Aðalráðstefna
Gleði í gegnum sáttmálsgjörð lærisveinsins
Aðalráðstefna apríl 2025


10:58

Gleði í gegnum sáttmálsgjörð lærisveinsins

Þegar við skuldbindum okkur til að vera sáttmálslærisveinar, þá er samband okkar við föðurinn og soninn auðgað, gleði okkar eykst og eilíf yfirsýn okkar útvíkkuð.

Dag einn árið 2023, var Uyanga Altansukh við vinnu í borginni Darkhan í norðurhluta Mongólíu þegar mongólski trúboðsforsetinn kom inn á vinnustað hennar. Með hennar orðum:

„Ég sá hann og fannst eins og hann bæri með sér skært ljós í ásýnd sinni. Hann var afar góðhjartaður og skemmtilegur að umgangast og ég fann fyrir hlýju. Áður en hann fór aftur, spurði ég hann nokkurra spurninga. Nokkrum dögum síðar kom hann aftur inn á vinnustaðinn minn og spurði hvort ég gæti komið í kirkjuna hans. Mér fannst það geta verið gagnlegt. Ég hafði áhyggjur af framtíð barnanna minna, þar sem samfélagið virtist fullt af streitu og myrkri. Ég vildi að börnin mín yrðu eins og þessi maður, með ljós í ásýnd þeirra, færandi öðrum gleði í kringum sig.

Dag einn kenndu trúboðarnir okkur tíundarlögmálið. Börnin mín sögðu spennt: ‚Við verðum að greiða tíundina okkar, mamma.‘ Ég sá trú barnanna minna á því augnabliki. Áður en ég gekk í kirkjuna, horfði ég á aðalráðstefnu og hlustaði á Russell M. Nelson forseta tala. Hann tilkynnti um ný musteri um allan heim og sagði að nýtt musteri yrði byggt í Úlan Bator, Mongólíu. Ég fagnaði og felldi tár, jafnvel þótt ég skildi ekki hvers vegna. Með þessari gleði fann ég að trú mín og vitnisburður voru að vaxa.“

Uyanga, eins og milljónir annarra, er hluti af hinni miklu samansöfnun Ísraels til undirbúnings fyrir síðari komu Jesú Krists. Hún hefur hafið ferð sína á sáttmálsveginum og er orðin lærisveinn Krists. Hvað merkir það að vera lærisveinn Krists? Ég kann að meta japanska orðið fyrir lærisvein – deshide sem þýðir yngri bróðir og shi sem þýðir barn.

Jesús Kristur sagði: „Í upphafi var ég hjá föðurnum og ég er frumburðurinn.“ Vegna þess hver hann er og það sem hann hefur gert, tilbiðjum við hann, vegsömum, gefum honum dýrðina og fylgjum honum. Kristur hefur endurleyst okkur og við erum ævarandi þakklát fyrir óendanlega og friðþægjandi fórn hans.

Við eigum himneskan föður sem elskar okkur sem börn sín. Elska hans til okkar er fullkomin. Jesús Kristur og ætlunarverk hans sýna fram á elsku Guðs til okkar. Líkt og Jóhannes ritaði: „Því svo elskaði Guð heiminn að hann gaf einkason sinn til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki heldur hafi eilíft líf.“

Í leit okkar að því að skilja það sem við ekki vitum, gætum við stundum reitt okkur á kunnuglega jarðneska reynslu okkar eða það sem við vissulega vitum. Við getum til dæmis lært eitthvað um Guð föðurinn í gegnum eigið foreldrahlutverk og jarðnesk fjölskyldutengsl. Við ættum þó að gæta þess að ganga ekki of langt í þessum samanburði í tilraun okkar til að skilja himneskan föður. Eiginleikar Guðs föðurins eru æðri öllum ófullkomnum eiginleikum fallins manns. Guð faðirinn er hinn fullkomni faðir. Hann er fullkomlega kærleiksríkur, góðviljaður, þolinmóður og skilningsríkur og er fullkomlega dýrðlegur. Við getum treyst honum fullkomlega. Elska Krists endurspeglar elsku Guðs föðurins og er birtingarmynd þeirrar elsku.

Jesús Kristur er bæði fordæmið og leiðin. Í Kristi getum við betur skilið fullkomna eiginleika föðurins og áætlunar hans. Fyrir Krist er okkur gefinn hinn virkjandi kraftur til að sigrast á tilhneigingum náttúrlegra karla og kvenna, svo við getum orðið líkari föðurnum.

