Aðalráðstefna
Áhrifamáttur þess að þjóna hinum eina
Aðalráðstefna október 2025


10:27

Áhrifamáttur þess að þjóna hinum eina

Þegar við þjónum hinum eina, bjóðum við hinum eina að koma til Krists og tilbiðja í húsi Drottins.

Systur og bræður, þakka ykkur fyrir trúfasta hollustu ykkar við að koma til Jesú Krists á þessum krefjandi tímum. Þið eruð dásamleg; þið eruð falleg; sérhvert ykkar er barn Guðs. Ég bið þess að við finnum fyrir áhrifum heilags anda er við verðum og hjálpum hvert öðru að verða sannlega trúfastir lærisveinar Jesú Krists og upplifum gleði hans, er við tilbiðjum í húsi Drottins.

Russell M. Nelson forseti hefur lýst yfir: „Nú er tíminn fyrir ykkur og fyrir mig að búa okkur undir síðari komu Drottins okkar og frelsara, Jesú Krists. Nú er tíminn fyrir okkur að hafa lærisveinshlutverkið í algjöru fyrirrúmi. Hvernig getum við gert þetta í heimi sem er fullur af svimandi truflunum?“

Hann veitti svarið: „Reglubundin tilbeiðsla í musterinu mun hjálpa okkur. Í húsi Drottins einblínum við á Jesú Krist. … Við tökum að þekkja hann. … Sérhver einlægur leitandi Jesú Krists mun finna hann í musterinu.“

Hvernig verðum við þá og hjálpum hvert öðru að verða trúfastir lærisveinar Jesú Krists? Við þjónum hinum eina. Hirðisþjónusta að hætti frelsarans felur í sér samúð, góðvild, þolinmæði og kærleika, án þess að dæma. Þegar við þjónum hinum eina, bjóðum við hinum eina að koma til Krists og tilbiðja í húsi Drottins, til að meðtaka af endurlausnarkrafti hans. Með öðrum orðum, við hjálpum hvert öðru að verða sannir lærisveinar er við þjónum hinum eina á þann hátt sem leiðir viðkomandi til húss Drottins.

Við lærum af Jesú Kristi um áhrifamátt þess að þjóna hinum eina af kærleika, án þess að dæma. Þið munið eftir samversku konunni við brunninn. Konunni gæti hafa fundist hún vera lítils metin, ein, vonlaus og óséð. Henni gæti hafa fundist hún ekki tilheyra. Í gegnum lífið hafði hún átt fimm eiginmenn og maðurinn sem hún bjó með var ekki eiginmaður hennar. Aðrir gætu hafa fellt ranglátan dóm, án þess að þekkja aðstæður hennar. Þetta gæti verið ein ástæða þess að hún kom ein að brunninum á heitasta hluta dagsins. Hún var þó ein af þeim fyrstu sem Jesús Kristur lýsti yfir við að hann væri Messías. Í hans augum var hún dóttir Guðs.

Jesús Kristur kenndi þessari konu að fyrir hans milligöngu væri hægt að hljóta eilíft líf með því að teyga af hinu lifandi vatni. Hann lýsti yfir: „Hvern sem drekkur af vatninu er ég gef honum mun aldrei þyrsta … því vatnið, sem ég gef, … verður … að lind sem streymir fram til eilífs lífs.“

Konan frá Samaríu skynjaði elsku frelsarans og hlaut vitni með andanum um að hann væri Messías. Eftir þetta vitni, sneri hún aftur til borgarinnar, bauð öðrum að koma og sjá og margir trúðu því að Jesús væri „sannarlega [Kristur,] frelsari heimsins“. Kristur þjónaði hinum eina af kærleika; fyrir vikið urðu aðrir trúfastir lærisveinar hans.

Við lærum um áhrifamátt þess að þjóna hinum eina af samúð, af postulum Krists, Pétri og Jóhannesi. Þið munið eftir ákveðnum manni, lömuðum frá fæðingu, sem dag hvern lá við musterisdyrnar og bað um peninga. Þessum manni gæti hafa fundist hann vera lítils metinn, einmana, vonlaus og óséður. Honum gæti hafa fundist hann ekki tilheyra.

„Pétur sagði: ‚Silfur og gull á ég ekki en það sem ég hef, það gef ég þér: Í nafni Jesú Krists frá Nasaret, statt upp og gakk!‘“

Pétur tók í hægri hönd mannsins, reisti hann upp og maðurinn varð heill. Strax eftir kraftaverkið fór maðurinn inn í helgidóminn með Pétri og Jóhannesi „gekk um og stökk og lofaði Guð“. Pétur og Jóhannes þjónuðu hinum eina á þann hátt sem leiddi þann mann í hús Drottins og hann varð trúfastur lærisveinn Krists.

