Sælir eru friðflytjendur
Friðarvakning hefst enn á innsta staðnum – í hjörtum okkar. Þar á eftir á heimilum og í fjölskyldum.
Velkomin á aðalráðstefnu. Hve þakklát við erum að vera samankomin.
Þrátt fyrir að við hlökkum til framvindu þessarar ráðstefnu, gerum við okkur fyllilega grein fyrir vikunum í aðdraganda hennar. Okkur er ljóst að hjörtu okkar syrgja missi og sumir upplifa óvissu af völdum ofbeldis eða harmleikja um allan heim. Jafnvel trúfast fólk sem komið hefur saman á helgum stöðum – þar á meðal í hinni helgu kapellu okkar í Michigan – hefur týnt lífi sínu eða ástvinum. Ég tala frá hjartanu í skilningi þess að hjörtu margra ykkar eru þjökuð af því sem þið, fjölskyldur ykkar og heimur okkar hafa gengið í gegnum frá síðustu aðalráðstefnu.
Kapernaúm í Galíleu
Ímyndið ykkur með mér að þið séuð unglingar í Kapernaúm, nálægt Galíleuvatni, á þjónustutíma Jesú Krists. Orðrómur berst um rabbína – kennara – hvers boðskapur dregur að sér fjölda fólks. Nágrannar ráðgera að ferðast til fjalls með útsýni yfir hafið til að hlusta á hann.
Þið gangið með öðrum á rykugum vegum Galíleu. Þegar þið komið á staðinn kemur mannfjöldinn ykkur á óvart, sem safnast hefur saman til að hlýða á þennan Jesú. Sumir hvísla hljóðlega: „Messías.“
Þið leggið við hlustir. Orð hans snerta hjarta ykkar. Á hinni löngu leið heim, veljið þið kyrrð fram yfir samræður.
Þið ígrundið undursamlega hluti – hluti sem eru jafnvel hafnir yfir lögmál Móse. Hann talaði um að bjóða fram hina kinnina og elska óvini sína. Hann lofaði: „Sælir eru friðflytjendur því að þeir munu Guðs börn kallaðir verða.“
Í ykkar raunveruleika, þegar þið finnið fyrir byrði erfiðra daga – óvissu og ótta – þá virðist friður fjarlægur.
Þið gangið hraðar og komið andstutt heim. Fjölskyldan kemur saman og faðir ykkar spyr: „Segið okkur frá því sem þið heyrðuð og skynjuðuð.“
Þið segið frá því að hann bauð ykkur að láta ljós ykkar skína frammi fyrir öðrum, að leita réttlætis, jafnvel þótt þið væruð ofsótt. Þið verðið klökk er þið endurtakið: „Sælir eru friðflytjendur því að þeir munu Guðs börn kallaðir verða.“
Þið spyrjið: „Get ég sannlega orðið friðflytjandi þegar heimurinn er í uppnámi, þegar hjarta mitt er fullt af ótta og friður virðist svo fjarlægur?“
Faðir ykkur lítur á móður ykkar og svarar blíðlega: „Já. Við byrjum á innsta staðnum – í hjörtum okkar. Síðan á heimilum okkar og í fjölskyldum. Þegar við æfum okkur þar getur friðarmiðlun breiðst út á götur okkar og í þorpin.“
Spólum áfram um 2.000 ár
Spólum áfram um 2.000 ár. Engin þörf á að ímynda sér það – þetta er raunveruleiki okkar. Þótt þrýstingurinn sem hin upprennandi kynslóð í dag upplifir sé annar en unga fólksins í Galíleu – skautun, veraldarhyggja, að svara í sömu mynt, umferðarbræði, óhæfuverk og stigmagnandi árásir á samfélagsmiðlum – standa báðar kynslóðir frammi fyrir menningarheimi átaka og spennu.
Til allrar hamingju, þá laðast okkar piltar og stúlkur líka að fjallræðustundum sínum – að trúarskólanum, Til styrktar ungmennum-ráðstefnunum og Kom, fylg mér. Þar fá þau sömu traustu boðin frá Drottni: að láta ljós sitt skína frammi fyrir öðrum, að leita réttlætis, jafnvel í ofsóknum og að elska óvini sína.
