Samstillið hjarta ykkar Jesú Kristi: Hin helga gjöf Barnafélagstónlistar
Barnafélagssöngvar eru prédikanir fyrir lærisveina Jesú Krists, vitnisburður um sannleiksgildi hins endurreista fagnaðarerindis og bænir settar við tónlist.
Ein blessun þjónustu minnar í Barnafélaginu er sú að hjarta mitt hefur lært að elska á tungumálum sem tunga mín talar ekki. Ég hef fundið gleði í því að tengjast öðrum heilögum á sameiginlegu tungumáli helgrar tónlistar. Og sérstaklega í einföldum söngvum Barnafélagsins hefur heilagur andi yfirstigið tungumálaörðugleika og fyllt hjarta mitt með sinni lágværu rödd. Með barnsröddum, hefur elska til Guðs og sonar hans, Jesú Krists, verið kunngjörð á skýran, skarpan máta.
Þótt ég hafi ekki alist upp í Barnafélaginu, hefur andinn fljótt kennt mér heilagleika söngva þess og þeir hafa orðið hluti af persónulegri tilbeiðslu minni. Barnafélagssöngvar hafa haft helg áhrif á líf mitt og lyft sál minni, kennt mér eilífan sannleika og fært mig nær frelsaranum og fagnaðarerindi hans.
Dallin H. Oaks forseti kenndi eitt sinn að „sálmasöngur er ein af bestu leiðunum til að læra kenningu hins endurreista fagnaðarerindis“. Þessi orð eiga við um okkur öll, en eru sérlega viðeigandi fyrir börn. Barnafélagstónlist er eitt ljúfasta verkfæri Guðs til að gróðursetja sáðkorn vitnisburðar í hjörtu yngstu lærisveina frelsarans. Foreldrar, leiðtogar og kennarar næra þetta fræ með því að vitna um og bjóða börnum að gefa vitnisburð um allt sem þau eru að læra um himneskan föður; son hans, Jesú Krist; og heilagan anda.
Á nokkrum síðustu árum þjónustu minnar, hef ég varið tíma í að syngja og læra af Barnafélagstónlist og samtímis íhugað nokkrar spurningar:
-
Hvernig geta Barnafélagssöngvar sem lærðir eru í bernsku orðið að andlegu tungumáli sem börn nota til að bera vitni alla sína ævi?
-
Hvernig gagnast það börnum að syngja sannleika fagnaðarerindisins, við að minnast Drottins, sem hluta af sáttmála þeirra og við að búa þau undir helgiathafnir hans?
-
Og hvernig geta Barnafélagssöngvar hjálpað við að rita lögmál Guðs á hjörtu þessara yngstu lærisveina?
Þegar Barnafélagið hóf starfsemi árið 1878, sagði Aurelia Spencer Rogers, fyrsti forseti þess, að „söngur væri nauðsynlegur“. Tónlist hefur ávallt verið kjarni þess að kenna börnum fagnaðarerindið. Barnafélagssöngvar geta orðið fyrsta andlega tungumál barns, því einfaldar og eftirminnilegar laglínur þeirra tjá sannleika fagnaðarerindisins. Þessir söngvar hafa kraft til að fylgja börnunum alla ævi, verða hluti af lærisveinsdómi þeirra og náttúrleg og eðlileg leið fyrir þau til að bera vitni um frelsarann.
Kenna kenningu Jesú Krists með söng
Barnafélagssöngvar geta líka verið áhrifamikið kennslutæki fyrir kenningaratriði. Sumir söngvar segja sögur af lífi og þjónustu frelsarans. Aðrir kenna um eiginleika hans, eins og trú hans, von hans og kærleika hans. Og allra helgustu söngvarnir vitna um óendanlega friðþægingu hans og elskuna sem þessi sáluhjálparathöfn ber með sér.
