Aðalráðstefna
„Elskar þú mig?“
Aðalráðstefna október 2025


11:42

„Elskar þú mig?“

Ef við viljum sýna Guði elsku okkar, ættum við að skilja hvernig hann þekkir okkar persónulegu kærleikstjáningu.

Í dæmisögunni um glataða soninn átti eldri bróðirinn í fyrstu erfitt með að fagna þegar yngri bróðir hans kom heim eftir tímabil slæmra ákvarðana og „[hann sóað] fé sínu í óhófsömum lifnaði“. Stolt og sjálfsréttlæti eldri bróðurins kom í veg fyrir að hann nyti gleðinnar yfir iðrandi heimkomu bróður síns. Við gætum líka látið tækifæri fara fram hjá okkur, án þess að láta ástvini okkar vita, með orðum okkar og gjörðum, af einlægri elsku okkar til þeirra.

Í ritningunum eru mörg öflug dæmi um einlæga elsku sem er sýnd og meðtekin: Naomí og Rut, Ammon og Lamoní konungur, glataði sonurinn og faðir hans, frelsarinn og lærisveinar hans.

Þegar elska er gefin fúslega og meðtekin af einlægni, þá myndast dyggðarhringur, þar sem elskan eykst milli bæði gefandans og þiggjandans.

Elska Guðs er fullkomin, óendanleg og varanleg og „mjög gómsæt“. Hún fyllir sálina „ákaflega miklum fögnuði“. Samt sem áður getur verið erfitt að bera kennsl á elsku Guðs í lífi okkar. Hins vegar, þráir okkar fullkomlega kærleiksríki himneski faðir svo innilega að við upplifum elsku hans að hann „talar við [okkur] … [svo við] skiljum“. Hann mun tjá elsku sína til okkar á þá vegu sem við, sem einstaklingar, getum skilið. Við getum upplifað elsku Guðs til okkar þegar við horfum á fegurð náttúrunnar eða fáum svör við bænum, eða hugsanir koma upp einmitt á þeirri stundu sem við þurfum á þeim að halda, eða þegar við upplifum ljúfar gleðistundir. Æðsta birtingarmynd elsku himnesks föður til okkar, sem hefur áhrif á bæði huga og hjarta, er þegar hann leyfði að ástkær sonur hans byði sig fram til að verða sá sem friðþægði.

Líkt og eldri bróðir glataða sonarins, beinist athygli okkar oft að okkur sjálfum. Við erum svo upptekin af því að leita að birtingarmyndum um elsku Guðs til okkar og verðum pirruð þegar við sjáum þær ekki. En fallega þversögnin er sú að því meira sem við einbeitum okkur að því að sýna elsku okkar til Guðs, því auðveldar eigum við með að bera kennsl á elsku hans til okkar. Kannski var það þess vegna sem frelsarinn svaraði spurningunni: „Meistari, hvert er hið æðsta boðorð í lögmálinu?“ með þessu einfalda og mikilvæga boði: „Elska skalt þú Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni og öllum huga þínum.“

Stundum þegar við sýnum þeim elsku sem eru okkur kær, er ekki endilega víst að þau skynji það sem elsku. Þetta getur vakið gremju bæði hjá þeim sem gefur og þiggur. Það gæti verið gagnlegt að spyrja þau sem við elskum hvernig þau bera kennsl á tjáðan kærleika. Á sama hátt, ef við viljum sýna Guði elsku okkar, ættum við að skilja hvernig hann þekkir okkar persónulegu kærleikstjáningu. Sem betur fer hefur hann greinilega útskýrt í ritningunum nokkuð af því sem við getum gert til að sýna honum elsku okkar.

„Elskar þú mig meira en þessir?“

Í fróðlegum samskiptum Péturs og hins upprisna Drottins við Tíberíasvatn, lærum við um leiðir til að sýna Drottni elsku okkar.

