Aðalráðstefna
Far þú og ger hið sama
Aðalráðstefna október 2025


10:28

Far þú og ger hið sama

Ég vil vekja athygli á þeim trúboðum sem eru kallaðir til þjónustuverkefna. Þeir eru okkur fyrirmynd.

Þegar frelsarinn var á ferð sinni um Betsaídu, komu nokkrir einstaklingar með blindan mann til hans. Kannski vonuðust þeir eftir að sjá kraftaverk af eigin raun. Frelsarinn „tók í hönd hins blinda, leiddi hann út úr þorpinu“ til að lækna hann einslega. Til að byrja með virtist lækningin ekki árangursrík. Maðurinn leit upp og mælti: „Ég sé menn, ég greini þá líkt og tré, þeir ganga.“ Af samúð „lagði Jesús aftur hendur yfir augu hans og nú sá hann skýrt“. Með þessari viðbótarsnertingu handa frelsarans, sá blindi maðurinn nú og „gat greint allt“.

Þetta er aðeins eitt dæmi um hvernig líf frelsarans einkennist af auðmjúkum þjónustuverkum. Hann minnir okkur á að hann „er ekki kominn til þess að láta þjóna sér heldur til að þjóna“ og býður okkur síðan að fylgja fordæmi sínu með því að ganga enn lengra, gefa þeim sem biðja okkur, og elska náunga okkar. Þegar Kristur var spurður „hver er þá náungi minn?“ miðlaði hann dæmisögunni um miskunnsama Samverjann með boðinu: „Far þú og ger hið sama.“

Trúboðar Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu eru nútímafordæmi um miskunnsama Samverjann sem Kristur býður okkur að verða. Ég vil vekja athygli á þeim trúboðum sem eru kallaðir til þjónustuverkefna. Þeir eru okkur dæmi um það hvernig þjónusta (1) lýkur upp hjörtum fyrir fagnaðarerindi Jesú Krists, (2) gerir öllum kleift að þjóna, hverjar sem aðstæður okkar eru og (3) færir kraft Krists í líf okkar.

Í fyrsta lagi, þjónusta opnar hjörtu fyrir fagnaðarerindi Jesú Krists

Um 91 f.Kr. kynnti Ammon, trúboði í Mormónsbók, sig fyrir Lamoní konungi með því að segja: „Mig langar að dvelja meðal þessa fólks um tíma … [og] ég vil vera þjónn þinn.“ Vegna þjónustu hans við konunginn, fékk Ammon tækifæri til að „tala djarft og segja [Lamoní konungi með] hvaða krafti“ hann hefði gegnt þjónustu sinni. Á móti lofaði konungur að þá myndi „[konungurinn] gefa [Ammoni] hvað svo sem [hann] æskti“. Eina ósk Ammons var að konungurinn hlustaði á boðskap fagnaðarerindis Jesú Krists. Þjónusta Ammons leiddi til þess að „þúsundir sálna [voru leiddar] til iðrunar“.

Á okkar tíma heldur þjónustan áfram að leiða aðra að fagnaðarerindinu. Systir Bevan þjónaði sem kennslutrúboði þegar heilsufarsvandi tók að gera vart við sig, sem varð til þess að hún fór heim til meðferðar. Í stað þess að vera leyst af gat hún haldið áfram að þjóna sem þjónustutrúboði að heiman.

Þegar systir Bevan og vinkona hennar heimsóttu almenningsgarð fengu þær innblástur um að ræða við móður með fjögur ung börn, en í staðinn hikuðu þær og fjölskyldan ók burt. Næsta dag snéru þær aftur í garðinn og báðu þess að þessi fjölskylda yrði þar. Fyrir kraftaverk sat móðirin á nákvæmlega sama stað og daginn áður. Í þetta sinn spjölluðu systir Bevan og vinkona hennar við móðurina, kynntust henni og komust að því að hún var í bráðri þörf fyrir stundlega hjálp. Þær veittu aðstoð og buðu henni síðan að læra um fagnaðarerindið.