Kæru vinir, það hafa líka komið stundir í lífi mínu, þegar mér hefur fundist ég vera lítils metinn, einmana, vonlaus og óséður. Mér hefur fundist ég ekki tilheyra. Ég var skírður og staðfestur meðlimur Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu þegar ég var 19 ára gamall. Ári síðar, tók ég á móti köllun um að þjóna sem fastatrúboði, en það var margt sem ég hafði enn ekki lært um sögu kirkjunnar.

Snemma í trúboðsþjónustu minni lærði ég að á tímabili hefði þeim sem voru af svörtum, afrískum uppruna ekki verið leyft að njóta allra blessana tilbeiðslu í húsi Drottins. Þegar ég fyrst komst að þessu, vakti það mér reiði, óvissu, efa og ótta. Þessar tilfinningar voru svo sterkar að geta mín til að bera kennsl á heilagan anda hvarf um tíma.

Sem betur fer, átti ég dásamlegan trúboðsfélaga, Kevin Vick, sem þjónaði mér af kærleika, þolinmæði og góðvild. Á hverju kvöldi, er hann varð vitni að efasemdum mínum og óvissu, sagði hann einfaldlega við hinn unga öldung Johnson: „Ég elska þig.“ Eftir um tvær vikur, leyfði ég mér að finna fyrir elsku Kevins. Ég hlaut hugrekki til að biðjið daglega til himnesks föður í nafni Jesú Krists. Þegar ég baðst fyrir, laðaðist ég að kafla 6 í Kenningu og sáttmálum, versum 21–23, þar sem segir:

„Sjá, ég er Jesús Kristur, sonur Guðs. … Ég er ljósið sem skín í myrkrinu. …

Hugleiddu … nóttina, er þú ákallaðir mig í hjarta þínu til að fá að vita um sannleiksgildi þessara hluta.

Veitti ég þér ekki hugarró varðandi þetta? Hvaða stærri vitnisburð getur þú fengið en þann, sem frá Guði kemur?“

Þegar ég las, mundi ég eftir nokkru. Ég mundi eftir þeim degi er ég hafði fastað og beðist fyrir til að vita að Mormónsbók væri orð Guðs og að Joseph Smith væri spámaður endurreisnarinnar. Ég minntist sáttmálanna sem gerðir voru í húsi Drottins, sem tengja mig við Jesú Krist á svo persónulegan og náinn hátt. Ég skynjaði elsku frelsarans, miskunn hans og fullvissu um að Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu væri ríki hans á jörðu og nauðsynleg til að búa okkur undir síðari komu hans. Vegna þess að ég mundi eftir þessu, gat ég aftur þekkt heilagan anda og skilið betur að Jesús væri Kristur og að ég væri lærisveinn hans.

Stundum höfum við ósvaraðar spurningar og upplifum okkur lítils metin, vonlaus, einmana og óséð. Vinir mínir, við verðum þó að sækja fram í trú á Jesú Krist og muna eftir orðum hans:

„Hjarta yðar skelfist ekki.“

„Í heiminum hafið þér þrenging. En verið hughraustir. Ég hef sigrað heiminn.“

Ég er vitni þessa raunveruleika og um fyrirheitna blessun frelsarans.

Hvað getum við þá gert til að tryggja að þjónusta okkar við þann eina að hætti frelsarans verði sem árangursríkust? Að lifa eftir kenningu Krists mun hjálpa. „Að lifa eftir kenningu Krists,“ eins og Nelson forseti lýsti, „getur kallað fram öflugasta dyggðaferlið, sem skapar andlegan skriðþunga í lífi okkar.

Þegar við keppum að því að lifa eftir æðri lögmálum Jesú Krists, [mun] frelsarinn lyfta okkur ofar aðdráttarafli þessa fallna heims, með því að blessa okkur með meiri kærleika, auðmýkt, örlæti, góðvild, sjálfsaga, friði og hvíld.“

„[Þessi andlegi] skriðþungi, sem hlýst af því að lifa eftir kenningu Krists,“ eins og öldungur Dale G. Renlund útskýrir, „knýr ekki einungis fram breytingu á okkar guðlega eðli til okkar eilífu örlaga, heldur vekur líka hjá okkur þrá til að hjálpa [við að þjóna] öðrum á viðeigandi hátt.“ Öldungur Renlund minnir okkur á að „verk frelsarans er að lækna [að gera okkur heil]. Hlutverk okkar er að elska – að elska og þjóna á þann hátt að aðrir láti laðast að Jesú Kristi“.

Geta okkar til að lifa eftir kenningu Krists, mun aukast með daglegu námi í Mormónsbók og vikulegri meðtöku sakramentis. Nelson forseti hefur lýst yfir að Mormónsbók „kennir kenningu Krists … [og] veitir fyllsta og áreiðanlegasta og [skýrasta] skilninginn á friðþægingu Jesú Krists sem hægt er að finna nokkurs staðar“. Ég elska þessa bók. Og að meðtaka sakramentið vikulega í bænaranda í hverri viku, mun auka skilning okkar á friðþægingu Jesú Krists og veita okkur andlega endurnýjun, huggun og færa kraft guðleikans í líf okkar. Munið að „í helgiathöfnum [prestdæmisins] opinberast kraftur guðleikans“ og þessi kraftur, sem hlýst frá Jesú Kristi, styrkir þrá okkar og getu til að þjóna hinum eina.