Spámaður Drottins, Russell M. Nelson forseti, kenndi: „[Tónlist] getur haft stöðug áhrif til góðs, langt út fyrir þann tíma þegar börnin eru ung. … [Hún] hefur máttinn til að veita andlega næringu. Hún hefur lækningarmátt. Hún hefur [máttinn] til að fela í sér tilbeiðslu; hún gerir okkur kleift að íhuga friðþægingu [frelsarans] og endurreisn fagnaðarerindisins, með grunnreglum endurlausnar og helgiathöfnum upphafningar. Tónlist gerir okkur kleift að tjá bænheitar hugsanir og bera vitni um heilagan sannleika.“
Starf okkar sem foreldrar, leiðtogar og kennarar, felst í því að hjálpa börnum að nálgast þessar fyrirheitnu blessanir, með því að kenna þann sannleika fagnaðarerindisins með ásetningi, sem er að finna í tónlistinni. Nelson forseti kenndi einnig að „börn geti lært kenninguna þegar þau eru að læra að syngja, alveg eins mikið og þau geta lært kenninguna í námsbekk“. Þessir söngvar geta verið uppspretta trúarfylltra prédikana sem vísa börnum á frelsarann og hjálpa þeim að þróa trúfesti við fagnaðarerindi hans.
Ritningarnar kenna að söngvar hinna réttlátu, sem koma frá hjartanu, séu frelsaranum gleðiefni. Ég get einungis dást að þeirri gleði sem raddir yngstu lærisveina frelsarans vekja. Ég veit að bænheitir söngvar þeirra berast til himins sem trúartjáning sem býður heilögum anda að staðfesta eilífan sannleika og býður öðrum alúðlega og blíðlega að taka á móti kalli frelsara okkar um að fylgja sér og koma heim. Eins og öldungur Henry B. Eyring hefur minnt okkur á, þá er það á þeim stundum sem við finnum fyrir andanum, að við finnum staðfestingu um að friðþægingin sé virk í lífi okkar.
Letra sannleika á hjartað
Barnafélagstónlist getur verið kraftaverk sem börnin okkar bera með sér um æviskeið lærisveinsins. Söngur sem lærist við sex ára aldur hefur kraft til að dvelja með okkur – og getur komið aftur áratugum síðar á stundum ákvarðanatöku, freistinga, sorgar eða gleði. Á síðari árum gæti sem dæmi söngtexti lagsins „Ég fylgi áformi Guðs“ þjónað sem andlegt akkeri sem endurómar vitnisburð Páls postula um trygg loforð Guðs til okkar. Hann gæti líka minnt okkur á að vegna þess að Guð stendur við fyrirheit sín, bjóða sáttmálar hans upp á mikla huggun og griðarstað og bjóða okkur að binda von okkar og fullvissu staðfastlega við Jesú Krist og friðþægingarkraft hans.
Á erfiðleikatímum minnast fullorðnir meðlimir um heim allan oft og snúa sér að Barnafélagssöngvunum sem þeir lærðu sem börn. Fyrir marga studdu þessir söngvar við hinn snemmbúna trúargrunn þeirra á Jesú Krist og voru oft á tíðum það atriði sem hóf trúarumbreytingu þeirra til fagnaðarerindis hans. Foreldrar, leiðtogar og kennarar ræktuðu þá trú í gegnum árin með því að kenna, syngja og bera vitni fyrir börnum af alúð.
Ein systir sagði mér að Barnafélagstónlistin væri henni dýrmæt og að eftir 20 ár þakkaði hún henni fyrir að flýta fyrir áframhaldandi trúarumbreytingu sinni til fagnaðarerindis Jesú Krists. Annar meðlimur bar vitni um að Barnafélagið hefði gróðursett mustarðskorn trúar þegar hann var ungur og væri ástæða þess að hann gat komið aftur í kirkju Drottins á fertugsaldri. Frelsarinn lofaði: „Hjálparinn … mun kenna yður allt og minna yður á allt.“ Barnafélagstónlist getur verið ein leið til að uppfylla loforðið.
Annar ástkær Barnafélagssöngur fangar mátt einfaldrar trúar og varanlegs vitnisburðar:
Þegar börn syngja, eru þau að tjá þrá lærisveinsins og að læra mynstur sáttmálslífs. Andinn getur notað tónlist til að rista eilífan sannleika á meyrt hjarta þeirra. Börn geta svo að endingu valið að stilla og snúa hjörtum sínum og lífi sínu að Jesú Kristi, með því að gera og halda helga sáttmála við hann.
