Traust í návist Guðs
Þegar við reynum af kostgæfni að láta kærleika og dyggðir fylla líf okkar, mun traust okkar til að nálgast Guð aukast.
Kæru bræður og systur, ég er þakklátur fyrir að tala til ykkar í dag á þessari mikilvægu aðalráðstefnu. Augu mín halda áfram að eldast. Þakka ykkur fyrir skilning ykkar er ég flyt boðskap minn.
Við lifum á tíma mikils skriðþunga í Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu. Ég fyllist gleði yfir að sjá framfarir á svo mörgum sviðum.
Ég er einkar innblásinn af unga fólkinu okkar. Fjölmörg þeirra eru virk í þjónustu. Þau leita áa sinna og framkvæma helgiathafnir í musterinu. Metfjöldi pilta okkar og stúlkna senda inn umsóknir um trúboðsþjónustu. Hin upprennandi kynslóð er að rísa upp sem traustir fylgjendur Jesú Krists.
Nýlega hitti ég nýtt langafabarn. Þegar ég hugleiði þær áskoranir sem hún mun upplifa í lífi sínu, finn ég djúpa þrá til að hjálpa henni að byggja upp trú á Jesú Krist. Að lifa eftir fagnaðarerindi hans, er nauðsynlegt fyrir framtíðarhamingju hennar.
Hún, líkt og við öll, mun takast á við áskoranir. Við munum öll upplifa sjúkdóma, vonbrigði, freistingar og missi. Þessar áskoranir geta rænt okkur sjálfstraustinu. Lærisveinar Jesú Krists hafa þó aðgang að annars konar trausti.
Þegar við gerum og höldum sáttmála við Guð, getum við búið að djörfung sem af andanum fæðist. Drottinn sagði spámanninum Joseph Smith að traust okkar gæti „vaxið og styrkst í návist Guðs“. Hugsið ykkur hve hughreystandi það er að hafa traust í návist Guðs!
Þegar ég tala um að hafa traust frammi fyrir Guði, vísa ég til þess að hafa traust til að nálgast Guð einmitt núna! Ég vísa hér til bænar í trausti þess að himneskur faðir heyri til okkar, að hann skilji betur þarfir okkar en við gerum. Ég vísa til þess að treysta því að að hann elski okkur meira en við fáum skilið, að hann sendi engla til að vera með okkur og þeim sem við elskum. Ég vísa til þess að treysta því að hann þrái að hjálpa sérhverju okkar að ná mestu möguleikum okkar.
Hvernig öðlumst við nú slíkt traust? Drottinn svarar þessari spurningu með þessum orðum: „Lát brjóst þitt … vera fullt af kærleika til allra manna og … lát dyggðir prýða hugsanir þínar linnulaust, og þá mun traust þitt vaxa og styrkjast í návist Guðs.“
Þetta er lykillinn! Með eigin orðum Drottins, þá opna kærleikur og dyggð leið til að hafa traust frammi fyrir Guði! Bræður og systur, við getum gert þetta! Traust okkar getur sannarlega vaxið og styrkst í návist Guðs, einmitt núna!
Hugleiðum bæði kærleika og dyggð.
Í fyrsta lagi, kærleikur. Fyrir tveimur árum bauð ég okkur, sem sáttmálsfylgjendum Jesú Krists, að verða friðflytjendur. Ég endurtek það sem ég sagði þá: „Reiðin sannfærir aldrei. Andúð byggir engan upp. Deilur leiða aldrei til innblásinna lausna.“
Sannur kærleikur til allra manna er aðalsmerki friðflytjenda! Það er mikilvægt að við höfum kærleika í umræðu okkar, bæði opinberlega og í einkalífi. Ég þakka þeim ykkar sem tóku áður gefinni leiðsögn minni alvarlega. En við getum eigi að síður gert betur.
Núverandi fjandskapur í opinberri umræðu og á samfélagsmiðlum er ógnvekjandi. Hatursorð eru banvæn vopn. Deilur koma í veg fyrir að heilagur andi geti verið okkur stöðugur förunautur.
