Aðalráðstefna
„Snúið aftur til mín … svo ég megi gjöra yður heila“
Aðalráðstefna apríl 2025


11:3

„Snúið aftur til mín … svo ég megi gjöra yður heila“

Það er fagnað á himni yfir þeim sem snúa aftur. Það er ekki of seint fyrir ykkur að koma til baka.

Við bjuggum eitt sinn í húsi umkringdu tignarlegum trjám. Við innganginn var fallegt víðitré. Eina dapurlega nótt, blés öflugur stormur og víðitréð féll um koll. Það lá á jörðinni með ræturnar upprifnar og sorglegt var að horfa á það.

Ég var tilbúinn að kveikja á keðjusöginni og saga tréð niður til að nota í eldivið, þegar nágranni okkar kom hlaupandi út til að stöðva mig. Hann ávítaði mig fyrir að gefast upp á trénu og hann hvatti okkur með hluttekningu til að losa okkur ekki við það. Síðan benti hann á eina rótina sem var enn í jörðinni og sagði, að ef við myndum reisa tréð við, saga af því greinarnar og gefa því næringu myndu ræturnar ná festu aftur á ný.

Fallið víðitré.
Ein trjárót eftir í jörðu.

Ég hafði mínar efasemdir og sá ekki hvernig tréð, sem var fallið og í vandræðum, gæti mögulega náð sér eftir þetta og lifnað við. Ég hugsaði að jafnvel þótt það tæki að vaxa aftur, myndi það ekki lifa af næsta storm. En vitandi að nágranni okkar trúði enn að tréð ætti sér framtíð, fórum við að ráðum hans.

Ber trjástofn.
Merki um vöxt á trénu.

Og niðurstaðan? Eftir nokkurn tíma sáum við merki um líf þegar tréð tók að festa rætur. Núna 12 árum síðar, dafnar tréð og er fullt af lífi, með sterkar rætur og eykur en á ný við fegurð landslagsins.

Lifandi og heilbrigt tré.

Þegar ég hitti trúsystkini um víða veröld, er ég minntur á víðitréð og hvernig það er von þegar allt virðist glatað. Sumir höfðu eitt sinn vitnisburði um fagnaðarerindið sem voru sterkir og lifandi eins og víðitréð. Síðan, af mismunandi persónulegum ástæðum, veiktust þessir vitnisburðir, sem aftur leiddi til þess að trúin glataðist. Aðrir eru áfastir þunnum rótum í jarðvegi fagnaðarerindisins.

Samt sem áður fæ ég aftur og aftur, innblástur af sögum svo margra sem hafa kosið að endurheimta lærisveinsdóm sinn og koma aftur í heimasöfnuð sinn. Fremur en að kasta trú sinni eins og einskis nýtum eldivið, hafa þau brugðist við leiðsögn andans og kærleiksríku boði um að snúa aftur.

Ég tók þátt í stikuráðstefnu í Kóreu, þar sem viðsnúinn meðlimur sagði: „Ég þakka bræðrunum fyrir vilja þeirra til að umbera vantrú mína og veikleika, til að liðsinna mér, og fyrir meðlimi sem alltaf eru svo góðir við mig. Ég á enn fullt af vinum sem eru lítt virkir. Það er fyndið, en þeir segja hver öðrum að fara aftur í kirkju til endurnýja trú sína. Ég held kannski að þeim langi öllum til að trúa.“

Við bjóðum öllum sem vilja trú að koma til baka. Ég lofa að trú ykkar getur orðið styrkari er þið enn á ný takið að tilbiðja með trúsystkinum.

Fyrrverandi trúboði frá Afríku skrifaði eldri kirkjuleiðtoga, biðjandi afsökunar og leitandi fyrirgefningar fyrir að hafa móðgast út af kennslu hans um ákveðna menningarhefð, sem fékk hann til að yfirgefa kirkjuna. Hann sagði auðmjúklega: „Því miður hefur sú staðreynd að ég móðgaðist fyrir 15 árum neytt mig til að greiða einstaklega þungt gjald. Ég glataði svo miklu– meiru en ég hefði nokkurn tíma ímyndað mér. Ég skammast mín innilega fyrir skaðann sem ég kann að hafa valdið á leiðinni, en umfram allt er ég ánægður með að hafa ratað til baka.”

Við bjóðum öllum, sem vita hverju þeir hafa glatað, að koma aftur, svo þið getið enn á ný bragðað af hinum gleðigefandi ávexti fagnaðarerindisins.

Systir í Bandaríkjunum yfirgaf kirkjuna í mörg ár. Sagan af endurkomu hennar hefur að geyma áhrifamiklar lexíur fyrir foreldra og fjölskyldumeðlimi sem þjást vegna ástvina sem yfirgefa kirkjuna. Hún skrifaði:

„Ég gæti skrifað niður mýgrút ástæðna fyrir því að ég fór frá kirkjunni, fagnaðarerindinu og um leið frá fjölskyldunni minni. En þær skipta engu máli. Ég tók enga eina stóra ákvörðun um að yfirgefa kirkjuna – ég tók líklega þúsund ákvarðanir. En eitt sem ég hef alltaf vitað, er að foreldrar mínir tóku eina stóra ákvörðun og þau stóðu við hana. Þau ákváðu að elska mig.

