Inngangur
Við höldum nú áfram með þessa síðari aðalráðstefnu, eins og ráðgert var og með ræðumenn og tónlist eins og Nelson forseti hafði úthlutað, eftir margra mánaða undirbúning.
Kæru bræður og systur, við komum saman er við syrgjum andlát okkar ástkæra Russells M. Nelson forseta. Ég tala til ykkar sem forseti Tólfpostulasveitarinnar, og í þeirri stöðu hef ég þegar verið studdur í hverri deild okkar, stiku og á hverri ráðstefnu síðastliðin sjö og hálft ár.
Við höldum áfram með þessa síðari aðalráðstefnu, eins og ráðgert var og með ræðumenn og tónlist eins og Nelson forseti hafði úthlutað, eftir margra mánaða undirbúning. Einu viðbæturnar eru þessar inngangsútskýringar mínar og ræða mín í stað Nelsons forseta á lokahluta sunnudagssíðdegis.
Þetta er í fyrsta sinn í um 75 ár sem forseti kirkjunnar andast nokkrum dögum fyrir aðalráðstefnu. Það hefur orðið til þess að við þurfum að ráðgera hvernig við skipuleggjum að halda hina mikilvægu leiðtogafundi í tengslum við aðalráðstefnu og hluta aðalráðstefnunnar, jafnhliða því að skipuleggja útför hans eins fljótt og auðið er. Nelson forseti skildi gildi aðalráðstefnu til að veita hinum heilögu leiðsögn á komandi mánuðum. Við heiðrum hann með því að fylgja ráðgerðri ráðstefnuáætlun, sem hann skipulagði og samþykkti.
Á þessum sorgartímum höfum við þegar haft fund til að votta Russell M. Nelson forseta virðingu okkar fyrir aðalráðstefnusamkomur okkar og skipulögðum síðan jarðarför hans eins fljótt og auðið er eftir ráðstefnuna. Allt er þetta gert með samþykki fjölskyldu Nelsons forseta og Tólfpostulasveitarinnar.
Þar sem við öll, sem höfum fengið það verkefni að tala á aðalráðstefnu, hefðum viljað helga okkar úthlutaða tíma því að votta Nelson forseta persónulega virðingu, höfum við því beðið alla ræðumenn ráðstefnunnar að hafa lofsyrðin sem fæst og bíða með þau þar til útförin verður, sem við höfum þegar byrjað að skipuleggja.
Minn eigin stutti virðingarvottur – tilheyrilegur fyrir þessa ráðstefnu og lofgjörðin sem við höfum þegar látið í té – er þessi: Mér þótti vænt um Russell M. Nelson forseta og ég hef lært meira um fagnaðarerindið og hvernig vera á trúarlegur leiðtogi af langri vináttu minni og sambandi við hann, en af nokkrum öðrum leiðtoga sem ég hef þekkt persónulega. Hann er fyrirmynd okkar sem þjónn og fylgjandi Drottins Jesú Krists. Um þetta vitna ég, í nafni Jesú Krists, amen.