„Jesús [sagði] við Símon Pétur: ‚Símon Jóhannesson, elskar þú mig meira en þessir?‘ Hann svarar: ‚Já, Drottinn, þú veist að ég elska þig.‘“

Lykilsetningin í þessu versi er: „Elskar þú mig meira en þessir?“ Við sýnum Drottni elsku okkar þegar við setjum hann ofar „þessu“ og „þetta“ getur verið hver sem er, hvaða athöfn sem er eða hvað sem kemur í veg fyrir að hann sé mikilvægasti áhrifavaldurinn í lífi okkar.

Það verður aldrei nægur tími í einum degi, viku, mánuði eða ári til að gera allt sem við þurfum eða viljum áorka. Hluti af prófraun jarðlífsins er að nota dýrmæta auðlind tímans í það sem mikilvægast er fyrir eilíft virði okkar og sleppa því sem er minna mikilvægt.

Russell M. Nelson forseti sagði: „Spurningin fyrir hvert okkar … er sú sama. … Ert þú fús til að láta Guð vera áhrifaríkastan alls í lífi þínu? Vilt þú leyfa að orð hans, boðorð hans og sáttmálar hans, ráði þínum daglegu gjörðum? Vilt þú leyfa að rödd hans sé í fyrirrúmi allra annarra? Ert þú fús til að láta hvaðeina sem hann vill að þú gerir vera í forgangi alls annars metnaðar? Ert þú fús til að gefa eftir vilja þinn og láta innbyrðast í vilja hans?“ Við sýnum lærisveinshlutverk okkar og elsku til Guðs þegar við setjum hann í fyrsta sæti.

Gæt sauða minna

Í næsta versi þessarar sömu umræðu milli Péturs og frelsarans, lærum við um aðra leið sem Drottinn þekkir kærleikstjáningu okkar: „[Drottinn] sagði aftur við hann öðru sinni: ‚Símon Jóhannesson, elskar þú mig?‘ Hann svaraði: ‚Já, Drottinn, þú veist að ég elska þig.‘ Jesús segir við hann: ‚Ver hirðir sauða minna.‘“

Við sýnum himneskum föður elsku okkar þegar við þjónum, hlustum á, elskum, upplyftum eða þjónum börnum hans. Sú þjónusta getur verið jafn einföld og að sjá aðra raunverulega án þess að dæma. Í 76. kafla Kenningar og sáttmála fáum við innsýn í persónuleika þeirra sem munu erfa himneska dýrð: „Þeir sjá eins og þeir sjást og þekkja eins og þeir þekkjast.“ Þau sjá aðra eins og Guð sér þau og hann sér þau eins og þau geta orðið, með dýrðlega, guðdómlega möguleika.

Eftir að ég kom heim úr trúboði mínu tók ég við garðyrkjufyrirtækinu sem ég og bræður mínir höfðum stofnað sem unglingar. Ég var líka upptekinn við háskólanámið mitt. Eina vorvikuna þyrmdi yfir mig vegna mikilla rigninga og lokapróf nálguðust og ég var eftir á í garðyrkjustörfunum.

Um miðja vikuna létti til og ég ætlaði að vinna upp garðyrkjuverkin eftir skóla. En þegar ég kom heim, voru bíllinn minn og tækin horfin. Forviða, heimsótti ég garðana sem við áttum að sinna og sérhver þeirra hafði verið fallega snyrtur. Í síðasta garðinum á áætlun okkar, sá ég yngri bróður minn ganga á eftir sláttuvélinni. Hann horfði á mig, brosti og veifaði. Uppfullur af þakklæti, faðmaði ég hann og þakkaði honum. Þjónustuverk hans styrkti með djúpum hætti ást mína og tryggð gagnvart honum. Að þjóna hvert öðru er óyggjandi leið til að sýna elsku okkar til Guðs og ástkærs sonar hans.

