þegar við leggjum okkur daglega fram um að halda boðorð hans, iðrumst einlæglega synda okkar og höldum áfram að taka á okkur nafn hans og samræma vilja okkar við hans, getum við hlotið blessun með stöðugu samfélagi heilags anda.

Nefí vitnaði: „Þess vegna veit ég, ástkæru bræður mínir, að ef þér fylgið syninum af hjartans einlægni og án þess að hræsna fyrir Guði eða hafa blekkingar í frammi, heldur með sönnum ásetningi, með því að iðrast synda yðar og vitna fyrir föðurnum, að þér eruð fúsir til að taka á yður nafn Krists með skírn, … þá munuð þér meðtaka heilagan anda.“ Heilagur andi mun leiða ykkur og hjálpa ykkur að þekkja vilja Drottins og taka góðar ákvarðanir.

Að lokum, þjónið Guði og öðrum af öllu hjarta

Frelsarinn býður öllum að „þjóna [sér] af öllu hjarta“. Þegar við veljum að gera allt sem Drottinn hefur beðið okkur að gera – eins og að halda boðorðin, meðtaka sakramentið, tilbiðja í musterinu og þjóna öðrum – af einlægu hjarta og einlægum ásetningi, verður hver athöfn þjónustu og tilbeiðslu áhrifamikil andleg upplifun sem styrkir trú okkar og vitnisburð og fyllir hjarta okkar gleði og kærleika til Guðs og náungans.

Spurning spámannsins Alma endurómar enn í dag: „Hafið þér fæðst andlega af Guði? Hefur mynd hans greypst í svip yðar? Hefur þessi gjörbreyting orðið í hjörtum yðar?“

Bræður og systur, ég býð ykkur að gefa frelsaranum allt hjarta ykkar í dag. Látið hverja tilbeiðslu- og þjónustuathöfn vera einlæga og af réttum ásetningi. Yfirgefið truflanir heimsins og kappkostið að hafa innihaldsríkan tíma með Drottni á hverjum degi lífs ykkar. Iðrast og snúið ykkur til hans af öllu hjarta og hann mun fyrirgefa ykkur og umvefja ykkur kærleiksörmum sínum. Leitið því ekki þess sem heimsins er, veljið að halda einbeittu augliti á dýrð Guðs og leitið þess sem betra er. Hann þekkir hugsanir ykkar og þrár hjartans, og þegar þið komið til hans, mun hann blessa ykkur með styrk, sjálfstrausti, friði og gleði í þessu lífi og stað í hinu himneska ríki sínu um alla eilífð.

Ég veit að Jesús Kristur lifir. Hann er frelsari okkar. Og hann elskar ykkur og mig af öllu hjarta. Í nafni Jesú Krists, amen.