Aðalráðstefna
Hin friðþægjandi elska Jesú Krists
Aðalráðstefna október 2025


14:33

Hin friðþægjandi elska Jesú Krists

Lækningu og fyrirgefningu má finna í fyllingu sinni í friðþægjandi elsku Jesú Krists.

Ég tjái elsku mína til Russells M. Nelson forseta og þakklæti mitt fyrir þau undraverðu áhrif sem hann hefur haft á hvert okkar. Ég þakka Guði líka fyrir hönd okkar allra, fyrir að varðveita og efla hið göfuga líf Dallins H. Oaks forseta.

Með hverju ári sem líður, finn ég fyrir meiri elsku til frelsara okkar, Jesú Krists, og miskunnsamrar friðþægingar hans. Æðsta fórn hans, að tryggja sigur yfir dauða og synd, er áhrifamesta framlag allrar mannkynssögunnar. Að skilja guðlega gjöf hans, er fyrir mig opin himnesk kennsla sem mun halda áfram handan grafar.

Drottinn Jesús Kristur

Hin máttuga samúð frelsarans við að fyrirgefa syndir og græða sár af völdum synda annarra, er undursamlegasta birtingarmynd elsku Guðs.

Ég vil bjóða þeim von sem leita fyrirgefningar vegna alvarlegra synda og veita þeim huggun sem leita sér lækningar eftir sársauka alvarlegra synda annarra.

Lækningu og fyrirgefningu má finna í fyllingu sinni í friðþægjandi elsku Jesú Krists.

Trú á Jesú Krist

Ef þið hafið drýgt alvarlegar syndir og eruð í iðrunarferlinu eða þráið að iðrast fyllilega og finna hina ólýsanlegu gleði fyrirgefningar, vitið þá að þetta kraftaverk bíður ykkar. Frelsarinn kallar látlaust: „Komið til mín.“

Að styrkja trú ykkar á frelsara okkar, Jesú Krist, mun glæða þrá sálar ykkar til að þekkja hann, trúa á hann og fela honum hjarta ykkar. Enos spurði um eigin fyrirgefningu: „Drottinn, hvernig má það vera?“ Drottinn svaraði: „Vegna trúar þinnar á Krist, sem þú hefur aldrei fyrr heyrt eða séð.“

Og Moróní bætti við: „Ef þér hafnið öllu óguðlegu og elskið Guð af öllum mætti yðar, huga og styrk, þá bregst yður eigi náð hans.“

Að snúa frá synd, snúa sér til Guðs og styrkja trú sína á Jesú Krist, er dásamleg byrjun. Að lúta vilja Guðs af auðmýkt, felur í sér að játa alvarlegar syndir fyrir biskupi ykkar eða greinarforseta, en fullnaðarfyrirgefning ykkar kemur frá frelsaranum. Fyrirgefning er guðleg gjöf sem veitist fyrir náð Jesú Krists.

Heiðarleiki

Þrá til að snúa sannlega aftur til Guðs, felst í staðfestu um að vera algjörlega heiðarlegur við himneskan föður, sjálfan sig, við þá sem skaðast hafa og prestdæmisleiðtoga ykkar. Himneskur faðir gleðst yfir þeim ásetningi ykkar að koma til hans með sundurkramið hjarta og sáriðrandi anda. Að hafa sáriðrandi anda, er að fela sig í hendur Guðs af auðmýkt; það að hafa sundurkramið hjarta, vekur það sem Páll postuli lýsir sem „guðlegri sorg“, djúpri þrá sálarinnar til að snúa aftur til hans, hvað sem það kostar.

Endurheimta það sem er brotið

Þrá ykkar fær ykkur til að vilja laga það sem þið hafið brotið. Þið biðjið þess samt einlæglega, er þið gerið ykkur ljóst að sumt er ekki á ykkar valdi að bæta, að Drottinn, fyrir náð sína, muni hjálpa við að lækna þau sem hafa verið særð vegna gjörða ykkar.

Oft er sársaukafullt og erfitt að yfirstíga afleiðingar alvarlegra synda gegn öðrum. Eruð þið að fylgja fordæmi sona Mósía, sem „kappkostuðu að bæta úr öllu, sem þeir höfðu gjört“? Talið við þá sem þið berið virðingu fyrir, um það sem þið sjáið kannski ekki.

Þegar ég var að undirbúa þessa ræðu, fékk ég óvæntan netpóst frá einstaklingi sem var í ferli þess að iðrast og óskaði þess að koma aftur til kirkjunnar. Fyrrverandi eiginkona hans þjáðist enn af missi „eilífs hjónabands [þeirra], [erfiðleikum með börnin], missi fjárhagslegs öryggis, … því að geta ekki haldið í við útgjöld [og] kæfandi tilfinningum þess að vera svikin“.