„Játa hönd hans í öllu“

Við sýnum líka elsku okkar til Guðs með því að vera þakklát í hjarta. Drottinn sagði: „Og í engu misbýður maðurinn Guði, … nema þeim, sem ekki játa hönd hans í öllu.“ Við sýnum elsku okkar til Guðs með því að viðurkenna hann sem uppsprettu alls góðs í lífi okkar.

Í nýlega stofnuðu fyrirtæki, báðumst ég og viðskiptafélagi minn innilega fyrir á undan mikilvægum fundum og báðum himneskan föður um hjálp. Aftur og aftur svaraði Guð bænum okkar og fundir okkar gengu vel. Eftir einn fundinn benti viðskiptafélagi minn á að við hefðum verið fljótir að biðja um hjálp en seinir að færa þakkir. Þaðan í frá gerðum við það að vana að biðja einlægar þakklætisbænir og viðurkenna hönd Drottins í velgengni okkar. Við sýnum elsku okkar til Guðs með „þakklátu viðhorfi“.

„Ef þér elskið mig munuð þér halda boðorð mín“

Önnur leið til að sýna himneskum föður og ástkærum syni hans elsku okkar er að velja að hlýða þeim. Frelsarinn sagði: „Ef þér elskið mig munuð þér halda boðorð mín.“ Þessi tegund hlýðni er hvorki blind né af skyldurækni, heldur er hún einlæg og fús kærleikstjáning. Faðir á himnum vill að við viljum vera hlýðin. Systir Tamara W. Runia kallaði þessa hlýðni „ástúðlega hlýðni“. Hún sagði: „Jafnvel þótt hlýðni okkar sé enn ekki fullkomin, þá reynum við að sýna ástúðlega hlýðni núna og velja að dvelja áfram, aftur og aftur, vegna þess að við elskum hann.“

Himneskur faðir gaf okkur sjálfræði til að hvetja okkur til að vilja velja hann. Verk hans og dýrð er ekki aðeins að koma eilífu lífi okkar til leiðar, heldur felur einnig í sér von um að okkar mesta þrá sé að snúa aftur til hans. Hins vegar mun hann aldrei neyða okkur til hlýðni. Í sálminum „Sérhver sál getur valið sér“ syngjum við:

„Hann ávallt kallar undur blítt

og elsku fyllir afar þítt.

Af gæsku öllum gefur hann,

en þvingar aldrei mannshugann.“

Sem trúboðsleiðtogar vorum við hjónin, Christina og ég, innblásin af svo mörgum trúboðum sem kusu að vera hlýðnir, ekki aðeins vegna þess að það var trúboðsstaðall heldur vegna þess að þeir vildu sýna elsku sína til Drottins með því að velja auðmjúklega að vera fulltrúar hans.

Öldungur Dale G. Renlund sagði: „Uppeldismarkmið föður okkar á himnum er ekki að láta börn sín gera það sem rétt er, heldur að láta börn sín velja að gera það sem rétt er og að lokum verða eins og hann er. Ef hann einfaldlega vildi fá okkur til að hlýða, gæti hann beitt skyndiumbun og refsingu til að hafa áhrif á hegðun okkar.“ Við sýnum elsku okkar til Guðs þegar við veljum að hlýða honum.

Himneskur faðir okkar og frelsari okkar þekkja kærleikstjáningu okkar til þeirra þegar við setjum þá í fyrsta sæti í lífi okkar, þjónum hvert öðru, berum kennsl á sérhverja blessun frá þeim með þakklæti og veljum að hlýða þeim og fylgja.

Ég ber vitni um að hvert og eitt okkar er sannarlega barn Guðs og hann elskar okkur fullkomlega. Ég ber vitni um að hann þráir að við upplifum elsku hans á þann hátt sem við þekkjum og skiljum. Á sama hátt, ber ég vitni um að við munum upplifa elsku hans til okkar enn dýpra þegar við sýnum honum elsku okkar. Í nafni Jesú Krists, amen.