Alveg eins og himneskur faðir okkar, þá er Jesús Kristur fullkomlega miskunnsamur og réttvís. Þessir guðlegu eiginleikar réttlætis og miskunnar standa ekki gegn hvor öðrum. Þeir mynda saman heild. Bæði réttlæti og miskunn sýna fullkomna elsku Guðs á börnum sínum. Við getum treyst Guði föðurnum og Jesú Kristi vegna þess að þeir eru réttlátir og sanngjarnir við okkur öll.

Guð faðirinn og sonur hans, Jesús Kristur, eru fullkomlega samstilltir í tilgangi og elsku. Vegna þess að Guð og Jesús Kristur elska okkur er okkur veitt það tækifæri og þau forréttindi, sem sannir lærisveinar, að gera sáttmála við þá. Með því að gera svo, er samband okkar við Krist víkkað út: „Og vegna sáttmálans, sem þér hafið gjört, skuluð þér nefnast börn Krists, synir hans og dætur hans. Því að sjá. Á þessum degi hefur hann getið yður andlega, því að þér segið, að hjörtu yðar hafi breyst fyrir trú á nafn hans. Þess vegna eruð þér af honum fædd og eruð orðin synir hans og dætur hans.“

Þegar við sem lærisveinar gerum og höldum helga sáttmála, erum við blessuð með andlegum krafti. Við erum tengd Kristi og Guði föðurnum í sérstöku sambandi og getum upplifað elsku þeirra og gleði, í þeim mæli sem er geymdur þeim sem hafa gert og haldið sáttmála. Hæfni okkar til að skynja elsku Guðs að fullu eða að vera stöðug í elsku hans, er háð réttlátum þrám okkar og gjörðum.

Í 15. kafla Jóhannesarguðspjalls, versi 9, lesum við: „Ég hef elskað yður eins og faðirinn hefur elskað mig.“ Og síðan fáum við boðið: „Verið stöðug í elsku minni.“

Í næsta versi er okkur gefin leið til að vera stöðug í elsku hans: „Ef þér haldið boðorð mín verðið þér stöðug í elsku minni, eins og ég hef haldið boðorð föður míns og er stöðugur í elsku hans.“

Við sjáum síðan tilganginn með því að halda boðorðin í versi 11: „Þetta hef ég talað til yðar til þess að fögnuður minn sé í yður og fögnuður yðar sé fullkominn.“

Með sannri sáttmálsgjörð lærisveinsins, getum við byrjað að skilja betur eðli Guðs og gleðina sem hann vill að öll börn hans upplifi. Við getum einnig byrjað að skilja nokkrar reglur sem gætu virst ruglandi til að byrja með. Hvernig getur Guð til dæmis haft fyllingu gleði þegar sum barna hans þjást svo mikið? Svarið liggur í fullkominni yfirsýn Guðs og fullkominni áætlun hans. Hann sér okkur frá upphafi til okkar dýrðlegu mögulegu framtíðar. Hann hefur séð okkur öllum, börnum hans, fyrir leið, fyrir milligöngu sonar síns Jesú Krists, til að sigrast á sársauka, þjáningum, syndum, sekt og einmanaleika jarðlífs okkar. Guð hefur séð okkur fyrir leiðinni og valkostinum.

Dæmi um þá sem hafa upplifað gleði í gegnum lærisveinshlutverkið gætu hjálpað okkur að skilja betur þessa hugmynd. Kannski hafið þið heyrt orðatiltækið að við séum einungis jafn hamingjusöm og óhamingjusamasta barnið okkar. Ég hef komist að því að þetta þarf ekki að vera raunin. 94 ára móðir mín á meira en 200 lifandi afkomendur. Á hverjum tímapunkti er að minnsta kosti einn af þessum 200 óánægður. Ef þessi fullyrðing væri sönn, þá væri móðir mín varanlega óhamingjusöm, sem hún er ekki. Þeir sem þekkja hana vita hve glöð hún er.