Hann sagði mér frá því hvernig prestdæmisleiðtogi hans „fann sig knúinn til að [biðja hann] að hugleiða í bænarhug hvað [meira hann gæti gert fyrir fyrrverandi eiginkonu sína og börn]“. Með leyfi deili ég hluta af netpósti hans:

„Í fyrstu hélt ég að [peningarnir] sem ég lét af hendi í skilnaðarúrskurðinum væru meira en rausnarlegir, en greinarforsetinn minn hvatti mig til að fasta og biðja vegna þessa. …

Upphaflega glímdi ég við hugmyndina um frekari yfirbót. Þar sem syndir mínar voru ekki fjárhagslegar, velti ég fyrir mér hvað ‚örlátar bætur‘ þýddu í raun … [en] mér varð fljótt ljóst að málið snerist ekki bara um peninga.

Prestdæmisleiðtogar mínir hittu [fyrrverandi eiginkonu mína] og börn mín og þeim varð ljóst að þau áttu enn í erfiðleikum og höfðu ekki náð bata. …

Nýja markmiðið mitt var að halda áfram í trú. … Ég lét einfaldlega í ljós löngun mína til að hjálpa án nokkurra skilyrða. … Ég ákvað að [senda fyrrverandi eiginkonu minni ákveðna upphæð] hvers launaseðils, sem var umtalsverður hluti af nettólaunum mínum. Rétt áður en fyrsta greiðslan var innt af hendi, [lagði Drottinn áherslu á að ég þyrfti] að greiða [tvöfalda þá upphæð].

Ég hef lært að yfirbót snýst ekki bara um peninga. Hún snýst um að helga líf mitt Drottni af auðmýkt. … Peningarnir eru til að bæta upp fyrir það sem ég tók frá fjölskyldu minni, vegna slæmra ákvarðana minna. Hún snýst um að gefa og standa við loforð, án þess að búast við neinu í staðinn og hjálpa henni að hafa ekki áhyggjur af reikningum svo hún geti leitað andans.“

Viðleitni ykkar við að endurreisa það sem þið brutuð, hefur kannski ekkert með peninga að gera, en ef þið ráðgist við Drottin af auðmýkt, gætuð þið komist að því að það er meira sem þið getið gert.

Guðleg velþóknun stig af stigi

Þegar þið leitið fyrirgefningar Drottins, verið þá þolinmóð er þið bíðið eftir fullri velþóknun hans. Íhugið þetta ritningarvers:

„Þeir auðmýktu sig niður í djúp auðmýktar, og … ákölluðu Guð hástöfum. Já, … jafnvel allan liðlangan daginn. … En Drottinn var tregur til að heyra hróp þeirra vegna misgjörða þeirra.“

„Engu að síður heyrði Drottinn hróp þeirra og tók … að [létta byrðar] þeirra … og … smám saman tók þeim að vegna betur.“

Verið þolinmóð, því Drottinn veitir ykkur blessanir sínar og velþóknun smátt og smátt.

Á tíma Drottins munuð þið skynja rödd hans segja við ykkur: „[Lát] þetta ekki angra yður lengur.“ Dag einn, er þið haldið áfram að snúa ykkur til frelsarans, mun himneskur faðir ykkar „[létta] sektinni af hjörtum [ykkar] fyrir verðleika sonar síns“.

Skaðaðir og þjáðir

Ykkur, sem hafið verið særð á svo óréttmætan hátt vegna alvarlegra synda annarra, þrái ég að miðla kærleika og samúð frelsarans, huggun hans og friði.

Dapurleikinn sem þið hafið upplifað, harmurinn, missirinn, kæfandi tilfinningin um að vera svikin, umturnun lífs ykkar, frá því sem þið ímynduðuð ykkur að það yrði – ég fullvissa ykkur algjörlega um að frelsarinn þekkir og elskar ykkur. Leitið til hans. Hann er huggun ykkar og styrkur; hann mun senda engla sína ykkur til stuðnings. Hvenær hverfur sársauki ykkar, dregur úr sorginni, gleymast óæskilegar minningar? Ég veit það ekki. En þetta veit ég: Hann hefur máttinn til að gefa ykkur höfuðdjásn í stað ösku þjáninga ykkar.

Ástkæru bræður okkar og systur í Grand Blanc, Michigan, hafa og munu hljóta ríkulega af óviðjafnanlegum kærleika og náð frelsarans í ótrauðri trú sinni á Jesú Krist, vegna hugrekkis síns og óeigingirni.

Þegar þið haldið áfram að setja traust ykkar á hann, munu ský myrkurs ykkar og grátur angistar um nætur umbreytast í fossandi tár gleði og friðar í ljóma morguns. „Hryggð okkar mun snúast í fögnuð. … Og enginn tekur fögnuð yðar frá yður.“ Sú stund mun koma. Ég ber vitni um að hún muni koma.