Vegna þeirrar þjónustu og boðsins voru móðirin og elsta barn hennar skírð og síðan það næstelsta ári síðar. Þær eru enn virkir meðlimir í dag. Systir Bevan vissi að þessi upplifun var guðlega innblásin og hún „sannaði [henni] að [hún] væri nákvæmlega þar sem Guð ætlaðist til að [hún] væri“.

Þegar við þjónum öðrum, líkt og Ammon og systir Bevan, „sýnum [við] þeim þannig gott fordæmi“ og þau þrá að þekkja „rökin fyrir voninni sem [í okkur er]“.

Jesús býður okkur: „Far … og ger hið sama.“

Í öðru lagi, þjónusta gerir okkur öllum kleift að þjóna, hverjar sem aðstæður okkar eru

Russell M. Nelson forseti kallaði eftir „sérhverjum verðugum, dugandi, ungum manni að undirbúa sig og þjóna í trúboði“ og fyrir hverja hæfa unga systur að „[biðja] til að komast að því hvort Drottinn vilji að [hún þjóni] í trúboði“. Hann lofaði að „ákvörðun ykkar um að þjóna í trúboði, hvort sem trúboð ykkar er að kenna eða þjóna, mun blessa ykkur og marga aðra“. Þjónustutrúboð breyttu skilgreiningu hugtaksins dugandi. Nú geta allir verðugir piltar og stúlkur sem þrá að þjóna í fastatrúboði fyrir Drottin, gert svo, með mjög fáum undantekningum.

Öldungur Holgado er dæmi um að geta þjónað, burtséð frá persónulegum aðstæðum. Hann fæddist með sjaldgæfan erfðagalla, sem útilokaði hann frá því að þjóna í kennslutrúboði. Öldungur Holgado var kallaður sem þjónustutrúboði og vann sjálfboðastarf í forðabúri biskups, þar sem hann hjálpaði öðrum að fá nauðsynlega aðstoð. Hann fyllti í hillur, setti grænmeti í poka og pressaði pappakassa.

Þegar öldungur Holgado flutti ræðu á sakramentissamkomu eftir trúboð sitt, deildi hann því að „Guð þarfnast þjónustutrúboða. Hann þarfnast þess að fólk elski og þjóni öðrum. Þetta fólk fyllir á klósettpappír, setur spergilkál í poka, smíðar húsgögn og sýnir fólki góðvild“.

Þið þurfið ekki að vera með þjónustuverkefni eða bera nafnspjald til að gera gott. Sérhver þjónusta er viðurkennd af frelsaranum. Við getum öll hjálpað öðrum að koma til Krists með því að þjóna af kærleika og góðvild. Við getum öll þjónað hinum eina í nafni Krists með krafti heilags anda og lifað sem fyrirmynd um trú á Jesú Krist. Þjónusta gerir okkur kleift að sýna okkur sjálf sem lifandi fórnir sem eru Guði þóknanlegar.

Jesús býður okkur: „Far … og ger hið sama.“

Í þriðja lagi, þjónusta færir kraft Krists í líf okkar

Ungur trúboði sem var fluttur úr kennsluverkefni yfir í þjónustuverkefni, glímdi við persónulegar áskoranir, sem urðu til þess að hann þarfnaðist lækningarmáttar Krists. Helguð þjónusta færði þennan kraft inn í líf hans. Hann sagði: „Þegar ég átti erfitt fann ég Krist lyfta mér upp. Það er eitthvað sérstakt við að sjá hann blessa fólk í gegnum matarbúr, í musterinu og með fagnaðarerindi sínu.“

Þessi öldungur tók að upplifa dýpri gleði og nýuppgötvaður eldmóður hans blessaði hann og alla fjölskyldu hans. Andinn kom ríkulegar inn á heimili þeirra, þau fóru reglulegar í musterið saman og Kristur fékk aukið vægi í fjölskyldu þeirra. Þessi trúboði trúir því að Kristur hafi bjargað lífi hans og blessað fjölskyldu hans með þjónustu.

Nelson forseti kenndi: „Vilji til að þjóna og styrkja aðra er tákn um það hversu reiðubúinn viðkomandi er til að læknast“ af endurleysandi krafti frelsarans.