Þau meðtaka líka hvetjandi orð frá lifandi spámönnum endurreisnarinnar: „Þörf er á friðflytjendum.“ Verið ósammála án óvildar. Skiptið út deilum og drambi fyrir fyrirgefningu og elsku. Byggið brýr samvinnu og skilnings, ekki múra fordóma eða aðskilnaðar. Og sama loforðið: „Sælir eru friðflytjendur því að þeir munu Guðs börn kallaðir verða.“
Hjörtu hinnar upprennandi kynslóðar í dag eru full af vitnisburði um Jesú Krist og von fyrir framtíðina. Þau spyrja samt líka: „Get ég sannlega orðið friðflytjandi þegar heimurinn er í uppnámi, hjarta mitt er fullt af ótta og friður virðist svo langt í burtu?“
Hið afgerandi svar er enn og aftur: Já! Við tileinkum okkur orð frelsarans: „Frið læt ég yður eftir, minn frið gef ég yður. … Hjarta yðar skelfist ekki né hræðist.“
Í dag hefst friðarvakning enn á innsta staðnum – í hjörtum okkar. Þar á eftir á heimilum og í fjölskyldum. Þegar við æfum okkur þar, mun friðarvakning breiðast út um hverfi og samfélög.
Við skulum skoða nánar þessa þrjá staði, þar sem nútíma Síðari daga heilagur stuðlar að friði.
Friðarvakning í hjarta okkar
Fyrst er það hjarta okkar sjálfra. Sýnilegur þáttur í þjónustu Krists sýnir hvernig börnin löðuðust að honum. Í þessu felst vísbending. Að horfa inn í hið hreina og saklausa friðelskandi hjarta barns, getur veitt okkur innblástur. Hér eru svör nokkurra barna á Barnafélagsaldri við spurningunni: „Hvernig finnst ykkur friðflytjandi vera?“
Ég miðla svörunum beint frá hjarta þeirra! Luke sagði: „Alltaf hjálpandi öðrum.“ Grace greindi frá því hve mikilvægt væri að fyrirgefa hvert öðru, jafnvel þótt okkur finnist það ekki sanngjarnt. Anna sagði: „Ég sá einhverja sem hafði engan til að leika sér við, svo ég fór til að leika við hana.“ Lindy sagði íhugandi að friðflytjandi væri að hjálpa öðrum. „Og síðan koll af kolli. Það mun bara halda endalaust áfram.“ Liam sagði: „Ekki vera vondur við fólk, jafnvel þótt það sé vont við þig.“ London sagði: „Ef einhver stríðir þér eða er vondur við þig, þá segirðu: ‚Viltu hætta.‘“ Trevor sagði: „Ef það er einn kleinuhringur eftir og ykkur langar öll í hann, þá deilið þið honum.“
Svör þessara barna bera mér vitni um að við erum öll fædd með guðlega hneigð til góðvildar og samúðar. Fagnaðarerindi Jesú Krists nærir og samtengir þessa guðlegu eiginleika, þar með talið frið, í hjörtu okkar og blessar okkur í þessu lífi og því næsta.
Friðarvakning á heimilinu
Í öðru lagi, vekjum við frið á heimili okkar með því að nota aðferðir Drottins til að hafa áhrif á sambönd okkar hvert við annað: fortölur, umburðarlyndi, mildi, góðvild, hógværð og fölskvalaus ást.
Hér er innblásin frásögn sem sýnir hvernig ein fjölskylda gerði friðarvakningu að málefni fjölskyldunnar með því að hrinda þessum reglum í framkvæmd.
Börn í þessari fjölskyldu áttu í erfiðleikum í sambandi sínu við fullorðinn einstakling sem oft var geðillur, yfirlætislegur og stuttur í spuna. Börnin, sár og vonsvikin, fóru að velta því fyrir sér hvort eina leiðin fram á við væri að endurspegla þessa sömu illkvittnu hegðun.
Kvöld eitt ræddi fjölskyldan opinskátt saman um spennuna og álagið sem þessu fylgdi. Þá kom fram hugmynd – ekki bara lausn heldur tilraun.
Í stað þess að svara með þögn eða í sömu mynt, myndu börnin gera nokkuð óvænt: þau myndu bregðast við með góðvild. Ekki bara með kurteisislegri sjálfsstjórn, heldur meðvituðum hlýlegum orðum, hugulsömum góðverkum, sama hvernig komið væri fram við þau á móti. Allir voru sammála um að prófa þetta í ákveðinn tíma, eftir það myndu þau koma aftur saman og endurskoða.
Þótt sumir hafi verið hikandi í fyrstu, þá fylgdu þeir áætluninni af einlægu hjarta.
Það sem gerðist næst var ekkert annað en ótrúlegt.
Kuldaleg samskiptin fóru að þiðna. Bros komu í stað grettna. Hinn fullorðni, sem eitt sinn var fjarlægur og óvæginn, tók að breytast. Börnin, fílefld af því vali sínu um að leiða með kærleika, fundu gleði í breytingunni. Breytingin var svo mikil að aldrei var þörf á ráðgerðum eftirfylgnifundi. Góðvildin hafði unnið sitt hljóðláta verk.
