Aðalráðstefna
Svo að allir megi uppbyggjast
Aðalráðstefna október 2025


11:21

Svo að allir megi uppbyggjast

Þegar við einblínum á Jesú Krist, kennum kenningar hans og lærum af kostgæfni, bjóðum við heilögum anda að dýpka trú okkar á Jesú Krist og hjálpa okkur að verða líkari honum.

Til er saga af ungum háskólanema sem átti í erfiðleikum með krefjandi námsefni, svo hann réði leiðbeinanda til að aðstoða sig. Í lok námsbekkjarins tilkynnti prófessorinn að nemendur gætu komið með eitt blað í lokaprófið, sem þeir gætu sett á hvað sem þeir vildu. Sumir nemendur undirbjuggu sig með því að gera örsmáar glósur með upplýsingum úr fyrirlestrum og kennslubókum, einungis læsilegar með stækkunargleri. Ungi maðurinn mætti hins vegar í lokaprófið með autt blað og ókunnugan mann. Þegar prófessorinn spurði hann, svaraði ungi maðurinn: „Þú sagðir að ég mætti koma með eitt blað með hverju á sem er.“ Hann setti síðan blaðið á gólfið við hliðina á skrifborðinu sínu og sagði: „Ég vil að leiðbeinandinn minn standi á blaðinu mínu.“

Heilagur andi

Við erum sem meðlimir Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu blessuð með samfélagi við meðlim guðdómsins, við getum fengið hjálp hins fullkomna leiðbeinanda. Heilagur andi veit alla hluti, ber vitni um sannleikann og mun „minna [okkur] á allt“. Russell M. Nelson forseti ræddi oft um mikilvægi þess að hlýða á rödd Drottins. Hann kenndi okkur hvernig bjóða á heim leiðsögn heilags anda og bað okkur ítrekað að auka andlega hæfni okkar til að hljóta opinberun.

Í dag býð ég ykkur að íhuga hlutverk heilags anda, sérstaklega í tengslum við trúarnám og kennslu á heimilinu og í kirkjunni. Heilagur andi er gefinn með trúarbæn og er við keppum að því að lifa verðug þessarar dýrmætu gjafar. Hin innblásna handbók kirkjunnar, Kenna að hætti frelsarans, gerir grein fyrir viðbótarreglum sem Drottinn hefur komið á fót, sem munu hjálpa við að bjóða heim áhrifum heilags anda.

Stuðlið að kostgæfni í námi

Ein þessara reglna er til að stuðla að kostgæfni í námi. Áður fyrr, gætum við hafa hugsað um kennsluna sem tækifæri fyrir foreldri eða kennara að bjóða andanum að vera með í eigin undirbúningi og síðan miðla því sem þau hafa lært með börnum eða nemendum, sem hafa það hlutverk að hlusta. Enn áhrifaríkara er það þó þegar við, sem nemendur, komum undirbúin og þegar kennarar skapa lærdómsupplifun sem stuðlar að persónulegri opinberun beint í hjarta okkar og huga. Þegar okkur síðan gefst tækifæri til að miðla því sem við lærum í námi okkar og frá heilögum anda, hjálpum við hvert öðru að hljóta leiðsögn og uppbyggjast. Þegar við tileinkum okkur reglur fagnaðarerindisins ber andinn aftur vitni um sannleiksgildi þeirra.

Tækifæri til að miðla

Jesús Kristur er hið fullkomna fordæmi í þessu, líkt og í öllu. Hann hefur boðið hverju okkar að vera kostgæfnir lærisveinar og að axla ábyrgð á eigin vitnisburði. Hann bauð lærisveinum sínum að búa sig undir að læra, að miðla því sem þeir voru að læra og breyta í trú. Hann bað fyrir þeim, sá guðlega möguleika þeirra, hlustaði á þá og hjálpaði þeim að vita að þeir væru elskaðir og nauðsynlegir.

Sem kennarar getum við einblínt betur á framþróun nemenda, að uppfylla þarfir þeirra og að hjálpa þeim að þróa andlegar venjur lærisveinsins alla ævi. Þegar við sem nemendur iðkum sjálfræði í lærdómsferlinu, gefum við heilögum anda merki um fúsleika okkar til að meðtaka kennslu hans.

