Fjölskylduyfirlýsingin – orð frá Guði
Yfirlýsingin er af guðlegum uppruna, svo við verðum að sýna henni þá lotningu sem orð Guðs verðskulda.
Þessi aðalráðstefna í október 2025 markar 30 ára afmæli tilkynningarinnar „Fjölskyldan: Yfirlýsing til heimsins“. Að guðlegri skipan var þessi yfirlýsing, ásamt opinberunarorðum hennar, sett saman til að „varðveita og styrkja fjölskylduna sem grundvallareiningu þjóðfélagsins“.
Allir tilheyra fjölskyldu, hvort sem þið eruð móðir, faðir, dóttir, sonur, barnabarn, afi eða amma, frænka, frændi, bróðir, systir eða frændsystkini. Mikilvægast er að sérhvert okkar er, eins og segir í yfirlýsingunni, „ástkær andasonur eða dóttir himneskra foreldra … [með] guðlegt eðli og örlög“.
Þegar ég var kallaður í hið heilaga hlutverk postula árið 2015, var mér leiðbeint: „Þessi yfirlýsing er nú þín. Nafnið þitt [bendandi á orðið ‚Tólfpostularáðið‘ í titlinum] er hérna. Skynjaðu hana og kenndu eins og þú eigir hana.“
Ég ann fjölskylduyfirlýsingunni. Ég hef vitnað um hlutverk fjölskyldunnar í eilífri áætlun Guðs um allan heim, frá Afríku til Ástralíu og alls staðar þar á milli. Yfirlýsingin er af guðlegum uppruna, svo við verðum að sýna henni þá lotningu sem orð Guðs verðskulda.
Hafið hugfast, bræður og systur, eins og ég sagði á fyrri aðalráðstefnu frá þessum ræðustól: „Orð skipta máli.“
Leyfið mér að segja ykkur forsögu yfirlýsingarinnar, sem kjarna okkar trúarboðskapar.
Árið 1994, ári áður en yfirlýsingin var birt, ræddi Tólfpostulasveitin um það hvernig samfélög og stjórnvöld væru að hverfa frá lögum Guðs varðandi fjölskyldu, hjónaband og kyn. „En þetta var ekki það eina sem við sáum fram á,“ útskýrði Russell M. Nelson forseti síðar meir. „Við sáum tilburði hinna ýmsu samfélaga til að eyða öllum reglum og mörkum kynlífs. Við sáum rugling kynjanna. Við sáum fram á þetta allt.“
Hinir Tólf ákváðu að búa til skjal, opinbera yfirlýsingu, sem væri samantekt á afstöðu kirkjunnar til fjölskyldunnar. Það ár undirbjuggu þessir postular, sjáendur kallaðir af Guði, yfirlýsingu um fjölskylduna. Dallin H. Oaks forseti minntist þess að þeir hefðu í bænaranda leitað til Drottins varðandi „hvað ætti að koma fram og hvernig [þeir ættu] að orða það“. Þeir kynntu hana Æðsta forsætisráðinu: Howard W. Hunter forseta, Gordon B. Hinckley forseta og Thomas S. Monson forseta til umfjöllunar.
Aðeins nokkrum mánuðum síðar, í mars 1995, lést Hunter forseti og Hinckley forseti varð 15. forseti kirkjunnar. Yfirlýsingin var nú komin í hans hendur. Hvenær væri rétti tíminn til að birta kirkjunni þessa yfirlýsingu? Það gerðist sex mánuðum síðar.
Nokkrum dögum fyrir aðalfund Líknarfélagsins, 23. september, sem var haldinn fyrir aðalráðstefnuna, áttu Hinckley forseti og ráðgjafar hans fund með aðalforsætisráði Líknarfélagsins. Systurnar, líkt og postularnir, höfðu vegið og metið áhyggjur af konum og fjölskyldum. Á komandi fundi hugðust þær leggja áherslu á fjölskyldur.
Hinckley forseti átti að ávarpa konurnar á samkomunni. Hann hafði verið að ígrunda í hvaða átt hann ætti að beina orðum sínum. Þegar leið á umræðurnar, vísaði hann með nafni í hina nýgerðu yfirlýsingu, sem enn var óútgefin, sem „Fjölskyldan: Yfirlýsing til heimsins“. Var kvennafundurinn rétti staðurinn til að birta þessa afgerandi yfirlýsingu um fjölskylduna?
