Aðalráðstefna
Herðið ekki hjörtu ykkar
Aðalráðstefna apríl 2025


11:6

Herðið ekki hjörtu ykkar

Ef við iðrumst einlæglega, auðmýkjum okkur og treystum á Drottin, munu hjörtu okkar mildast.

Endurreisn fagnaðarerindis Jesú Krists hófst þegar Guð faðirinn og hans ástkæri sonur birtust hinum unga Joseph Smith og svöruðu auðmjúkri bæn hans. Joseph Smith þýddi fornar heimildir fyrir gjöf og kraft Guðs, sem hluta af endurreisninni. Þessi heimild segir frá „samskiptum Guðs við forna íbúa Ameríku og geymir fyllingu hins ævarandi fagnaðarerindis“.

Þegar ég las Mormónsbók sem ungur drengur, velti ég oft fyrir mér hvers vegna Laman og Lemúel trúðu ekki þeim sannleika sem þeim var gefinn, jafnvel þótt engill Drottins hefði birst og talaði beint til þeirra. Hvers vegna gátu Laman og Lemúel ekki verið auðmjúkari og hlýðnari kenningum Lehís föður síns og yngri bróður síns, Nefís?

Ég fann eitt svaranna við þessari spurningu í 1. Nefí, þar sem segir að Nefí hafi verið hryggur yfir því hve „harðir þeir voru í hjarta“. Nefí spurði eldri bræður sína: „Hvernig má það vera, að þið eruð svo harðbrjósta og blindir í anda?“

Hvað felst í því að vera harðir í hjarta?

Kóreska þýðingin á „harðir“ í Mormónsbók er 완악 (Wan-Aak: 頑惡). Þetta orðtak notar kínverska táknið „Wan“ (頑), sem þýðir „þrjóskur“ og „Aak“ (惡), sem þýðir „óréttlátur“. Þegar við herðum hjörtu okkar, verðum við blinduð og hið góða nær ekki að berast í hjörtu okkar eða huga. Við verðum þrjósk og förum að einblína meira á veraldlegar langanir og lokum hjörtum okkar fyrir því sem Guðs er. Við veljum að einblína eingöngu á eigin hugsanir en meðtaka ekki skoðanir og leiðsögn annarra. Við veljum að ljúka ekki upp hjörtum okkar fyrir því sem Guðs er, heldur frekar fyrir áhrifum þess sem heimsins er og fyrir andstæðingnum. Þegar hjörtu okkar herðast, spyrnum við gegn áhrifum heilags anda. Við erum „sein til að minnast Drottins“ og með tímanum verðum við „tilfinningalaus“ fyrir orðum hans.

Alma kenndi fólkinu í Ammóníaborg að sumir myndu „afneita anda Guðs vegna hörkunnar í hjörtum sínum og blindunnar í hugum sínum“. Hann kenndi líka að „þeim, sem vilja herða hjörtu sín, er gefinn minni hluti orðsins, þar til þeir vita ekkert um leyndardóma hans“. Að lokum dregur andinn sig í hlé og Drottinn „mun … taka orð [sitt] frá þeim“ sem hafa hert hjörtu sín, rétt eins og Laman og Lemúel. Þar sem Laman og Lemúel hertu stöðugt hjörtu sín, spyrntu gegn áhrifum heilags anda og völdu að meðtaka ekki orð og kenningar föður síns og Nefís, höfnuðu þeir að lokum eilífum sannleika frá Guði.

Öfugt við Laman og Lemúel, auðmýkti Nefí sig stöðugt og leitaði leiðsagnar anda Drottins. Í staðinn mildaði Drottinn hjarta Nefís. Nefí miðlar því að hann „ákallaði Drottin. Og sjá. Hann vitjaði mín og mildaði hjarta mitt svo, að ég lagði trúnað á öll orð föður míns“. Drottinn hjálpaði Nefí að meðtaka, skilja og trúa öllum leyndardómum Guðs og orðum hans. Nefí varð mögulegt að njóta stöðugs samfélags heilags anda.

Hvað getum við gert til að forðast að herða hjörtu okkar?

Til að byrja með, getum við iðkað daglega iðrun.

Frelsari okkar kenndi: „Ég [mun] taka við hverjum þeim, sem iðrast og kemur til mín sem lítið barn.“ Ástkær spámaður okkar, Russell M. Nelson, kenndi:

„Iðrun er lykillinn að framþróun. Sönn trú hjálpar okkur að halda áfram á sáttmálsveginum.

Óttist hvorki að iðrast, né sláið iðrun á frest. Satan hefur yndi af eymd ykkar. … Byrjið í dag á því að upplifa gleði þess að afklæðast hinum náttúrlega manni. Frelsarinn elskar okkur alltaf, en einkum þegar við iðrumst.“

Þegar við upplifum gleði þess að milda hjörtu okkar og koma til Drottins verðum við „sem barn, undirgefið, hógvært, auðmjúkt, þolinmótt, elskuríkt og reiðubúið að axla allt, sem Drottni þóknast á [það] að leggja, á sama hátt og barn, sem beygir sig fyrir föður sínum“.

Í öðru lagi, getum við sýnt auðmýkt.