Ég gæti ekki mögulega vitað hversu mörg tár hafa fallið, hversu margar svefnlausar nætur hafa verið eða hversu mörg hjartfólgin bænarorð hafa verið sögð í mína þágu. Þau höfðu ekki orð á syndum mínum; þau kölluðu öllu heldur til mín í syndum mínum. Þau létu mig ekki finnast ég vera óvelkomin á heimili þeirra og á fjölskyldusamkomum, allar slíkar tilfinningar voru af mínum eigin völdum. Þess í stað héldu þau áfram að bjóða mig velkomna. Þau hljóta að hafa sé ljósið mitt dofna með tímanum. En þau vissu að manneskjan sem ég var þá, var bara skuggi af því sem ég átti eftir að verða.

Rétt eins og leið mín frá kirkjunni var flókin, var leið mín til baka það einnig. En það eina sem var ekki erfitt við að koma aftur, var sú tilfinning að vera komin aftur heim þar sem ég tilheyrði.“

Boðskapur minn í dag er sérstaklega til allra sem eitt sinn fundu fyrir andanum, en efast um hvort til sé leið til baka eða staður fyrir þau í hinni endurreistu kirkju Jesú Krists. Hann er líka fyrir þau öll sem hafa litla festu eða þau sem láta freistast til að fara í burtu.

Þessi boðskapur er ekki áskorun og hann er ekki fordæming. Hann er boð, sett fram af kærleika og einlægum vilja til að bjóða ykkur aftur velkomin til andlegs heimilis ykkar.

Ég hef beðið fyrir því að þið finnið vitnisburð heilags anda er þið nú heyrið þetta kærleiksríka boð og stórkostlega loforð frelsara okkar Jesú Krists:

„Viljið þér nú ekki snúa til mín, og iðrast synda yðar, og snúast til trúar, svo ég megi gjöra yður heila?”

Í hverri viku svara margir boði frelsarans með því að endurheimta lærisveinsdóm sinn, snúa aftur til virkrar kirkjuþátttöku og sækjast hljóðlega og auðmjúklega eftir þeirri lækningu sem Jesús lofar. Og andstætt þeirri umfjöllun sem stundum fer á kreik, þá er metfjöldi ungs fólks að velja að vera áfram sterk og vaxa í trú sinni á Jesú Krist.

Þegar nokkrum fylgjenda Jesú í Kapernaum fannst kenningar hans harðneskjulegar og þeir kusu að fara, snéri hann sér að postulum sínum og spurði: „Ætlið þið að fara líka?“

Þetta er spurningin sem við, hvert og eitt okkar, verðum að svara á okkar einstaklingsbundnu stundum prófrauna. Svar Símons Péturs er sígilt og endurómandi: „Drottinn, til hvers ættum við að fara? Þú hefur orð eilífs lífs.“

Hvað gætuð þið þá lært af sögunni um víðitréð, er þið íhugið boð frelsarans um að snúa aftur til hans?

  1. Ferðin til baka er oft ekki auðveld eða þægileg, en hún er þess virði. Þegar víðitréð hafði verið reist aftur við, var búið að saga af því allar greinarnar. Það var ekki fallegt. Okkur getur líka fundist við vera berskjölduð er við losum okkur við gamlar lífsvenjur og afklæðumst hrokanum. Að beina trú ykkar að Jesú Kristi og fagnaðarerindi hans – stofninum og rótunum – mun gefa ykkur von og hugrekki til að taka fyrsta skrefið til baka.

  2. Það tók mörg ár fyrir víðitréð að ná aftur fyrri styrk og fegurð. Nú er það jafnvel sterkara og fallegra en áður. Verið þolinmóð þegar trú og vitnisburður ykkar vaxa líka. Það felur í sér að móðgast ekki við hugsunarlaus orð eins og: „Hvar hefurðu verið öll þessi ár?“

  3. Víðitréð hefði aldrei lifað af án stöðugrar umönnunar og næringar. Þið munuð næra trú ykkar og vitnisburð ykkar, er þið neytið af borði sakramentis í hverri viku og tilbiðjið í húsi Drottins.

  4. Rétt eins og víðitréð þurfti sólskin fyrir greinarnar og laufin til að vaxa aftur, svo og mun vitnisburður ykkar vaxa, er þið verðið áfram næm fyrir tilfinningum og vitnisburði andans. Lærið af Amúlek, sem lýsti tíma sínum sem lítt virkum meðlim með því að segja: „Ég var kallaður mörgum sinnum, en ég vildi ekki heyra.“

  5. Nágranni minn vissi að hverju víðitréð gæti aftur orðið. Þannig þekkir Drottinn guðlega möguleika ykkar og að hverju trú ykkar og vitnisburður ykkar geta orðið. Hann mun aldrei gefast upp á ykkur. Fyrir friðþægingu Jesú Krists, er hægt að gera allt heilt sem brotið er.