Ég er þakklátur fyrir kennara sem bauð mér að verða betri nemandi. Þegar ég byrjaði í háskóla, hugsaði ég ranglega um skólann sem eitthvað sem ég þyrfti að þola til að fá að stunda íþróttir. Dag einn, eftir að hafa lesið ritgerð eftir mig, sagði prófessorinn minn við mig að henni fyndist ég vera hæfileikaríkur greiningarhugsuður. Ég vissi ekki einu sinni hvað það þýddi. Hún sagði að með einbeittara framlagi, gæti ég orðið góður nemandi. Sú hugsun hafði aldrei hvarflað að mér. Áhugi hennar, hvatning og boð, breytti menntun minni og blessaði líf mitt verulega.

Kennið kenninguna

Önnur regla sem skiptir máli við að bjóða heim heilögum anda, er að kenna sanna kenningu. Merking þessa er sú að trúarlegt nám okkar og fræðsla séu rótföst í orði Guðs og að við hvorki oftúlkum né getum okkur til um það sem Drottinn hefur enn ekki opinberað. Þess í stað einblínum við á nauðsynlegar og eilífar reglur sem gera andanum kleift að vitna um sannleikann. Enn og aftur, við fylgjum fordæmi frelsarans. Hann sagði: „Kenning mín er ekki mín heldur hans er sendi mig.“

Sönn kenning fyrirfinnst í ritningunum og í kenningum nútíma spámanna. Áminning Drottins um að nema ritningarnar bæði í einrúmi og með fjölskyldunni og að sækja kirkju í hverri viku til að læra fagnaðarerindi hans, er undraverð umgjörð til að læra kenningar hans og hlýða á rödd hans. Við leitum í ritningunum til að skilja frásögnina, reglurnar sem þær kenna og beitingu þessara sanninda í lífi okkar. Hvílík blessun að hafa ritningarnar innan seilingar. Ímyndið ykkur Adam og Evu, Abinadí eða jafnvel meistarakennarann Jesú Krist heimsækja heimili okkar eða bekki til að kenna okkur. Þau geta það þegar við endurnærumst af orði Guðs. Við getum, með stöðugu átaki, lært að skilja og elska ritningarnar og treysta því að þær hafi svör við spurningum sálarinnar.

Áður en við giftum okkur, var tímabil þar sem eiginkona mín, Kristi, átti í erfiðleikum með að finna fyrir elsku himnesks föður og skilja áætlun hans fyrir sig. Þegar hún baðst fyrir um leiðsögn, fékk hún hugboð um að hún ætti að fara í trúarskóla eldri deildar, því skráði hún sig í námsbekk í Nýja testamentinu. Aðferðir trúarskólakennarans hennar við að kenna úr ritningunum, jafnvel það hvernig hann hélt á þeim, sýndi hve mjög hann unni orði Guðs. Þegar hún tók þátt, hvíslaði heilagur andi að henni að það væri eitthvað í ritningunum sem hún þyrfti á að halda. Væntumþykja kennarans á ritningunum og innblástur heilags anda vöktu hjá henni þrá til að hefja ítarlegt nám á orði Guðs – sem varð ævilangt ferðalag djúprar trúarumbreytingar og helgaðrar þjónustu.

Einblínið á Jesú Krist

Að lokum, eins og Kenna að hætti frelsarans leggur til, ætti kennsla okkar og nám alltaf að beinast að Jesú Kristi. Við getum talað oftar og lotningarfyllra um hann og leitað fleiri tækifæra til að gefa vitnisburð, sýna þakklæti og elsku okkar til hans. Við getum haft „anda hans með [okkur]“ í hvaða umhverfi sem er, er við minnumst hans.

Ein leið til að hafa Jesú Krist sem þungamiðju í kennslu okkar er að leggja áherslu á að hann sé hið fullkomna fordæmi, holdgervingur og tjáning allra reglna fagnaðarerindisins. Jafnvel þegar ekki er beint vísað til hans í frásögn ritninganna, getum við samt bent á hann sem dæmi um þá reglu sem kennd er. Við gætum einfaldlega spurt: „Getið þið hugsað um það þegar Jesús Kristur sýndi þessa reglu?“

