Mormónsbók – ómælanlegur fjársjóður á ferðalagi okkar
Þegar við endurnærumst af orðum Krists í Mormónsbók, mun andinn hjálpa okkur að skilja eilífan sannleika.
Munið þið þann tíma þegar einhver gaf ykkur gjöf sem breytti lífi ykkar? Í október eru 40 ár liðin frá því að ég fékk eina stærstu gjöf lífs míns. Þegar ég var í menntaskóla tók ég eftir því að einn bekkjarfélagi okkar geislaði ljósi sem var frábrugðið flestra hinna unglinganna. Ég naut þess að vera í kringum hann. Dag einn sagði hann mér að hann væri meðlimur Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu. Hann bauð mér síðan gjöf: eintak af Mormónsbók. Hann bauð mér að lesa nokkrar blaðsíður og hitta tvo vini sem gætu svarað spurningum mínum. Þessir vinir voru trúboðarnir.
Þegar ég hitti trúboðana kenndu þeir mér kenningu Krists og buðu mér að fylgja hvatningu spámannsins Morónís: „Og þegar þér meðtakið þetta, þá hvet ég yður að spyrja Guð, hinn eilífa föður, í nafni Krists, hvort þetta er ekki sannleikur. Og ef þér spyrjið í hjartans einlægni, með einbeittum huga og í trú á Krist, mun hann opinbera yður sannleiksgildi þess fyrir kraft heilags anda“ (Moróní 10:4).
Ég las nokkrar síður í Mormónsbók og baðst fyrir. Þótt ég hefði enn ekki haft djúpan skilning á öllu því sem trúboðarnir kenndu mér, fann ég í hjarta mínu að það sem ég var að lesa var gott og væri frá Guði. Ég fékk staðfestinguna á loforði Morónís: „Fyrir kraft heilags anda getið þér fengið að vita sannleiksgildi allra hluta“ (Moróní 10:5).
Eftir að ég skírðist í Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu, reyndu nokkrir félagar að sannfæra mig um að ég hefði tekið ranga ákvörðun. En í hvert sinn sem ég stóð frammi fyrir slíkum efasemdum eða mótlæti, fékk ég endurnýjaða staðfestingu með því að nema ritningarnar og biðja fyrir því að ég héldist trúfastur sáttmálunum sem ég hafði gert við Guð. Frá þeim tíma hefur Mormónsbók verið förunautur minn og hefur orðið mér ómælanlegur fjársjóður í mínu jarðneska ferðalagi.
Mormónsbók er meira en bara bók. Hún er annað vitni um Jesú Krist, skrifuð af mörgum fornum spámönnum með anda spádóms og opinberunar.
Merkasti viðburðurinn sem skráður er í Mormónsbók, er persónuleg þjónusta Drottins Jesú Krists meðal Nefítanna fljótlega eftir upprisu hans. Mormónsbók „setur fram kenningar fagnaðarerindisins, skýrir sáluhjálparáætlunina og segir mönnum hvað þeir þurfi að gera til að öðlast frið í þessu lífi og eilíft hjálpræði í hinu komanda“ (formáli Mormónsbókar).
Fyrsta útgáfa Mormónsbókar: Annars vitnis um Jesú Krist, var gefin út í litlum bæ í New York-fylki í mars 1830. Spámaðurinn Joseph Smith var einungis 23 ára þegar hann lauk þýðingu bókarinnar árið 1829. Hann þýddi nánast alla bókina á innan við 75 dögum og prentferlið tók um sjö mánuði.
Í dag þjóna um 80.000 fastatrúboðar í yfir 150 löndum sem sjálfboðaliðar og helga líf sitt því að bera vitni um að Mormónsbók sé sönn og að hún beri vitni um Jesú Krist.
Á síðasta námskeiði fyrir nýja trúboðsleiðtoga, í júní á þessu ári, miðlaði Russell M. Nelson forseti, máttugum vitnisburði sínum um Mormónsbók: „Mormónsbók er orð Guðs. Hún kennir kenningu Krists og útskýrir meira um friðþægingu frelsarans en nokkur önnur bók gerir.“
Ég vil leggja fram þrjár ábendingar sem geta stuðlað að auknum trúarlegum viðsnúningi okkar til Jesú Krists með námi í Mormónsbók:
1. Verið kostgæfin og stöðug í daglegu námi ykkar
Á sama hátt og Alma og synir Mósía, þurfum við að „kynna [okkur] ritningarnar af kostgæfni til þess að öðlast þekkingu á orði Guðs“ og styrkjast í sannleikanum (Alma 17:2).