Ég ber því vitni að fagnað er á himni yfir þeim sem snúa aftur. Ykkar er þörf og þið eruð elskuð. Ég ber vitni um að Jesús Kristur er frelsari okkar og að hann blessar alla sem snúa aftur til hans með meiri frið og mikilli gleði. Armar miskunnar hans eru ekki krosslagðir, heldur opnir og útbreiddir í átt að ykkur. Það er ekki of seint fyrir ykkur að koma til baka. Af öllum hjartans kærleika, bjóðum við ykkur velkomin heim. Í nafni Jesú Krists, amen.

Heimildir

  1. Þetta var og er enn trúboðsstöð fyrir Washington Spokane trúboðið. Myndirnar af víðitrénu voru teknar af eiginkonu minni, Jacqui.

  2. 3. Nefí 9:13. Athugið að boðið að iðrast á við okkur öll. Sjá 1. Jóhannesarbréf 1:8 („Ef við segjum: ‚Við höfum ekki synd,‘ þá blekkjum við sjálf okkur“) og boð Russels M. Nelson forseta um að iðrast daglega: „Máttur andlegs skriðþunga,“ aðalráðstefna, apríl 2022.

  3. Sjá Quentin L. Cook, “Facing Life and Faith Challenges” (worldwide devotional for young adults, Nov. 14, 2023), Gospel Library: „Ykkur til fróðleiks þá eru ungmenni og ungt fólk ekki minna virkt eða að yfirgefa kirkjuna í meiri mæli en áður, eins og hefur verið dreift víða. Fjöldi trúboða sem kallaðir eru til að þjóna hefur aukist verulega. Hlutfall kirkjuþátttöku fyrir rísandi kynslóð sýnir stöðuga hækkun. Þar að auki hefur fjöldi ungra fullorðinna, sem sækja trúarskóla eldri deildar, einnig verið að aukast.“

    Sjá einnig D. Todd Christofferson and Clark G. Gilbert, „Video: Elder Christofferson Challenges Narrative, Says Spirit Working in Youth,” Church News, 13.desember 2024, newsroom.ChurchofJesusChrist.org.

  4. Jóhannes 6:67.

  5. Jóhannes 6:68.

  6. Sjá Alma 5:28.

  7. Sjá Dieter F. Uchtdorf, „Nærið ræturnar og greinarnar munu vaxa,“ aðalráðstefna, október 2024, „Jesús Kristur og friðþægingarfórn hans eru rætur vitnisburðar okkar. Allt annað eru greinar. … Þegar kemur að því að næra vitnisburð okkar um Jesú Krist, velti ég fyrir mér hvort við höldum stundum að greinarnar séu ræturnar. … Nærið ræturnar og greinarnar munu vaxa.“

  8. Sjá Alma 32:41.

  9. Sjá Russell M. Nelson, „Hugsið himnesktaðalráðstefna, október 2023, „Að verja auknum tíma í musterinu eflir trú. Og þjónusta ykkar og tilbeiðsla í musterinu mun hjálpa ykkur að hugsa himneskt.“

    Sjá Russell M. Nelson, „Gleðjumst yfir gjöf prestdæmislykla,“ aðalráðstefna, apríl 2024; þetta er loforð mitt. Ekkert hjálpar ykkur meira við að halda fast í járnstöngina en að tilbiðja í musterinu. … Ekkert getur styrkt meira vitnisburð ykkar um Drottin Jesú Krist og friðþægingu hans eða hjálpað ykkur að skilja betur hina undursamlegu áætlun Guðs.

  10. Sjá Alma 32:28.

  11. Alma 10:6.

  12. Sjá Patrick Kearon: „Ætlun Guðs er að leiða ykkur heim,“ aðalráðstefna, apríl 2024, „Guð leitar ykkar linnulaust.“

  13. Sjá Jeffrey R. Holland, „Að bæta hið brotna,“ aðalráðstefna,, apr 2006.

  14. Sjá Lúkas 15:11–32; Kenning og sáttmálar 18:13.

  15. Sjá Jóhannes 15:9.

  16. Sjá Alma 5:33.

  17. Sjá Russell M. Nelson, „Drottinn Jesús Kristur mun koma aftur,” aðalráðstefna, október 2024: „Það er hvorki of snemmt, né of seint fyrir ykkur að verða trúfastir lærisveinar Jesú Krists. Þá munið þið upplifa blessanir friðþægingar hans að fullu.“

    Sjá einnig Russell M. Nelson, „Máttur andlegs skriðþunga,” 99: „Ef ykkur finnst þið hafa villst of langt frá eða verið of lengi fjarri sáttmálsveginum og sjáið enga leið til baka, þá er það einfaldlega ekki satt.“