Með tímanum mynduðust sönn vináttubönd sem lyftu öllum. Til að vera friðflytjendur, þá fyrirgefum við öðrum og byggjum aðra upp af ásetningi, í stað þess að rífa þá niður.
Friðarvakning í samfélögum okkar
Í þriðja lagi, er það friðarvakning í samfélögum okkar. Á erfiðum árum síðari heimsstyrjaldarinnar kenndi öldungur John A. Widtsoe: „Eina leiðin til að byggja upp friðsælt samfélag, er að móta karla og konur sem elska og vekja frið. Hver einstaklingur hefur þannig, samkvæmt kenningu Krists … heimsfrið í eigin hendi.“
Eftirfarandi saga útskýrir þessa reglu á fallegan hátt.
Fyrir nokkrum árum áttu tveir menn – múslimskur imam og kristinn prestur frá Nígeríu – í sársaukafullum trúarlegum erjum vegna andstæðra skoðana. Hvor um sig hafði þjáðst mikið. Samt völdu þeir að ganga veginn saman, fyrir læknandi mátt fyrirgefningarinnar.
Imam Muhammad Ashafa og séra James Wuye urðu vinir og ólíklegir friðarfélagar. Saman stofnuðu þeir miðstöð fyrir fjöltrúarleg samskipti. Þeir kenna nú öðrum að skipta út hatri fyrir von. Þeir hafa tvisvar verið tilnefndir til friðarverðlauna Nóbels en hlutu nýlega friðarverðlaun Breska samveldisins.
Þessir fyrrum óvinir ferðast nú hlið við hlið og endurbyggja það sem var brotið, lifandi vitni um það að boð frelsarans um að vera friðflytjendur er ekki einungis mögulegt – það er öflugt.
Þegar við kynnumst dýrð Guðs, munum við „ekki hafa hug á að gjöra hvert öðru mein, heldur lifa í friði“. Megum við velja í söfnuðum okkar og samfélögum að sjá hvert annað sem börn Guðs.
Einnar viku áætlun friðflytjandans
Í stuttu máli, þá legg ég fram boð. Friðarvakning krefst aðgerða – hverjar gætu þær verið, fyrir hvert og eitt okkar, frá og með morgundeginum? Mynduð þið íhuga einnar viku, þriggja skrefa áætlun friðarvakningar?
-
Heimasvæði án deilna: Þegar deilur hefjast, staldrið þá við og byrjið upp á nýtt með vingjarnlegum orðum og gjörðum.
-
Stafræn brúarsmíð: Áður en þið birtið, svarið eða skrifið athugasemdir á netinu, skuluð þið spyrja hvort þetta muni byggja brú? Ef ekki, hættið við. Sendið ekki skilaboðin. Miðlið þess í stað góðvild. Birtið frið í stað haturs.
-
Bætið og sameinið á ný: Hver fjölskyldumeðlimur gæti einbeitt sér að stirðu sambandi til að biðjast afsökunar, þjóna, bæta og sameina á ný.
Lokaorð
Það eru nokkrir mánuðir síðan ég fann óyggjandi hvatningu sem leiddi til þessa boðskapar: „Sælir eru friðflytjendur.“ Má ég að lokum miðla þeim hughrifum sem hafa sótt á hjarta mitt á þessum tíma.
Að stuðla að friði er kristilegur eiginleiki. Friðflytjendur eru stundum stimplaðir sem barnalegir eða veikgeðja – frá öllum hliðum. Samt sem áður er það ekki veikleiki að vera friðflytjandi, heldur er það að vera sterkur á þann hátt sem heimurinn skilur ef til vill ekki. Friðarumleitun krefst hugrekkis og málamiðlana, en krefst þess ekki að fórna meginreglum. Friðarumleitun er að leiða með opnu hjarta, ekki lokuðum huga. Hún er að nálgast hvert annað með útrétta hönd, ekki krepptan hnefa. Friðarumleitun er ekki ný hugmynd, beint úr prentsmiðjunni. Jesús Kristur kenndi hana sjálfur, bæði þeim sem eru í Biblíunni og Mormónsbók. Friðarumleitun hefur síðan verið kennd af nútíma spámönnum, allt frá fyrstu dögum endurreisnarinnar fram á þennan dag.
Við uppfyllum guðlegt hlutverk okkar sem börn kærleiksríks himnesks föður er við kappkostum að verða friðflytjendur. Ég ber vitni um Jesú Krist, sem er Friðarhöfðinginn, sonur hins lifanda Guðs, í nafni Jesú Krists, amen.