Sem fylgjendur Jesú Krists, ættum við að vera í fararbroddi sem friðflytjendur. Þegar kærleikur verður hluti af eðli okkar, munum við ekki lengur hafa tilhneigingu til að lítillækka aðra. Við munum hætta að dæma aðra. Við munum hafa kærleika til fólks úr öllum stéttum samfélagsins. Kærleikur til allra manna er nauðsynlegur framþróun okkar. Kærleikurinn er undirstaða guðlegs persónuleika.
Við skulum biðja himneskan föður að fylla hjörtu okkar af auknum kærleika – einkum gagnvart þeim sem erfitt er að elska– því kærleikur er gjöf frá himneskum föður til sannra fylgjenda Jesú Krists. Frelsarinn er friðarhöfðinginn. Við eigum að vera verkfæri hans til friðar.
Við skulum nú ræða um dyggð. Drottinn býður að dyggðir prýði hugsanir okkar linnulaust. Ímyndið ykkur þá styrkingu sem þið munið hljóta fyrir hverja jákvæða hugsun, sé hún efld með dyggð. Dyggðin gerir allt betra og gleðilegra! Á hinn bóginn, ímyndið ykkur hvað myndi gerast ef þið bættuð dyggð við óhreina hugsun, grimmilega hugsun eða niðurdrepandi hugsun. Dyggðin mun hrekja burtu slíkar hugsanir. Dyggðin mun leysa ykkur frá kvíðvænlegum, erfiðum hugsunum.
Bræður og systur, eftir því sem heimurinn verður ranglátari, þurfum við að verða sífellt hreinni. Hugsanir okkar, orð og verk þurfa ávallt að vera dyggðug og fyllt hinni hreinu ást Jesú Krists til allra manna. Hið mikla tækifæri frammi fyrir okkur, er að verða það fólk sem Guð vill að við séum.
Reglubundin tilbeiðsla í húsi Drottins gerir okkur mögulegt að vaxa að dyggð og kærleika. Tími varinn í musterinu, eykur því traust okkar frammi fyrir Drottni. Meiri tími sem varinn er í musterinu, mun hjálpa okkur að búa okkur undir síðari komu frelsara okkar, Jesú Krists. Við vitum ekki dag eða stund komu hans. Ég veit þó að Drottinn er að hvetja mig til að búa okkur undir þennan „mikla og ógurlega dag“.
Þegar við reynum af kostgæfni að láta kærleika og dyggðir fylla líf okkar, mun traust okkar til að nálgast Guð aukast. Ég býð ykkur að taka meðvituð skref til að vaxa að trausti ykkar frammi fyrir Drottni. Þegar við síðan förum til himnesks föður með aukið traust, munum við fyllast meiri gleði og trú ykkar á Jesú Krist mun aukast. Við munum taka að upplifa andlegan kraft sem fer fram úr okkar björtustu vonum.
Við erum þakklát Drottni fyrir að hraða musterisbyggingum undanfarin ár. Að hans leiðsögn, kynnum við í dag áætlanir um að byggja musteri á hverjum þessara 15 staða:
-
Reynosa, Mexíkó
-
Chorrillos, Perú
-
Rivera, Úrúgvæ
-
Campo Grande, Brasilíu
-
Porto, Portúgal
-
Uyo, Nígeríu
-
San Jose del Monte, Filippseyjum
-
Nouméa, Nýju-Kaledóníu
-
Liverpool, Ástralíu
-
Caldwell, Idaho
-
Flagstaff, Arisóna
-
Rapid City, Suður-Dakóta
-
Greenville, Suður-Karólínu
-
Norfolk, Virginíu
-
Spanish Fork, Utah
Ég ber vitni um að Jesús Kristur, lausnari Ísraels, leiðir þessa kirkju sína. Hann er að búa sig undir að koma aftur. Megum við að sama skapi búa okkur undir að taka á móti honum. Það er bæn mín, í nafni Jesú Krists, amen.