Þegar við þjónuðum sem trúboðsleiðtogar í Atlanta-trúboðinu í Georgíu, hvöttum ég og eiginkona mín alla trúboða til að læra Mormónsbók í hið minnsta 30 mínútur á dag. Þessi skuldbinding jók trú okkar og hjálpaði okkur að leita eftir og búast við kraftaverkum.
Mögulegt er að við höfum ekki sama tíma til ráðstöfunar eftir trúboðið til daglegs ritningarnáms, en ég lofa því að ef þið forgangsraðið einlæglega daglegum lestri á Mormónsbók í bænaranda, munið þið finna aukinn andlegan styrk og traust á Drottin og loforð hans.
2. Gerið nám ykkar innihaldsríkara með því að endurnærast af orði Krists
Nefí kenndi: „Endurnærist af orðum Krists. Því að sjá. Orð Krists munu segja yður að fullu, hvað yður ber að gjöra“ (2. Nefí 32:3).
Að endurnærast táknar meira en bara að lesa – það merkir að njóta, ígrunda og tileinka sér. Þegar þið lærið í Mormónsbók, íhugið þá hvernig þið getið gert ritningarnám ykkar innihaldsríkara. Dæmi:
-
Notið námsgögn sem eru fáanleg í Gospel Library-appinu.
-
Berið kennsl á eilífan sannleika sem hjálpar okkur að skilja áætlun Guðs og fær okkur til að gera og halda sáttmála við himneskan föður okkar.
-
Merkið mikilvæg orðtök og skráið hughrif ykkar til að varðveita það sem þið lærðuð í náminu.
Mormónsbók hefur kraftinn til að svara spurningum sálar okkar. Eins og Nefí sagði, ættum við að tileinka „okkur allar ritningargreinarnar, svo að þær yrðu okkur til gagns og fróðleiks“ (1. Nefí 19:23).
Er við endurnærumst af orði Krists, mun það opna dyr opinberunar og sýna okkur hvað við þurfum að gera við hinar ýmsu aðstæður lífs okkar til að komast nær honum.
3. Gefið vitnisburð ykkar um sannleiksgildi Mormónsbókar
Á sama hátt og Lehí þráði að deila ávexti lífsins trés með fjölskyldu sinni (sjá 1. Nefí 8:12), þá þróum við með okkur þrá til að miðla gleðinni sem felst í því að þekkja fagnaðarerindi Jesú Krists þegar við öðlumst vitnisburð um Mormónsbók.
Einn trúboða okkar, systir Benson, sem er á þessum ráðstefnuhluta með okkur, sagði mér frá þrá sinni að hjálpa ungum bróður sínum. Á þeim tíma var hann að búa sig undir að fara í háskóla og var ekki viss með það að þjóna í trúboði. Mér fannst ég knúinn til að bjóða systur Benson að lesa Mormónsbók á fyrstu fjórum mánuðum trúboðs hennar, merkja við eftirlætis versin sín og senda síðan bróður sínum það eintak.
Systir Benson sendi hið merkta eintak Mormónsbókar og bauð bróður sínum að lesa í henni á hverju kvöldi. Hún sagði mér síðar: „Áður en ég fór í trúboð var bróðir minn ekki viss um hvort hann vildi þjóna í fastatrúboði. Smám saman, er hann las Mormónsbók, fann hann aukna gleði í lífi sínu og tók að hugleiða að þjóna í trúboði.“
Tveimur vikum áður en systir Benson lauk trúboði sínu, hlaut bróðir hennar trúboðsköllun sína. Hann þjónar nú í Tuxtla Gutiérrez-trúboðinu í Mexíkó. Fyrir tilstilli Mormónsbókar fór öldungur Benson að sjá líf sitt með andlegum skírleika, sem leiddi til þjónustu við Drottin og að treysta því að allt myndi ganga upp. Sú ákvörðun var kraftaverk – vegna áhrifanna frá krafti orða Krists.
Ástkæru bræður mínir og systur, ég hvet ykkur öll til að auka skilning ykkar á Mormónsbók. Ég veit að þegar við endurnærumst á orðum Krists sem finna má í Mormónsbók, mun andinn hjálpa okkur að skilja eilífan sannleika og miðla vitnisburði okkar af sannfæringu með þeim sem Drottinn hefur undirbúið að hlýða á boðskap sinn. Drottinn sagði: „Mínir kjörnu heyra raust mína og herða eigi hjörtu sín“ (Kenning og sáttmálar 29:7). Ég ber vitni um að þau sem biðja Guð í trú munu öðlast vitnisburð um sannleiksgildi og guðleika Mormónsbókar fyrir kraft heilags anda. Um þetta vitna ég í nafni Jesú Krists, amen.