Elaine Jack aðalforseti Líknarfélagsins útskýrði síðar: „Við vissum ekki hvað yfirlýsingin um fjölskylduna var á þeim tíma. … [Við] gátum gefið okkur það út frá titlinum, en okkur fannst að hvað sem varðaði fjölskylduna … yrði jákvætt. … Ég var mjög viss um að meðlimir Tólfpostulasveitarinnar væru að meðtaka opinberun.“
Fundur Líknarfélagsins þennan laugardag var sögulegur. Hinckley forseti kynnti fjölskylduyfirlýsinguna með þessum mikilvægu orðum: „Með alla þá rökvillu sem sett er fram sem sannleikur, með svo mikla blekkingu varðandi staðla og gildi, með hinu mikla aðdráttarafli og freistingu til að óhreinkast hægfara af heiminum, höfum við fundið okkur knúna til að setja fram viðvörun varðandi … staðla, kenningu og verklag í tengslum við fjölskylduna, sem spámenn, sjáendur og opinberarar þessarar kirkju hafa síendurtekið bent á gegnum sögu hennar.“
Hann las síðan yfirlýsinguna í heild sinni. Eins og Drottinn hefur sagt: „Hvort sem það er sagt með minni eigin rödd eða með rödd þjóna minna, það gildir einu.“
Í yfirlýsingunni segir: „Fjölskyldan er vígð af Guði.“ Ég hrífst af skýrleika þessara orða. Yfirlýsingin er ákall til okkar um að lifa í jarðlífinu, ávallt meðvituð um guðleikann innra með okkur og hina eilífu framtíð sem fram undan er. Nelson forseti kenndi: „Þið eruð bókstaflega andabörn Guðs. Velkist ekki í vafa um það: Möguleikar ykkar eru guðlegir. Með kostgæfinni leit, mun Guð veita ykkur leiftursýn af því hver þið gætuð orðið.“
Þegar hún var sett fram, samræmdist yfirlýsingin ekki sjónarmiðum margra í heiminum. Ekki þá. Ekki núna. Til eru þeir sem eru ósáttir við yfirlýsinguna um fjölskyldu, hjónaband og kyn. Sumir leggja til að kirkjan dragi hana til baka, endurskoði hana eða leggi hana jafnvel til hliðar.
Eins og Hinckley forseti sagði, kæru bræður og systur, þá er yfirlýsingin um fjölskylduna kenning. Þessar reglur eru ekki úr takti, heldur fullkomlega samstíga leiðum Drottins og sáttmálsvegi hans. Kenningar yfirlýsingarinnar opinberaði Drottinn okkar, Jesús Kristur, postulum sínum þá og nú. Þetta er hans kirkja. Hann hefur grundvallað sannleikann sem við lifum eftir.
Sum ykkar gætu hugleitt yfirlýsinguna og sagt: „Þetta er ekki að virka fyrir mig.“ „Þetta virðist ónærgætið.“ „Fjölskyldan mín lítur ekki svona út.“ „Ég passa ekki í þetta.“
Þau sem hafa áhyggjur, vitið að þið eruð börn himneskra foreldra, þið eruð hluti af fjölskyldu himnesks föður. Enginn þekkir ykkur betur eða þykir vænna um ykkur en hann. Snúið ykkur til hans, úthellið hjarta ykkar fyrir honum, treystið honum og loforðum hans. Þið eigið fjölskyldu í frelsara ykkar, Jesú Kristi, sem elskar ykkur. Hann kom til jarðar til að friðþægja fyrir syndir okkar og bera byrði mistaka okkar og mjög slæmra daga. Hann skilur það sem þið standið frammi fyrir og hvernig ykkur líður. Snúið ykkur til hans, treystið því að hann muni senda heilagan anda til að vera með ykkur, lyfta ykkur og leiða. Skynjið elsku þeirra, sem „breiðir úr sér í hjörtum mannanna barna, hún er … eftirsóknarverðust af öllu … [og] færir sálinni mesta gleði“.
