Aðalráðstefna
Trú: Skuldbinding trausts og hollustu
Aðalráðstefna apríl 2025


11:17

Trú: Skuldbinding trausts og hollustu

Trúin vex er við treystum Jesú Kristi og blómgast er við erum trúföst og trygg honum.

Þegar ég var 17 ára gerði ég samning við vin minn José Luis um að kenna honum að synda. Einn morguninn ákváðum við því að gefa okkur tíma til æfingar. Þegar kennslustundinni lauk og ég var að stíga upp úr lauginni, heyrði ég vin minn hrópa á hjálp. Hann var að drukkna í dýpri enda laugarinnar.

Ég stökk ofan í vatnið og synti í átt að honum og baðst samtímis fyrir um hjálp. Þegar ég greip í hönd hans til að draga hann upp á yfirborðið, klifraði örvæntingarfullur vinur minn upp á bakið á mér og tók mig hálstaki. Nú vorum við báðir að drukkna. Ég reyndi hvað ég gat að komast upp á yfirborðið og bað af öllum mætti um kraftaverk frá Guði. Síðan, hægt en stöðugt, sýndi kraftur Guðs sig, er ég fann að hönd ýtti mér áfram í átt að grynnri enda laugarinnar, svo við urðum hólpnir.

Þessi upplifun staðfesti djúpstæða lexíu sem Russell M. Nelson forseti eitt sinn kenndi: „Þegar þú teygir þig eftir krafti Drottins í lífi þínu með sama afli og drukknandi manneskja gerir þegar hún berst við að ná lofti, þá munið þið öðlast kraft frá Jesú Kristi.“

Kæru börn og ungmenni, í dag langar mig að tala við ykkur um hina mikilvægu reglu trúar á Jesú Krist.

Trú á Krist merkir að treysta honum

Hvað felst í því að trúa á Krist? Merkir það að við trúum á hann eða eigum vitnisburð um að hann sé raunverulegur? Það gæti verið byrjun, en það er meira en það. Hafið þið einhvern tíma hugsað um trú sem traust? Hugsið um þann einstakling sem þið treystið mest – hugsanlega fjölskyldumeðlim eða vin. Af hverju treystið þið honum? Það er líklega vegna þess að þið hafið séð stöðuga elsku hans og hjálpsemi.

Þegar við trúum á Krist, berum við kennsl á blessanir hans og þróum traust samband við hann.

Hvernig getið þið aukið traust ykkar á Kristi?

Á nýlegri trúarsamkomu ungmenna var ykkur boðið að hugleiða tíma í lífi ykkar, þegar þið hlutuð geisla himnesks ljóss. Reynið þessa æfingu!

Byrjið á því að hugleiða um Krist og hamingjuna sem friðþæging hans og fagnaðarerindi færa í líf ykkar. Skráið einnig „andlega auðkennandi minningar“, þar sem Guð hefur verið til staðar fyrir ykkur, ástvini ykkar og fólkið í ritningunum. Þessir vitnisburðir munu ekki færa ykkur kraft fyrr en andinn ritar þá á „hjartaspjöld“ ykkar. Ígrundið því og skráið allt það sem Guð setti af stað til að þessi kraftaverk myndu gerast á nákvæmlega réttum tíma.

Notið svo þessa æfingu sem tækifæri til að komast nær Guði. Biðjið til himnesks föður eins og það væri í fyrsta sinn. Tjáið elsku ykkar og þakklæti fyrir blessanir hans. Spyrjið hann jafnvel hvað honum finnist um ykkur og um þá stefnu sem líf ykkar er á.

Ef þið eruð einlæg og auðmjúk, munið þið heyra svar hans og hefja persónulegt og varanlegt samband við himneskan föður og Jesú Krist. Ekki nóg með það, heldur munu trúarvenjur ykkar verða þýðingarmiklar! Þið munið til að mynda hlakka til bæna ykkar, einkanáms og musteristilbeiðslu sem tækifæris til að kynnast þeim og vera með þeim.

