2025
Miðla fagnaðarerindinu … í skemmtigarði?
Til styrktar ungmennum, júlí 2025


Nota leiðarvísinn

Miðla fagnaðarerindinu … í skemmtigarði?

Ég fór nýlega í skemmtigarð með nokkrum vinum mínum úr kirkjunni. Meðan ég og vinkona mín Evie stóðum í röðinni eftir rússíbana, tók ungur maður að nafni Erik að tala við okkur um YouTube-rásina sína. Hann talaði í líklega 15 mínútur um hvernig sumir í skólanum hans gerðu grín að honum og sögðu honum að eyða rásinni sinni.

Í kirkju höfðu leiðtogar okkar hvatt okkur til að taka leiðarvísinn Til styrktar ungmennum og miðla honum einhverjum. Erik virtist eiga í erfiðleikum með vini sína, svo mér datt í hug að kannski gæti leiðarvísirinn hjálpað honum.

Ég dró hann upp og sagði að hann mætti eiga hann. Hann spurði hvað þetta væri og ég útskýrði að þetta væri frá kirkjunni minni og gæti hjálpað honum að taka góðar ákvarðanir og kennt honum aðra góða hluti. Ég sagði honum að hann ætti að lesa hann þegar hann hefði tíma. Hann sagði allt í lagi, tróð honum í vasann og hélt áfram að tala um YouTube-rásina sína.

Ég veit ekki hvort hann las leiðarvísinn nokkurn tíma, en þessi reynsla kenndi mér að hægt er að vera trúboði á hvaða aldri sem er, hvar sem er – jafnvel í skemmtigarði.