Auðfús krýp altarið við
Þegar við gerum og heiðrum sáttmála okkar, bindumst við frelsaranum og öðlumst meiri aðgang að miskunn hans, vernd, helgun, lækningu og hvíld.
Þakka ykkur, í kórnum, fyrir vitnisburðinn sem þið tjáið með þessum sálmi.
Hinn nýi sakramentissálmur „Lífsins brauð, lífsins vatn“ fyllir sál mína. Ein lína sálmsins segir: „Sáriðrandi þér ég færi sundurkramið hjarta mitt.“
Skilningur minn á þessum orðum dýpkaði stuttu eftir að fjölskylda okkar fór frá Newbury Park í Kaliforníu, til að þjóna í Ogden-trúboðinu í Utah árið 2015. Ég fékk boð um að skoða Hill-flugherstöðina í Layton í Utah. Ég hafði aldrei komið á herstöð, né hafði ég hitt herprest eða karla og konur sem vinna að því að tryggja öryggi og vernd landsins síns.
Herpresturinn Harp, líkt og þúsundir annarra sjálfboðaliða- og atvinnupresta sem þjóna í fangelsum, sjúkrahúsum og herstöðvum um allan heim, veitti mér innblástur og uppörvun. Síðasta stoppistöð okkar á herstöðinni var helgidómurinn. Ég spurði herprestinn hvort hann sæi um guðsþjónustur fyrir alla sem vildu íhuga, biðja, hugleiða og tilbiðja. Hann gekk að framhlið kapellunnar og dró fram kross aftan við gluggatjöldin. Hann sagðist hafa notað krossinn í guðsþjónustum mótmælenda og kaþólikka. Ég spurði hvað hann notaði fyrir gyðingabræður okkar og systur og hann fór hinum megin á framhliðinni og dró upp Davíðsstjörnu.
Ég spurði þá: „Hvað gerir þú fyrir þjónustu Síðari daga heilagra?“ Hann ýtti þessum táknum frá sér og benti á stóra tréaltarið í miðjum helgidóminum. Hann sagði að meðlimir Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu tækju til sakramentið og blessuðu brauðið og vatnið á altarinu. Ég spurði hvort hið stóra altarið, sem virtist fast, hefði verið fjarlægt fyrir guðsþjónustur gyðinga, múslima, kaþólskra eða mótmælendabræður okkar og systur. Hann sagði altarið vera fast, því nokkur af þessum trúarbrögðum nota altarið einnig á einhvern hátt.
Abraham reisti altari, batt Ísak og var tilbúinn að fórna einkasyni sínum, en hönd hans stöðvaðist og hann lýsti yfir, eins og Drottinn hefur lýst yfir: „Hér er ég.“ Hversu oft hefur hinn mikli Ég er eða einn af spámönnum hans boðið sig fram: „Hér er ég“?
Í fjallræðu sinni bauð frelsarinn okkur að sættast við bræður okkar og systur áður en við nálgumst altarið. Páll kenndi að við erum „helguð“ við altarið með friðþægingarfórn Jesú Krists.
Spámaðurinn Lehí „yfirgaf hús sitt … og aðrar dýrmætar eigur. … [og] svo bar við að hann reisti altari, … færði Drottni fórn … og flutti Drottni Guði vorum þakkir.“
Biblían og Mormónsbók kenna okkur að tilbiðja son Guðs við altari. Hvers vegna?
Okkar fyrstu foreldrar, Adam og Eva, byggðu og tilbáðu við altari. Eftir að þeim hafði verið úthýst úr Edensgarðinum og þau höfðu tilbeðið í „marga daga“, birtist engill og spurði hjartnæmrar spurningar: „Hvers vegna færir þú Drottni fórnir?“
Adam svaraði: „Ég veit það ekki.“
Viðbrögð engilsins við auðmjúkri játningu Adams eru ótrúleg: „Þetta er í líkingu fórnar hins eingetna föðurins. … Þess vegna skalt þú gjöra allt, sem þú gjörir, í nafni sonarins, og þú skalt iðrast og ákalla Guð í nafni sonarins að eilífu.“
Sakramentisborðið og altarið í musterinu tákna fórn Jesú Krists og óendanlega friðþægingu hans.
Þegar við gerum og heiðrum sáttmála okkar, meðtökum helgiathafnir sakramentisins í kirkjunni og musterisgjöfina og innsiglunina, tengjumst við frelsaranum og hljótum aukinn aðgang að miskunn hans, vernd, helgun, lækningu og hvíld.