Nám mitt í Mormónsbók og að meðtaka sakramentið, lágmarkar vanmáttartilfinningu, eflir staðfestu mína til að þjóna hinum eina að hætti frelsarans og hjálpar mér að hafa það í algjöru fyrirrúmi að vera lærisveinn.

Vinir mínir, ég lofa því, að er við lifum eftir kenningu Krists og þjónum hinum eina á þann hátt að það leiðir viðkomandi til húss Drottins, munum við sækja fram í trú á Jesú Krist, jafnvel mitt í ósvöruðum spurningum og tilfinningum um að vera lítils metin, einmana, vonlaus og óséð. Við munum bjóða hinum eina að koma til Jesú Krists og tilbiðja í húsi Drottins, að meðtaka af endurlausnarkrafti hans og elsku. Í húsi Drottins munum við „skynja miskunn [frelsarans]. [Við munum] finna svör við erfiðustu spurningum [okkar]. [Við munum] skilja betur gleði fagnaðarerindis hans“. Í nafni Jesú Krists, amen.

Heimildir

  1. Russell M. Nelson, „Drottinn Jesús Kristur mun koma aftur,“ aðalráðstefna, október 2024.

  2. Sjá Jóhannes 4:5–42.

  3. Sögulega séð, fóru flestir snemma morguns að Jakobsbrunni. Það var staður til að koma saman á og eiga samfélag hvert við annað. Samverska konan kom ein að Jakobsbrunni um miðjan dag er heitast var, á sjötta tímanum, sem er á hádegi. Að koma á þessum tíma, gæti gefið til kynna hvernig hún skynjaði hvað öðrum gæti hafa fundist um hana og hvað henni gæti hafa fundist um sig sjálfa.

  4. Jóhannes 4:13–14.

  5. Jóhannes 4:42.

  6. Sjá Postulasagan 3:1–11.

  7. Postulasagan 3:6.

  8. Sjá Postulasagan 3:7.

  9. Postulasagan 3:8.

  10. Ég var skírður og staðfestur sem meðlimur Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu í ágúst 1986. Frá ágúst 1987 til ágúst 1989, þjónaði ég sem trúboði í Birmingham-trúboðinu í Alabama.

  11. Sjá Church and Gospel Questions, „Race and The Church of Jesus Christ of Latter-day Saints,“ Gospel Library.

  12. Þessi reynsla er útskýrð nánar í ræðu Peters M. Johnson, „Applying Peter the Doctrine of Jesus Christ into Our Lives“ (trúarsamkoma í Brigham Young-háskóla, Idaho, 14. mars 2023), byui.edu.

  13. Kenning og sáttmálar 6:21–23.

  14. Jóhannes 14:27.

  15. Jóhannes 16:33.

  16. Kenning Krists samanstendur af fimm samtengdum þáttum: Trú á Drottin Jesú Krist og friðþægingu hans, iðrun, að taka á móti helgiathöfnum og heiðra sáttmála, verða helguð af heilögum anda og standast allt til enda. Trú á Drottin Jesú Krist er regla verka og guðlegs kraftar. Iðrun er að iðka trú á Krist með því að snúa hjarta okkar og sál til hans. Iðrun er ekki refsing. Hún er ferlið að fæðast andlega af Jesú og að ímynd hans greypist á svip okkar. Að taka á móti helgiathöfnum og heiðra sáttmála sem gerðir eru við Guð og Krist, veitir okkur aukinn aðgang að krafti þeirra og kærleika og gerir okkur kleift að helgast af heilögum anda. Síðasti þáttur kenningar Krists er að standast allt til enda, sem er að lifa eftir hverjum þætti kenningar Krists „stöðugt og endurtekið“, svo við getum vaxið að guðleika og hjálpað hvert öðru að verða sannir lærisveinar Jesú Krists og upplifa gleði hans, er við tilbiðjum í húsi Drottins (Dale G. Renlund, „Hið máttuga dyggðarferli kenninga Krists,“ aðalráðstefna, apríl 2024; sjá einnig Russell M. Nelson, „Sigrast á heiminum og finna hvíld,“ aðalráðstefna, október 2022).

  17. Russell M. Nelson, „Sigrast á heiminum og finna hvíld.“

  18. Dale G. Renlund, „Hið máttuga dyggðarferli kenninga Krists,“ skáletrað hér.

  19. Russell M. Nelson, „Mormónsbók: Hvernig væri líf þitt án hennar?,“ aðalráðstefna, október 2017.

  20. Kenning og sáttmálar 84:20.

  21. Russell M. Nelson, „Drottinn Jesús Kristur mun koma aftur,“ aðalráðstefna, október 2024.