Minnast sáttmála okkar og undirbúningur fyrir helgiathafnir
Helg tónlist getur hjálpað til við að rita kenningu Krists á sálina og búið okkur undir að taka á móti helgiathöfnum hans. Hún tengir kenningu frelsarans við minni okkar og þetta minni við lærisveinshlutverk okkar í honum.
Sem leiðtogar Barnafélagsins, höfum við tækifæri og helga ábyrgð að tryggja að tónlist í Barnafélaginu sé kennd af gleði, með kenningarlegum skilningi og með andanum. Þetta felur í sér að bjóða börnunum að taka eftir því sem þau finna þegar þau syngja og hjálpa þeim að skilja að þessar tilfinningar koma frá heilögum anda. Þessi viðleitni hjálpar við að búa börn okkar undir helgiathafnir eins og skírn og staðfestingu, sem og innblása sáttmálsminni þeirra er þau endurnýja reglulega loforð sín við Guð.
Við síðustu kvöldmáltíðina, eftir að frelsarinn innleiddi sakramentið, skrifar Matteus að „þegar þeir höfðu sungið lofsönginn fóru þeir til Olíufjallsins“. Í hverri viku búa skírðir og staðfestir meðlimir hinnar endurreistu kirkju Drottins, þar með talin skírð börn allt niður í átta ára aldur, sig undir að meðtaka sakramenti Drottins. Með því að syngja helga tónlist gefst söfnuðum barna Guðs tækifæri til að búa hjörtu sín undir þá helgiathöfn að taka á sig nafn hans, að hafa hann ávallt í huga og halda boðorð hans.
Lokavitnisburður
Kæru vinir, ég ber vitni um að Barnafélagssöngvar kenna eilífan sannleika og kenningu sem leiða okkur til Jesú Krists og fagnaðarerindis hans. Ég býð ykkur að hugleiða hvaða grundvallarsannleikur hefur verið ritaður á hjörtu ykkar með hinni einföldu kennslu þessara söngva og vitna um þann sannleika fyrir yngstu lærisveinum frelsarans, er þið kennið þeim fagnaðarerindið með söng.
Ég veit að Guð faðirinn, af sinni óendanlegu elsku, sendi sinn ástkæra son til jarðar til að kenna okkur, vísa okkur veginn og endurleysa okkur með friðþægingu sinni.
Ég veit að líf og þjónusta frelsarans er raunveruleg og persónuleg. Ritningarnar eru fullar af frásögnum af því þegar hann læknaði, af góðvild hans og kraftaverkum hans.
Ég veit að himneskur faðir heyrir og svarar einlægum bænum barna sinna, burtséð frá aldri þeirra, aðstæðum eða tungumáli. Hann hlustar á hljóðlát bænarefni hjartna okkar.
Ég ber vitni um að Jesús Kristur bar þunga synda okkar, sorga og sársauka í Getsemane. Hann þjáðist sjálfviljugur vegna elsku sinnar til okkar og gerði okkur kleift að fá fyrirgefningu og snúa aftur heim.
Ég veit að við erum bókstaflega börn Guðs, sköpuð í hans mynd, gædd guðlegum möguleikum og er boðið að snúa aftur til að búa hjá honum ef við veljum að fylgja Jesú Kristi.
Ég veit að Jesús Kristur er okkar fullkomna fordæmi og þegar við fylgjum honum með því að þjóna, fyrirgefa og elska aðra, verðum við líkari honum dag frá degi.
Ég veit líka að hin heilögu musteri Drottins eru hans hús hér á jörðu. Í þeim gerum við helga sáttmála, hljótum eilífar blessanir og lærum meira um hann og upplifum betur návist hans. Musterið er staður lærdóms, friðar og undirbúnings fyrir líf okkar.
Ég ber vitni um að sú viðleitni sem við leggjum í að kenna og syngja þessa Barnafélagssöngva fyrir börn okkar, er ekki einfaldlega fallegur hluti af trúarhefð okkar. Þeir eru prédikanir fyrir lærisveina Jesú Krists, vitnisburður um sannleiksgildi hins endurreista fagnaðarerindis og bænir settar við tónlist. Helg tónlist getur lýst ljósi Krists á þann sem heyrir og úthellt því í hjarta söngvarans. Kæru vinir, Jesús vill enn að við séum honum sólskinsbörn. Um það vitna ég í heilögu nafni Jesú Krists, amen.