Miskunn og vernd í gegnum sáttmála.
Sem 15 ára ungur maður man ég eftir að hafa spurt pabba hvort ég mætti sleppa sakramentissamkomunni – bara einn sunnudag í janúar vegna sérstaks amerísks fótboltaleiks. Hann sagði að ég væri nógu gamall til að taka þá ákvörðun sjálfur og bað mig að íhuga eina ráðleggingu. Hann sagði: „Ef þú velur að sleppa sakramentissamkomu einu sinni, verður það auðveldara að sleppa henni aftur.“
Ef frelsarinn er sá sem sameinar, þá er andstæðingurinn sá sem sundrar. Satan freistar okkar til að færa okkur frá okkar helguðu tilbeiðslustöðum og frá vernd Jesú Krists. Þegar við tilbiðjum frelsarann fyllumst við „krafti til að fara á móti hinum náttúrlega, veraldlega straumi“. Þegar við verjum tíma í samfélagi við hann, höfum við loforð um að geta „frelsast frá Satan“. „Þegar við síðan höldum sáttmála okkar, gæðir hann okkur sínum … styrkjandi mætti.“ Ó, hve ég met mikils þá reynslu að eiga samskipti við frelsarann í gegnum sáttmála sem gerðir eru við heilög altari.
Að byggja upp skilning á eilífri friðþægingu frelsarans, orð á orð ofan og setning á setning ofan, veitir andlega bólusetningu gegn vélabrögðum óvinarins. Ungi öldungurinn Jaggi í Mexíkó, Zuster Jaggi í Belgíu og aðrir trúboðar um allan heim, eru mun líklegri til að sjá vini sína gera tilkall til blessana skírnar og að meðtaka gjöf heilags anda, ef vinir þeirra sækja sakramentissamkomu innan fyrstu vikunnar eftir að þeir hafa haft samband.
Ungt fólk í Tonga eða Samóa er mun líklegra til að vera innsiglað í húsi Drottins ef það hefur undirbúið sig fyrir og hlotið musterisgjöf sína stuttu eftir útskrift úr skóla. Í musterisgjöfinni eru meðlimir hvattir til að lifa eftir, hlýða og halda fimm lögmál sem veita þeim kraft og vernd. Þegar við gerum sáttmála við Drottin, myndast gagnkvæmt samband. Við sýnum honum hollustu okkar og kærleika. Styrkur okkar og kraftur vaxa með sérhverju loforði sem gert er og haldið.
Ígrundun og helgun
Þegar við krjúpum auðmjúklega og táknrænt við altari Drottins, þá er það tækifæri til íhugunar, að „láta af hroka [okkar,] … auðmýkja [okkur] fyrir Guði“. Áður en ég fór út með vinum mínum sem unglingur sagði móðir mín oft: „Mundu hver þú ert og láttu endilega vita þegar þú kemur heim.“ Sum kvöld lét ég ekki vita vegna þess að ég kom of seint heim. Ég sé eftir því að hafa misst af þessum mikilvægu augnablikum með mömmu.
Í dag hlakka ég til slíkra stunda með himneskum föður. Þegar ég krýp í bæn, við hliðina á rúminu mínu eða saman með fjölskyldunni, sé ég fyrir mér sjálfan mig krjúpa við altarið, hugleiða og skoða líf mitt. Ég hugsa um sakramentið, jafnvel heila brauðið, brotið og rifið niður í bita fyrir okkur, sem hver og einn er tákn um brotinn líkama frelsara okkar. Þetta minnir mig á kennslu Dallins H. Oaks forseta um að „hver brauðbiti sé einstakur, rétt eins og einstaklingarnir sem neyta hans eru einstakir“. Þegar ég krýp í bæn hugsa ég um hvernig ég get gefið Guði vilja minn.
Öldungur David A. Bednar kenndi: „Helgiathöfn sakramentisins er heilagt og endurtekið boð um að iðrast einlæglega og til að endurnýjast andlega. Sú athöfn að meðtaka sakramentið, ein og sér, fyrirgefur ekki syndir. Ef við hins vegar undirbúumst samviskusamlega og tökum þátt í þessari helgiathöfn með sundurkramið hjarta og sáriðrandi anda, lofar Drottinn að við getum ætíð haft anda Drottins með okkur. Og með hreinsandi krafti heilags anda, sem stöðugan förunaut, getum við ætíð viðhaldið fyrirgefningu synda okkar.“
Þegar ég og Amy lítum náið á lífsreynslu okkar, fögnum við gjöf fullkomins kærleika og fórnar Jesú Krists. Við sjáum líka hvernig heift vítis hefur lausan taum. Hvernig getum við sigrast á fordómum, kvíða, þunglyndi, krabbameini, sykursýki, neteinelti, stolinni sjálfsmynd, glötuðum meðgöngum og missi barns, bróður og föður? Vegna þess að Jesús drakk af hinum hryllilega beiska bikar, bikar heiftar – fyrir mig, fyrir fjölskyldu mína, fyrir okkur öll!
