1. KapítuliJakob og Jósef reyna að fá menn til að trúa á Krist og halda boðorð hans — Nefí deyr — Ranglæti ríkir meðal Nefíta. Um 544–421 f.Kr. 2. KapítuliJakob fordæmir ást á auðæfum, hroka og óskírlífi — Menn mega leita auðæfanna til að hjálpa meðbræðrum sínum — Drottinn býður að engir menn á meðal Nefíta megi eiga fleiri en eina eiginkonu — Drottinn hefur velþóknun á hreinleika kvenna. Um 544–421 f.Kr. 3. KapítuliHinir hjartahreinu hljóta hið hugljúfa orð Guðs — Réttlæti Lamaníta meira en Nefíta — Jakob varar við saurlífi, losta og hvers kyns synd. Um 544–421 f.Kr. 4. KapítuliAllir spámennirnir tilbáðu föðurinn í nafni Krists — Fórn Abrahams á Ísak er hliðstæða við Guð og hans eingetna son — Menn ættu að leita sátta Guðs með friðþægingunni — Gyðingarnir munu hafna bjarginu, hinni traustu undirstöðu. Um 544–421 f.Kr. 5. KapítuliJakob vitnar í Senos varðandi líkinguna um ræktuðu og villtu olífutrén — Þau eru í líkingu Ísraels og Þjóðanna — Tvístrun og samansöfnun Ísraels er fyrirboðuð — Óbein tilvísun til Nefíta og Lamaníta og allrar Ísraelsættar — Þjóðirnar munu græddar á Ísrael — Að endingu verður víngarðurinn brenndur. Um 544–421 f.Kr. 6. KapítuliDrottinn mun endurheimta Ísrael á síðustu dögum — Veröldin mun brenna í eldi — Menn verða að fylgja Kristi til að forðast díki elds og brennisteins. Um 544–421 f.Kr. 7. KapítuliSerem afneitar Kristi, deilir við Jakob, heimtar tákn og er lostinn af Guði — Allir spámennirnir hafa talað um Krist og friðþægingu hans — Nefítar voru sem ferðalangar, fæddir í andstreymi og fyrirlitnir af Lamanítum. Um 544–421 f.Kr.