Dagleg iðrun mun færa okkur auðmýkt í hjarta. Við viljum verða auðmjúk frammi fyrir Drottni, eins og lítið barn sem hlýðir föður sínum. Við munum þá alltaf hafa heilagan anda með okkur og hjörtu okkar munu mildast.

Ég og eiginkona mín, Sue, höfum þekkt dásamleg hjón síðastliðin fjögur ár. Þegar við kynntumst þeim upphaflega, var eiginmaðurinn nýr meðlimur kirkjunnar og eiginkona hans var að hitta trúboðana til að læra fagnaðarerindið. Margir trúboðar hittu hana til að hjálpa henni að koma til Krists. Okkur fannst að hún hefði lifandi vitnisburð um fagnaðarerindið og vissi að kirkjan væri sönn. Hún fann oft fyrir andanum í heimsóknum okkar og tók virkan þátt í öllum samkomunum. Hún naut þess að eiga samskipti við hina dásamlegu meðlimi deildarinnar. Henni fannst þó erfitt að skuldbinda sig til að fara ofan í skírnarvatnið. Dag einn var hún að lesa Moróní 7:43–44, þar sem segir:

„Og sjá, ég segi yður enn fremur, að hann getur ekki átt trú og von án þess að hann sé hógvær og af hjarta lítillátur.

Án þess er trú [þín] og von til einskis, því að enginn er Guði velþóknanlegur, nema hinn hógværi og af hjarta lítilláti.“

Eftir að hafa lesið þessi vers, áttaði hún sig á því hvað hún þurfti að gera. Hún taldi sig hafa skilið merkingu þess að vera hógvær og auðmjúk. Skilningur hennar var þó ekki nægjanlegur til að hafa trú og von til að hlýða boðorðum Guðs. Hún varð að láta af þrjósku og eigin visku. Hún hóf að auðmýkja sig með einlægri iðrun. Hún fór að skilja auðmýkt út frá sjónarhorni Guðs. Hún reiddi sig á himneskan föður og bað þess að hún mildaðist í hjarta. Í gegnum þessar bænir fann hún andann vitna um að himneskur faðir vildi að hún skírðist.

Bæði eiginmaðurinn og eiginkonan sögðu frá því að því auðmjúkari sem þau urðu, því betur hefðu þau skilið þau orð Guðs og að hjarta þeirra mildaðist við að fylgja kenningum Drottins Jesú Krists.

Í þriðja lagi, getum við treyst og reitt okkur á frelsara okkar.

Nefí var frábært dæmi um að leyfa að hjarta sitt mildaðist er hann treysti Drottni. Hann kenndi: „Ég hef treyst þér og mun að eilífu treysta þér. Ég mun ekki setja traust mitt á arm holdsins.“ Á sama hátt sagði Drottinn í opinberun til spámannsins Josephs Smith: „Set traust þitt á þann anda, sem leiðir til góðra verka – já, til að breyta rétt, til að ganga í auðmýkt.“ Þegar við setjum traust okkar á Drottin og treystum á hann, mun hann milda hjörtu okkar og við hljótum stuðning í raunum okkar, erfiðleikum og þrengingum.

Ef við iðrumst einlæglega, auðmýkjum okkur og treystum á Drottin, munu hjörtu okkar mildast. Hann mun þá úthella anda sínum og sýna okkur leyndardóma himins. Við munum trúa öllu því sem hann hefur kennt og skilningur okkar mun dýpka.

Frelsari okkar, Jesús Kristur, var æðsta fordæmi hógværðar. Í 2. Nefí 31:7, lesum við: „En þótt hann væri heilagur, sýndi hann mannanna börnum, að í holdinu auðmýkti hann sig fyrir föðurnum og vitnaði fyrir föðurnum að hann vildi hlýða honum og halda boðorð hans.“ Þótt hann væri heilagur og fullkominn, auðmýkti hann sig frammi fyrir föðurnum og hlýddi honum með því að láta skírast.

Við lok jarðlífs síns, laut Jesús Kristur vilja föður síns með því að bergja hinn beiska bikar. Sú þjáning varð þess valdandi að hann „skalf af sársauka og blóð draup úr hverri svitaholu, og þjáðist bæði á líkama og í anda“. Frelsarinn bað þess að hann „þyrfti ekki bergja þennan beiska bikar“. „Dýrð sé föðurnum eigi að síður,“ sagði hann, „og [hann] tæmdi [bikarinn] og lauk undirbúningi [sínum] fyrir mannanna börn.“

Bræður og systur, okkur hefur verið gefið siðferðislegt sjálfræði. Við getum valið að herða hjörtu okkar eða við getum valið að milda hjörtu okkar. Í okkar daglega lífi getum við valið að gera það sem býður anda Drottins að koma og dvelja í hjörtum okkar. Ég veit að í slíkum ákvörðunum veitist friður og gleði.

Fylgjum fordæmi frelsara okkar, Jesú Krists, sem fylgdi vilja föðurins. Þegar við gerum svo, hefur Drottinn lofað okkur: „Því að sjá, ef þeir herða ekki hjörtu sín, mun ég safna þeim saman eins og þegar hæna safnar ungum sínum undir vængi sér.“ Í nafni Jesú Krists, amen.