Heimildir

  1. Lúkas 15:13.

  2. Sjá Rómverjabréfið 8:35–39; Dale G. Renlund, „Experience God’s Love“ (trúarsamkoma í Brigham Young-háskóla, 3. des. 2019), speeches.byu.edu; Russell M. Nelson, „Divine Love,“ Liahona, feb. 2023, 12–17.

  3. 1. Nefí 8:11.

  4. 1. Nefí 8:12.

  5. 2. Nefí 31:3.

  6. Sjá Jóhannes 3:16.

  7. Sjá 1. Jóhannesarbréf 4:19.

  8. Matteus 22:36–37.

  9. Þó að við ávinnum okkur ekki elsku Guðs með verkum okkar, þá er hann ákafur að viðurkenna elsku okkar til sín með því að heyra bænir okkar, blessa okkur og hjálpa okkur að upplifa elsku hans til okkar.

  10. Jóhannes 21:15.

  11. „Við verðum að hafa Guð í forgrunni alls annars í lífi okkar. Hann verður að vera í fyrsta sæti. …

    Þegar við setjum Guð í fyrsta sæti, þá falla allir aðrir hlutir á sinn stað eða hverfa úr lífi okkar. Elska okkar til Drottins mun stjórna kröfum okkar um ástúð, um tíma okkar, áhugamálin sem við stundum og forgangsröðun okkar“ (Teachings of Presidents of the Church: Ezra Taft Benson [2014], 40). Sjá einnig Dallin H. Oaks, „Gott, betra, best,“ aðalráðstefna, október 2007.

  12. Russell M. Nelson, „Lát Guð ríkja,“ aðalráðstefna, október 2020.

  13. Jóhannes 21:16.

  14. Sjá Mósía 2:17.

  15. Kenning og sáttmálar 76:94.

  16. Kenning og sáttmálar 59:21.

  17. Sjá Fílemonsbréfið 1:4–7.

  18. Thomas S. Monson, „An Attitude of Gratitude,“ Ensign, maí 1992, 54.

  19. Jóhannes 14:15.

  20. Tamara W. Runia, „Iðrun ykkar íþyngir ekki Jesú Kristi; hún vekur honum bjarta gleði,“ aðalráðstefna, apríl 2025.

  21. Sjá 2. Nefí 10:23–24; Helaman 14:30–31.

  22. Sjá HDP Móse 1:39.

  23. „Know This, That Every Soul Is Free,“ Hymns, nr. 240 (ísl. þýðing til).

  24. Sjá Mósía 5:2–5.

  25. Dale G. Renlund, „Kjósið þá í dag,“ aðalráðstefna, október 2018.

  26. Patrick Kearon, „Meðtaka gjöf hans,“ aðalráðstefna, apríl 2025.

  27. „Æðsta boðorð allrar eilífðar, er að elska Guð af öllu okkar hjarta, mætti, huga og styrk – það er hið æðsta og mikla boðorð. Æðsti sannleikur allrar eilífðar, er þó sá að Guð elskar okkur af öllu sínu hjarta, mætti, huga og styrk“ (Jeffrey R. Holland, „Á morgun mun Drottinn gjöra undursamlega hluti meðal yðar,“ aðalráðstefna, apríl 2016).

  28. Hesed er sérstakur kærleikur og náð sem Guð hefur fyrir þá og veitist þeim sem gert hafa sáttmála við hann. Við endurgjöldum honum með hesed.

    Þar sem Guð býr að hesed til þeirra sem hafa gert sáttmála við hann, mun hann elska þau. Hann mun áfram vinna með þeim og bjóða þeim tækifæri til að breytast. Hann mun fyrirgefa þeim þegar þau iðrast. Hann mun hjálpa þeim til baka, ef þau hafa villst af leið.

    Þegar þið og ég höfum gert sáttmála við Guð, verður samband okkar við hann miklu nánara en áður en við gerðum sáttmála okkar“ (Russell M. Nelson, „Hinn ævarandi sáttmáli,“ Líahóna, okt. 2022).