2025
Fagnaðarerindi Jesú Krists: Gleðihljómur
Til styrktar ungmennum, júlí 2025


Fagnaðarerindi Jesú Krists: Gleðihljómur

Hið endurreista fagnaðarerindi færir ykkur tilgang og gleði á leið ykkar til eilífs lífs.

Jesús Kristur

Vonarljós, eftir Simon Dewey

Þegar ég þjónaði sem trúboðsleiðtogi í Japan fyrir nokkrum árum, átti ég viðtal við mann sem hafði gengið í kirkjuna ári áður og leitaðist eftir að fá musterismeðmæli.

Í samtali okkar lýsti þessi nýi meðlimur því hve innilega þakklátur hann væri fyrir þær blessanir sem hann hefði hlotið á árinu frá skírn sinni. Mér fannst hann sýna sáttmálsfullvissu frá skilningi hans á fagnaðarerindinu, sem var tryggilega rótfast í honum. Hann var lærisveinn Jesú Krists sem hafði snúist til trúar og upplifað mikla breytingu í hjarta sínu (sjá Mósía 5:2).

Að viðtalinu loknu, sagði ég umdæmisforsetanum frá ánægju minni með að trúboðarnir og meðlimirnir hefðu fundið og andlega nært slíkan framúrskarandi mann, sem bjó yfir slíkum möguleikum.

Það kom mér mjög á óvart að komast að því að þegar þessi maður tók að hitta trúboðana og fara í kirkju, var hann heimilislaus og bjó við næstum vonlausar aðstæður. Trúarnám þessa bróður og viðsnúningur hans á nokkrum mánuðum, leiddu til undursamlegrar breytingar, sem færði hann á veg andlegrar og stundlegrar sjálfsbjargar og gleði.

Fagnaðarerindið gaf þessum bróður skýra sýn á tilgang lífsins. Einfaldur og dýrmætur sannleikur fagnaðarerindisins veitti honum svör við mikilvægum spurningum jarðlífsins. Slíkar blessanir standa ykkur jafnt til boða og öllum börnum Guðs fyrir tilstilli fagnaðarerindis Jesú Krists.

fjölskylda utan við musterið

Tilgangur lífsins

Fagnaðarerindi Jesú Krists hefur verið endurreist fyrir milligöngu spámannsins Josephs Smith. Í lokavitnisburði sínum til kirkjunnar, sagði M. Russell Ballard forseti (1928–2023), þá starfandi forseti Tólfpostulasveitarinnar:

„Við vitum hver Guð er. Við vitum hver frelsarinn er, vegna þess að við höfum Joseph. …

Hve blessuð við erum að vita það sem við vitum um tilgang okkar í lífinu, hvers vegna við erum hér, hvað við ættum að vera að reyna að gera og áorka í okkar daglega lífi.“

Fyrir meðlimi Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu felur þessi þekking í sér skilning á hinni „fullkomnu sáluhjálparáætlun“ Guðs sem einnig er þekkt sem „hin mikla sæluáætlun,“ „endurlausnaráætlunin“ og „miskunnaráætlunin“ (Alma 42:8, 11, 15). Áætlun Guðs „afhjúpar leyndardóma lífsins og eyðir óvissunni um framtíð okkar.“ Mikilvægur og miðlægur þáttur í þeirri áætlun og tilgangi lífsins er „kenning Krists.“

Fyrir fagnaðarerindið vitum við að við erum börn Guðs, send til jarðar til að verða reynd og búin undir upprisu (sjá Kenning og sáttmálar 76:39). Við þekkjum boðorðin og okkur er kennt að „þekkja gott frá illu“ (2. Nefí 2:5). Við vitum að við erum hér til að elska og þjóna og að frelsarinn hefur kallað okkur til að sigrast á heiminum og til að hjálpa öðrum að gera slíkt hið sama (sjá Jóhannes 16:33).

Það sem Joseph Smith kallað „gleðihljóm fagnaðarerindis Drottins vors Jesú Krists“, mun styrkja okkur á erfiðum dögum og veita okkur sjálfum og öðrum merkingu og tilgang.

Hlýðni og blessanir

Guð hefur gefið okkur siðferðilegt sjálfræði, svo við getum verið ábyrg ákvarðana okkar (sjá Kenning og sáttmálar 101:78; sjá einnig 2. Nefí 2:16). Vegna „andstæðna í öllu“ (2. Nefí 2:11), er Satan leyft að freista okkar til að misnota sjálfræði okkar.

Á okkar tíma kallaði Drottinn spámanninn Joseph Smith „og talaði til hans frá himni og gaf honum fyrirmæli“ (Kenning og sáttmálar 1:17). Drottinn heldur áfram að opinbera spámönnum sínum boðorð sín og vilja, því hann þráir að leiða okkur til hamingju í þessu lífi og til himneskrar dýrðar í næsta lífi.

Benjamín konungur kennir

Benjamín konungur prédikar fyrir Nefítunum, eftir Gary L. Kapp

spámaður kennir

Kenna sanna kenningu, eftir Michael Malm

Joseph Smith kennir

Joseph Smith prédikar, eftir Sam Lawlor

Russell M. Nelson kennir

Hlýðni við boðorð Guðs ætti að eiga rætur í trúrækni okkar og elsku til hans. Drottinn Jesús Kristur lýsti yfir: „Ef þér elskið mig, munuð þér halda boðorð mín“ (Jóhannes 14:15). Endanlegur árangur þess að sýna Drottni elsku okkar, með því að halda boðorð hans, eru blessanir sem færa hamingju og gleði (sjá Kenning og sáttmálar 130:20–21).

Með skýrri yfirsýn um guðlegan uppruna okkar og örlög, vitum við að „þeir hlutir sem munu gera jarðlíf [okkar] eins og það best getur orðið, eru einmitt sömu hlutirnir og munu gera líf [okkar] í allri eilífðinni eins og það best getur orðið!“

piltar

Gleði á ferðalagi ykkar

Hinn glaðlegi trúskiptingur sem ég hitti í Japan fyrir mörgum árum, fann hið endurreista fagnaðarerindi Jesú Krists fyrir eigin kostgæfni og vegna trúboða og meðlima. Hann uppgötvaði tilgang sinn og útvíkkaði sýn sína á hina miklu sæluáætlun, sem færði honum blessanir og gleði er lyfti honum stundlega og andlega.

Öldungur Patrick Kearon í Tólfpostulasveitinni, kenndi:

„Vegna kærleiksríkrar áætlunar himnesks föður fyrir hvert barna sinna og vegna endurleysandi lífs og hlutverks frelsara okkar, Jesú Krists, getum við – og ættum – að vera hamingjusamasta fólkið á jörðu! Jafnvel þegar stormar lífsins bylja á okkur, í heimi sem oft er erfiður, getum við ræktað með okkur vaxandi og varanlega gleði og innri frið, sökum vonar okkar á Krist og skilnings okkar á okkar eigin stöðu í hinni dásamlegu sæluáætlun.“

Ég tjái þakklæti mitt og vitnisburð um hið endurreista fagnaðarerindi Jesú Krists og hina miklu sæluáætlun. Ég býð ykkur að neyta af ávöxtum fagnaðarerindisins og finna aukna gleði á leið ykkar til eilífs lífs.