Jesús býður okkur: „Far … og ger hið sama.“

Þjónustutrúboðar eru fordæmi um helgaða lærisveina Jesú Krists

Þegar þið eða fjölskyldumeðlimir eruð blessuð með köllun sem þjónustutrúboðar, þá er rétt að fagna því. Fjölskylda ykkar mun nú hafa fulltrúa Drottins Jesú Krists í embætti á heimili ykkar. Það mun breyta ykkur öllum til hins betra. Engin vonbrigði ættu að vera í nokkurri köllun til þjónustu. Við syngjum: „Ég fer hvert sem vilt að ég fari“ og „mitt tal það skal vera sem vilt.“ Hér er tækifæri til að sýna að við meinum í raun það sem við segjum!

Þið öll sem þjónið, og sérstaklega þið rúmlega 4.000 ungu þjónustutrúboðar, við elskum ykkur! Ef kennslutrúboðar eru munnur Drottins, þá eru þjónustutrúboðar hendur Drottins og þið eruð ekki annars flokks trúboðar. Hvert og eitt ykkar er nauðsynlegt samansöfnun Ísraels. Nelson forseti kenndi að „alltaf þegar við gerum eitthvað öðrum til hjálpar … [við] að gera og halda sáttmála við Guð, leggjum við samansöfnun Ísraels lið“.

Þið þjónustutrúboðar safnið saman Ísrael á svo marga vegu og þjónusta ykkar breytir lífum. Oft vitið þið ekki hver þiggur þjónustu ykkar, en Guð veit það. Hafið ætíð í huga að „allt sem þér [þjónuðuð] einum [hinna] minnstu … hafið þér [þjónað honum]“. Við heyrum raddir ykkar, þegar þið bjóðið ykkur fram í símaverum kirkjunnar. Við sjáum bros ykkar þegar þið hjálpið í samfélagssamtökum og við skynjum líka ljós ykkar er þið þjónið í musterum. Þér fæðið hungraða, klæðið nakta og gefið þyrstum að drekka.

Við þurfum öll að fara og gera hið sama.

Þjónusta er lífæð lærisveina Krists

Þjónusta hefur kraft til að ljúka upp hjörtum fyrir fagnaðarerindinu og gerir okkur öllum mögulegt að gefa Kristi sál okkar óskipta. Það breytir hjarta okkar að verða líkari honum og um leið lyftum við öðrum. Nelson forseti spurði eitt sinn: „Í þessum heimi sem er þjakaður andlegri hrörnun, geta einstaklingar … skipt sköpum?“ Svar hans var: „Já! … ,Sáttmálsþjóð Drottins, … vopnuð … krafti Guðs í mikilli dýrð‘ … getur lyft lífi alls mannkyns.“ Með þjónustu umbreytum við hjörtum – og heiminum.

Kristur „gekk um [og] gerði gott“. Hann þjónaði sjúkum, veitti blindum sýn og vitjaði hinna kúguðu. Hann eldaði máltíðir, hjálpaði til við brúðkaupsveislur og mettaði þúsundir sem voru svangir. Þegar við veitum þjónustu í nafni Krists í þágu hins eina, verðum við sífellt heilagri og verðugri gjafar eilífs lífs. Jesús Kristur lifir. Hann er frelsari minn og þinn. Hann er lausnari okkar. Hann er okkar mikla fyrirmynd um þjónustu. Ég hvet hvert okkar til að fara og gera hið sama. Í nafni Jesú Krists, amen.

Heimildir

  1. Sjá Markús 8:22–26.

  2. Matteus 20:28.

  3. Sjá Matteus 5:41.

  4. Sjá Matteus 5:42.

  5. Sjá Matteus 22:39.

  6. Sjá Lúkas 10:29–37.

  7. Fyrir upplýsingar um unga þjónustutrúboða og hvernig á að sækja um að þjóna, vinsamlegast farið á ChurchofJesusChrist.org/service-missionary.