Allir postular Drottins elska ykkur einlæglega. Við biðjum fyrir ykkur og leitum leiðsagnar Drottins fyrir ykkur. Dveljið með okkur. Þið lifið á erfiðum tímum, er andstæðingurinn leitast við að gera ykkur að sínum. Látið ekki leiðast af braut. Og ef svo gerist, komið þá aftur. Faðmur okkar nær til ykkar, eins og annarra sem elska ykkur.
Yfirlýsingin segir: „Foreldrar hafa þá helgu skyldu að ala börn sín upp í kærleika og réttlæti.“ Mormónsbók er annað vitni um þennan sannleika. Í fyrsta versi, fyrsta kapítula, lesum við: „Ég, Nefí, er af góðum foreldrum kominn.“ Hve mörg okkar hafa byrjað á Mormónsbók – og byrjað aftur og aftur – og í leiðinni lært þessi orð utanbókar? Festið þau í hjarta ykkar.
Ein af uppáhalds setningum mínum í yfirlýsingunni er þessi: „Hamingju í fjölskyldulífi hljótum við fyrst og fremst þegar við byggjum á kenningum Drottins Jesú Krists.“
Hvern langar ekki til að vera hamingjusamur?
Og hverjar eru kenningar Jesú Krists? Aftur, í yfirlýsingunni: „Trú, bæn, iðrun, fyrirgefning, virðing, kærleikur, umhyggja, vinna og heilbrigð dægrastytting.“
Hvers líf verður ekki betra ef farið er eftir þessum lykilreglum? Ekkert okkar er að fara að gera þetta fullkomlega, en við getum fylgt viturlegum orðum Hinckleys forseta: „Gerið ykkar allra besta.“
Við lesum í yfirlýsingunni: „Feður [eiga] að vera í forsæti … í kærleika og réttlæti“ og „meginábyrgð mæðra er að annast börnin.“ Forsæti merkir ekki að stjórna og að annast er ekki annars stigs hlutverk. Guð hefur falið körlum og konum ólík en jöfn og nauðsynleg hlutverk sem bæta hvort annað upp.
Leyfið mér að deila persónulegri frásögn.
Ég og eiginkona mín lærðum að vinna betur í því að vera jafningjar, eftir að ég ákvað dag einn að taka mikilvæga ákvörðun, án samráðs við hana. Gjörðir mínar komu henni á óvart, komu henni í opna skjöldu og komu henni í mjög erfiðar aðstæður. Eftir á, setti hún hendur sínar á axlir mínar og sagði ákveðin: „Ron, gerðu mér þetta aldrei aftur.“ Við höfum nokkurn vegin verið á sömu blaðsíðu síðan.
Í fjölskylduyfirlýsingunni lesum við: „Feðrum og mæðrum beri skylda til að hjálpa hvort öðru sem jafningjar.“
Jafningjar er orð sem skiptir máli. Í áranna rás, er ég og systir Rasband höfum unnið saman að því sem yfirlýsingin segir vera okkar „helgu ábyrgð“, þá höfum við mótað hjónaband með jöfnu oki. Nú þegar öll börnin okkar eru gift, höfum ég og systir Rasband haldið áfram að leiðbeina þeim og mökum þeirra um það hvernig hægt er að vera jafningjar.
Þegar við lifum með einbeitt auglit á dýrð Guðs, virðum við hvert annað og styðjum hvert annað. Þessi guðlega fyrirmynd réttlætis leiðir til stöðugleika í okkar persónulega lífi, fjölskyldu okkar og samfélaginu.
Faðir okkar á himnum hefur séð okkur fyrir fjölskylduyfirlýsingunni til að leiða okkur heim til sín, hjálpa okkur að læra og fyllast kærleika, styrk, tilgangi og eilífum skilningi. Ég bið ykkur af öllu hjarta að lifa lífinu í návist hans og ástkærs sonar hans. Ég lofa, að er þið gerið það, mun andinn innblása og leiðbeina ykkur og hjálpa ykkur að skynja í hjarta ykkar þann frið þeirra sem er „æðri öllum skilningi“. Í nafni Jesú Krists, amen.