Gethsemane, eftir Adam Abram, með góðfúslegu leyfi altusfineart.com © 2025
Hinn „beiski bikar“ sem hann drakk af í Getsemanegarðinum og þjáningar hans sem „mögnuðust“ á krossinum á Golgata, gera okkur mögulegt að leggja hið brotlega, hið heiftúðlega og hið hryllilega á altari Drottins og láta „helgast fyrir móttöku heilags anda“, alltaf.
Systir Patricia Holland sagði: „Innilegasta bæn mín fyrir ykkur og mig í dag er að við gefumst honum algjörlega, leggjum okkur á altari loforða og friðar Guðs, hvar sem við erum stödd og hvað sem við höfum gert.“
Staður hvíldar og öryggis
Þegar við komum að altarinu erum við ekki að vinna okkur inn umbun; við erum að læra um gjafarann. Í þeim lærdómi og sáttmálsbindingu er að finna lækningu. Nefí sagði: „Hann hefur fyllt mig elsku sinni, jafnvel uns mér fannst sem hold mitt brynni.“ Og okkar elskaði frelsari bauð: „Viljið þér nú ekki snúa til mín og iðrast synda yðar og snúast til trúar, svo að ég megi gjöra yður heila?“
Þegar elstu tvær dætur mínar, Mackenzie og Emma, voru litlar, var ein af uppáhaldssögum þeirra Ævintýralandið Narnía: Ljónið, nornin og skápurinn. Við urðum öll hugfangin af hinu mikla ljóni, Aslan. Eitt eftirminnilegasta kvöldið okkar við lestur bókarinnar, var þegar hið mikla ljón gaf líf sitt fyrir Játvarð. Eftirminnilegt, því foreldrar og dætur felldu tár þegar líf ljónsins var tekið á steinborðinu af hvítu norninni. Eftirminnilegt, því vonin hélst, þrátt fyrir harmleikinn, þar til hið stórkostlega gerðist. Gleðióp ómuðu í litla svefnherberginu þegar Aslan reis upp frá dauðum og sagði: „[Ef nornin vissi hina sönnu merkingu fórnar], … þá hefði hún vitað, að [ef] gengi fórnarlamb sjálfviljugt í dauðann, … saklaust fórnarlamb [dæi] í stað svikara, þá myndi [steinborðið] klofna og dauðinn sjálfur verða áhrifalaus.“
Jesús Kristur læknar öll sár. Jesús Kristur gerir það mögulegt að lifa aftur.
Í ræðu sinni á aðalráðstefnu í október 2022, sagði Russell M. Nelson forseti frá hópi ferðamanna sem kom á opið hús í musteri. Ungur drengur var þar. Nelson forseti kenndi:
„Þegar hópurinn kom inn í musterisgjafasalinn, benti drengurinn á altarið, þar sem fólk krýpur til að gera sáttmála við Guð, og sagði: ‚Ó, þetta er huggulegt. Á þessum stað getur fólk hvílt sig á musterisferðalagi sínu.‘
… Hann hafði líklega ekki hugmynd um hin beinu tengsl á milli þess að gera sáttmála við Guð í musterinu og þessa dásamlega loforðs frelsarans:
‚Komið til mín, öll þér sem erfiðið og þunga eruð hlaðin, og ég mun veita yður hvíld.
Takið á yður mitt ok og lærið af mér … og þá munuð þér finna hvíld sálum yðar.
Því að mitt ok er ljúft og byrði mín létt‘ [Matteus 11:28–30].“
„Mannssonurinn á hvergi höfði sínu að halla,“ samt bauð hann lærisveinum sínum að sakramentisborðinu til að hvílast þar með sér. Þegar „auðmjúkar sálir krjúpa við altari“ ríkir friður. Armar frelsara okkar eru útréttir, borð hans yfirfullt. Komið og tilbiðjið son Guðs við hans helgu altari. Í nafni Jesú Krists, amen.