  8. Alma 17:23, 25.

  9. Sjá Alma 17:31–39; 18:9–10, 20.

  10. Alma 18:21.

  11. Sjá Alma 18:22.

  12. Alma 26:22.

  13. Systir Bevan þjónaði í kennslutrúboði í Tampa-trúboðinu í Flórída og í þjónustutrúboði í Orem-trúboðinu í Utah.

  14. Persónulegt viðtal við Janae Bevan tekið 10. júní 2025. Frásögn og tilvitnanir notaðar með leyfi.

  15. Alma 17:11.

  16. 1. Pétursbréf 3:15.

  17. Russell M. Nelson, „Prédika fagnaðarboðskap friðarins,“ aðalráðstefna, apríl 2022.

  18. Ég er þakklátur systur Amy A. Wright, fyrsta ráðgjafa í aðalforsætisráði Barnafélagsins, sem hefur kennt þessa reglu víða.

  19. Rubinstein-Taybi heilkenni.

  20. Persónulegt viðtal við Scott og Tricia Holgado, tekið 3. júní 2025. Frásögn og tilvitnanir notaðar með leyfi.

  21. Yfirlýsing þjónustutrúboða: „Hjálpum öðrum að koma til Krists með því að þjóna af kærleika og góðvild eins og hann myndi gera. Þjónum hinum eina í hans nafni með krafti heilags anda og lifið sem fyrirmyndir hvað varðar trú á Jesú Krist, iðrun, að halda sáttmála við Guð og að standast allt til enda“ (Missionary Standards for Disciples of Jesus Christ – Service Missionaries, 1.0, Gospel Library).

  22. Sjá Rómverjabréfið 12:1.

  23. Persónulegt viðtal við Jordan Fry, tekið 12. júní 2025. Frásögn og tilvitnanir notaðar með leyfi.

  24. Russell M. Nelson, „Jesús Kristur – hinn mikli græðari,“ aðalráðstefna, október 2005.

  25. Í júlí 2022 þjónuðum ég og systir Evanson sem trúboðsleiðtogar fyrir Orem-trúboðið í Utah. Með níu öðrum trúboðum í heiminum, nutum við þeirra forréttinda að taka þátt í tilraunaverkefni sem nýtti unga þjónustutrúboða í trúboði okkar. Eftir fyrsta fund okkar, skrifaði ég í dagbókina mína: „Í kvöld áttum við afar sérstakan fund. Við kynntumst yfir 140 nýjum trúboðum í trúboði okkar og foreldrum þeirra. Kapellan og íþróttasalurinn voru full út að dyrum og við héldum andríkan og kraftmikinn fund til að bjóða þjónustutrúboðana velkomna í Orem-trúboðið í Utah. Ég var gagntekinn af þeirri kærleikstilfinningu sem við berum til þeirra. Allir eru fúsir til að þjóna. Þetta var falleg sýn.“ Aðstæður þessara trúboða voru allt frá því að vera fyrrverandi kennslutrúboðar að ná sér af meiðslum og að því að vera málstola trúboðar sem notuðu hjólastóla. Eftir þennan fund sagði systir Evanson við mig: „Nú finnst mér trúboð okkar vera fullkomið.“

  26. Sjá David A. Bednar, „Kölluð til verksins,“ aðalráðstefna, apríl 2017.

  27. „Ég fer hvert sem vilt að ég fari,“ Sálmar, nr. 104.

  28. Sjá Matteus 23:11.

  29. Russell M. Nelson, „Lát Guð ríkja,“ aðalráðstefna, október 2020.

  30. Matteus 25:40.

  31. Sjá Matteus 25:34–36.

  32. Sjá Omní 1:26.

  33. Russell M. Nelson, „Personal Preparation for Temple Blessings,“ Liahona, júlí 2001, 39.

  34. Postulasagan 10:38.

  35. Sjá Markús 1:30–31.

  36. Sjá Markús 8:22–26.

  37. Sjá Lúkas 19:1–10.

  38. Sjá Jóhannes 21:9.

  39. Sjá Jóhannes 2:1–10.

  40. Sjá Jóhannes 6:5–13.

  41. Sjá Matteus 25:34; Rómverjabréfið 12:1.