Frá ungmennum
Lítil íbúð, stórar áætlanir
Myndskreyting: Katelyn Budge
Fjölskylda mín bjó áður í stóru húsi, en allt breyttist þegar við fluttum til Hanoi. Við bjuggum í mjög lítilli íbúð, um 30 fermetra. Það var erfitt að búa í þröngu rými með þremur öðrum í fjölskyldu minni.
En ég er þakklátur fyrir að Guð getur hjálpað við að láta góða hluti gerast út frá hvaða aðstæðum sem er. Á þeim tíma gat ég verið túlkur í kirkjunni og fyrir foreldra mína. Ég gat beðist fyrir á hverjum degi, útdeilt sakramentinu og ég bauð fólk velkomið sem lærði fagnaðarerindið. Ég veit að Guð hefur blessað mig og leitt mig til þess að gera þessa hluti.
Í gegnum allar áskoranirnar á þeim tíma, styrktist trú mín dag frá degi. Margir þekkja ekki fagnaðarerindið í landi mínu, svo ég er ungur brautryðjandi. Ég þrái að miðla fólki fagnaðarerindi Jesú Krists til að hjálpa því að lifa hamingjusömu lífi að eilífu með Jesú Kristi og himneskum föður.
Duy N., 14 ára, Hanoi, Víetnam
Nýtur þess að þjóna öðrum, lesa ritningarnar og læra önnur tungumál.