Ritningar
Moróní 5


5. Kapítuli

Aðferðin við að þjónusta sakramentisvínið. Um 401–21 e.Kr.

1 Aðferð við að blessa vínið — Sjá. Þeir tóku bikarinn og sögðu:

2 Ó Guð, eilífi faðir, við biðjum þig, í nafni sonar þíns, Jesú Krists, að blessa og helga þetta vín fyrir sálir allra þeirra er af því drekka; að þau megi gera það í minningu um blóð sonar þíns, sem úthellt var fyrir þau; að þau megi vitna fyrir þér, ó Guð, eilífi faðir, að þau hafi hann ávallt í huga, svo að þau megi hafa anda hans með sér. Amen.