Dallin H. Oaks forseti

Hægt er að finna friðþægjandi elsku Jesú Krists í erfiðustu aðstæðum, en við þörfnumst öll stöðugt friðþægandi náðar frelsara okkar. Dallin H. Oaks forseti hefur kennt: „Sökum þess sem frelsarinn upplifði í friðþægingu sinni í jarðlífinu, þá megnar hann að hugga, lækna og styrkja alla karla og konur, hvarvetna, en ég trúi að hann geri það aðeins fyrir þau sem leita hans og biðja hann um hjálp. Jakob postuli kenndi: ‚Auðmýkið yður fyrir Drottni og hann mun upphefja yður‘ (Jakobsbréfið 4:10). Við verðum hæf fyrir þessar blessanir þegar við trúum á hann og biðjum um hjálp hans.“

Öldungur Robert E. Wells með öldungi Neil L. Andersen

Öldungur Robert E. Wells

Ég fékk leyfi frá mínum kæra vini og aðalvaldhafa Sjötíu sem látið hefur af störfum, öldungi Robert E. Wells, sem nú er 97 ára gamall, til að miðla upplifun hans fyrir yfir 60 árum:

Þegar Robert Wells, þá 32 ára, og eiginkona hans, Meryl, bjuggu í Paragvæ árið 1960 og hann starfaði sem alþjóðlegur bankastarfsmaður, voru þau bæði flugmenn í tveimur mismunandi flugvélum, sem flugu heim frá Úrúgvæ til Paragvæ. Robert og Meryl lentu í þykkum skýjabólstrum, misstu sjónar á hvort öðru og talstöðvarsamband þeirra á milli rofnaði. Robert lenti snögglega, þar sem hann komst að því að flugvél eiginkonu sinnar hafði hrapað. Hvorki eiginkona hans, né vinirnir tveir sem flugu með henni höfðu lifað af. Börnin hans í Asunción voru sjö, fimm og tveggja ára.

Wells-fjölskyldan

Öldungur Wells ræddi um sorg sína:

„Orð munu að eilífu verða ófullnægjandi til að lýsa sársaukanum sem breiddist út hið innra, gleypti tilfinningar mínar og deyfði skilningarvitin. Djúp sorgartár hættu einfaldlega ekki að flæða. Til að gera illt verra, þar sem hugur minn reyndi að takast á við hinn hörmulega raunveruleika á andláti eiginkonu minnar, upplifði ég gríðarlega sektarkennd yfir því að finnast ég bera ábyrgð á slysinu.“

Robert kenndi sjálfum sér um að hafa ekki látið skoða vélina betur og fyrir að hafa ekki gefið eiginkonu sinni betri blindflugsleiðbeiningar. Hann taldi sig hafa gerst sekan um vanrækslu.

Robert sagði:

„Hugur minn féll í dimmt myrkur. … Ég var einfaldlega til – [barnanna vegna] en ekkert meira.“

„Ég … missti löngun til að lifa áfram.“

Í tímans rás, var Robert blessaður með afar andlegri upplifun. Hann sagði:

„Kvöld eitt, um ári síðar, þegar ég var á hnjánum í bæn, gerðist kraftaverk. Á meðan ég sárbað til himnesks föður, fannst mér eins og frelsarinn kæmi við hlið mér og ég heyrði greinilega rödd sem talaði þessi orð til sálar minnar og eyrna: ‚Robert, friðþægingarfórn mín greiddi fyrir syndir þínar og mistök. Eiginkona þín fyrirgefur þér. Vinir þínir fyrirgefa þér. Ég mun lyfta byrði þinni. …‘

Frá þeirri stundu var byrði sektarkenndar [og örvæntingar] á undraverðan hátt lyft af mér. Mér hafði verið bjargað. Ég skildi strax umlykjandi kraft friðþægingar frelsarans og … að hann ætti beint við mig. … Ég … upplifði ljós og gleði sem ég hafði aldrei áður þekkt. … Mér hafði verið gefin óverðskulduð gjöf – náðargjöf Drottins. … Ég átti hana ekki skilið – ég hafði ekki gert neitt til að verðskulda hana, en hann gaf mér hana engu að síður.“

Bræður og systur, megum við öll verða „helguð í Kristi fyrir náð Guðs með úthellingu blóðs Krists, … [og verða] heilög og flekklaus“.

Ég ber vitni um elsku, miskunn og náð frelsara okkar og lausnara. Hann lifir. Við erum börn hans; við erum börn sáttmálans. Þegar við trúum á hann, fylgjum honum og treystum honum, mun hann lyfta af okkur sorgum okkar og syndum. Síðan, handan þessa jarðneska lífs, í húsi föður okkar, munum við dvelja með honum alltaf og að eilífu. Í nafni Jesú Krists, amen.