Ég vil deila með ykkur annari upplifun. Í janúar 2019 var mér og Debbie eiginkonu minni boðið inn á skrifstofu Nelsons forseta. Hann hafði komið fyrir stól nálægt okkur og við sátum nánast hné við hné. Eftir að hafa veitt okkur núverandi köllun okkar, snéri Nelson forseti sér að Debbie og einbeitti sér að henni. Hann var góðviljaður, ástríkur, blíður og fullur af gleði, eins og hinn fullkomni faðir eða afi. Hann hélt í hönd Debbie og klappaði henni, fullvissaði hana um að allt yrði í lagi og fjölskylda okkar yrði blessuð. Á því augnabliki fannst okkur við vera mikilvægasta fólkið fyrir honum og að hann hefði allan tímann í heiminum fyrir okkur. Við yfirgáfum skrifstofu hans þetta föstudagssíðdegi hughreyst, elskuð og glöð.

Á mánudaginn sáum við fréttirnar. Sama dag og Nelson forseti hafði verið með okkur hafði ein dætra hans látist af völdum krabbameins. Við vorum agndofa. Hjörtu okkar voru hrærð er við syrgðum fyrir hans hönd og fjölskyldu hans. Hjörtu okkar voru einnig full þakklætis fyrir kristilega umönnun hans meðan hann syrgði dóttur sína sem þjáðist.

Þegar við hugleiddum þessa upplifun, spurðum við okkur: „Hvernig gat hann verið svona góðviljaður, ástríkur og jafnvel glaður á svona erfiðum tíma?“ Svarið er vegna þess að hann veit. Hann veit að Kristur sigraði. Hann veit að hann mun vera með dóttur sinni á ný og mun verja eilífðinni með henni. Gleði og eilíf yfirsýn hljótast með því að vera bundin frelsaranum með því að gera og halda sáttmála og með kristilegum lærisveinsdómi.

Nelson forseti hefur kennt: „Á sama hátt og frelsarinn býður frið sem er ‚æðri öllum skilningi‘ [Filippíbréfið 4:7], þá býður hann líka svo djúpa og mikla gleði, að hún er æðri mannlegri röksemd eða skilningi. Það virðist til að mynda ekki mögulegt að finna gleði þegar barnið manns þjáist af ólæknandi sjúkdómi eða þegar við missum atvinnuna eða þegar maki okkar er ótrúr. Það er samt einmitt slíka gleði sem frelsarinn býður okkur.“

Þegar við gerum og höldum sáttmála, munum við náttúrulega snúa út á við og hafa þrá til að hjálpa öðrum að finna þá gleði og elsku sem við finnum í sáttmálssamböndum okkar. Við getum verið hluti af mikilvægasta málstað á jörðinni á okkar tíma – samansöfnun Ísraels. Við getum hjálpað við að færa börn Guðs til Krists. Líkt og spámaðurinn Jakob kenndi: „Og blessaðir eruð þið, því að vegna þess að þið hafið unnið af kostgæfni með mér í víngarði mínum og hlýtt fyrirmælum mínum og hafið fært mér aftur hinn náttúrlega ávöxt… þá skuluð þið njóta gleði með mér yfir ávöxtum víngarðs míns.“

Þegar við skuldbindum okkur til að vera sáttmálslærisveinar, hvert svo sem hlutverk okkar er, þá er samband okkar við föðurinn og soninn auðgað, gleði okkar eykst og eilíf yfirsýn okkar útvíkkuð. Við erum síðan gædd krafti og getum fundið gleði í þeim mæli sem er geymdur hinum sönnu sáttmálslærisveinum Guðs. Í hinu helga nafni Jesú Krists, amen.

Heimildir

  1. Kenning og sáttmálar 93:21.

  2. Sjá Matteus 1:21; 2. Nefí 2:6.

  3. Jóhannes 3:16.

  4. Mósía 5:7.

  5. Sjá Russell M. Nelson, „Hinn ævarandi sáttmáli,“ Líahóna, október 2022.

  6. Sjá Dale G. Renlund, „Experience God’s Love“ (trúarsamkoma í Brigham Young-háskóla, 3. des. 2019), speeches.byu.edu.

  7. Jóhannes 15:9–11.

  8. Sjá Alma 7:11–13.

  9. Russell M. Nelson, „Gleði og andleg þrautsegja,“ aðalráðstefna, október 2016.

  10. Sjá Russell M. Nelson, „Hope of Israel“ (heimslæg trúarsamkoma fyrir ungt fólk, 3. júní 2018), Gospel Library.

  11. Jakob 5:75.

  12. Sjá „Hesed, sáttmálselska Guðs, er ástæða þess að við byggjum musteri og framkvæmum helgiathafnir: Leiðbeiningar frá Russell M. Nelson forseta,“ leiðtogafundur aðalráðstefnu, okt. 2024, Gospel Library.