Við getum líka einblínt á hann með því að læra um titla hans, hlutverk og eiginleika og leitast við að læra ekki aðeins það sem hann hefur gert, heldur einnig til að skilja betur hver hann er. Þegar þið lærið til dæmis regluna um iðrun, er mikilvægt að skilja hvernig á að iðrast. Það er líka nauðsynlegt að muna hvað Jesús Kristur hefur gert til að gera iðrun mögulega og að skilja hvað iðrun kennir okkur um hann, um hans sanna eðli og eiginleika. Hvað segir tækifæri okkar til að iðrast um kærleika hans, þolinmæði og miskunn, trú hans á guðlega möguleika okkar, fúsleika hans til að friðþægja fyrir syndir okkar og gleðina sem hann finnur í fyrirgefningu? Og það að skilja titla hans – svo sem Guðs lamb, lausnari og læknir – hjálpar okkur að skilja að iðrun er boð hans um að hreinsa, breyta og lækna okkur. Það að einblína á það sem hann hefur gert fyrir okkur og hvað það segir um hver hann er, getur hjálpað okkur að hafa „trú til iðrunar“.

Stundum sjáum við ekki strax eiginleika frelsarans útskýrða í frásögn ritninganna. Þegar við til dæmis lesum um bátasmíði Nefís, gætum við einblínt aðeins á Nefí. En ef við einblínum á frelsarann, getur það hjálpað okkur að skilja að þessi heimild var ekki varðveitt til að kenna okkur um mikilleika Nefís, heldur til að sýna okkur mikilleika Guðs – að hann veitir okkur styrk til að halda boðorð sín og frelsar okkur á neyðarstundu.

Við getum einnig lagt áherslu á lykilhlutverk Jesú Krists í hinni fullkomnu sæluáætlun himnesks föður. Það getur breytt gangi lífs okkar að sjá aðstæður okkar út frá sjónarhorni hinnar eilífu áætlunar Guðs í stað þess að sjá áætlunina út frá sjónarhorni stundlegra aðstæðna okkar. Fagnaðarerindið er ekki kröfulisti; það eru góðu fréttirnar um að Jesús Kristur sigraði synd og dauða. Það er með aðgengi að undursamlegri náð hans með því að halda sáttmála okkar við Guð, að við getum lifað hamingjusamlega núna og búið okkur undir líf með föður okkar á himnum í eilífðinni. Þegar við lærum að sjá himneskan föður og frelsarann í ritningunum, munum við kynnast þeim betur og sjá elsku þeirra og áhrif verða tíðari og kröftugri í lífi okkar.

Ég mun ætíð minnast andans sem ég fann sem unglingur þegar kennarinn okkar kenndi um síðustu dagana í lífi frelsarans. Hann hjálpaði okkur að skilja mikilvægi atburðanna í loftsalnum, Getsemane, Golgata og tómu gröfinni. Hann miðlaði innilegu þakklæti sínu fyrir frelsarann og djúpri þrá sinni til að fylgja honum. Kennsla hans var boð til heilags anda um að bera vitni um Jesú Krist. Og andinn sem ég fann í kennslustundinni dýpkaði trú mína og jók elsku mína og þakklæti til frelsarans. Áhrif þess kennara hafa fylgt mér alla ævi. Eins og sagt var um annan kennara: „Við gátum yljað höndum okkar við trúareld hans.“

Lokaorð

Þegar við einblínum á Jesú Krist á heimili okkar og á kirkjusamkomum, kennum kenningar hans og lærum af kostgæfni, bjóðum við heilögum anda að dýpka trú okkar á Jesú Krist og hjálpa okkur að verða líkari honum, sem er markmið allrar trúarkennslu og náms.

Kennslumynd

Ég er þakklátur fyrir kennarana í lífi mínu, allt frá góðum foreldrum, staðarleiðtogum og kennurum, til þeirra karla og kvenna sem hafa verið kölluð til að kenna og bera vitni frá þessum ræðustól, sem hjálpa okkur að þekkja og fylgja Jesú Kristi. Og ég er þakklátur fyrir heilagan anda, hinn fullkomna kennara. Það er fyrir heilagan anda sem ég veit að himneskur faðir elskar okkur og hefur fullkomna áætlun fyrir okkur; að Jesús er Kristur, frelsari og lausnari heimsins og að fagnaðarerindi hans og kirkja hafa verið endurreist. Ég vitna í þakklæti um þetta, í nafni Jesú Krists, amen.