Trú blómstrar með hollustu

Takið eftir að trúin vex þegar við treystum Jesú Kristi og blómgast er við erum trúföst og trygg honum. Ef þið viljið eiga raunverulegt samband við Krist, sýnið honum það þá með því að gera sáttmála og heiðra þá af trúfesti og hollustu. Að gera sáttmála við Jesú Krist, eflir von. Að heiðra þá, eflir trú.

Ég ætla að nota persónulegt dæmi: Þegar ég var barn, kom ég einn daginn að móður minni grátandi. Þegar ég spurði hana að ástæðunni, sagði hún ljúflega: „Ég þarf á því að halda að þú verðir góður strákur.“ Þótt ég vissi að ég væri ekki orsök þjáningar hennar, elskaði ég móður mína og bar meira traust til hennar en nokkurs annars og vildi létta henni lífið. Ég lofaði henni því, með tár í augum og af öllum þeim hátíðleika sem níu ára barn fær haft, að ég myndi alltaf keppa að því að vera góður sonur og gera hana stolta.

Getið þið ímyndað ykkur kraftinn sem þetta loforð hafði – og hefur enn – á mig?

Þetta loforð sem ég gaf henni var áhrifavaldur lífs míns. Áður en ég tók ákvarðanir, hugleiddi ég hvort breytni mín myndi þóknast henni. Skuldbinding þessa loforðs og sambandið við móður mína voru akkeri í breytni minni alla ævi.

Árum síðar, þegar ég kynntist Jesú Kristi betur, vissi ég þegar hvernig grundvalla ætti trú mína á honum. Ég gerði sáttmála við Drottin og þegar ég hef leitast við að heiðra þá, hefur hann fyrirgefið mér syndir mínar, haft áhrif á líf mitt og „fyllt mig elsku sinni“, já, hvern minn sálarkima. Kristur hefur innrætt mér djúpa elsku, virðingu og hollustu til sín.

Skiljið þið af hverju trú byggist á verkum og að „án trúar er ógerlegt að þóknast [Guði]“?

Þegar þið reynið að gera það sem honum þóknast, munið þið segja það sama og Jósef í Egyptalandi þegar eiginkona Pótífars freistaði hans: „Hvernig fæ ég þá drýgt þessa miklu illsku og syndgað gegn Guði?“ Og þegar þið standið frammi fyrir mótlæti, munið þið segja líkt og spámaðurinn ungi, Joseph: „Ég vissi það, og ég vissi að Guð vissi það, og ég gat ekki neitað því. … Ég vissi, að með því mundi ég misbjóða Guði.“

Þannig að trú á Jesú Krist er skuldbinding trausts, grundvölluð á hollustu og kærleika. Með öðrum orðum, í þakklæti fyrir miskunnsama elsku Guðs (hesed), sýnum við trygga elsku okkar (emunah) með því að halda boðorð hans.

Kristur lofar: „Sá sem hefur boðorð mín og heldur þau er sá sem elskar mig. … [Þann] mun faðir minn elska og ég mun elska hann og birta honum hver ég er.“ Ef þið heitið hollustu við hann, mun hann staðfesta ykkur elsku sína.

Trú andspænis mótlæti

Hvernig ættuð þið þá að bregðast við þeim óhagstæðu aðstæðum sem krefjast kraftaverka hans? Þótt áskoranir séu óumflýjanlegar og stundum ógnvekjandi, gangið þá bara óttalaus í átt til hans, líkt og TSU 2025 þemað hvetur til: „Beinið öllum hugsunum yðar til mín. Efist ekki, óttist ekki.“

Hvernig getið þið gengið óttalaus í átt til hans?

Ímyndið ykkur að þið séuð landkönnuður á ókönnuðu svæði. Þið þurfið ljósgjafa til að yfirstíga hindranirnar framundan. Trúfesti ykkar við Guð og stöðug samskipti við hann eru eldsneytið fyrir luktina ykkar. Þegar þið lendið í drungalegum og hættulegum aðstæðum, munuð þið kveikja á luktinni ykkar, fylltri trúarolíu á Krist, til að greina vonartýru á ótryggum vegi, í stað þess að ganga í blindni í átt að þeim. Fyrri upplifanir munu auka von ykkar um að Drottinn muni styðja ykkur á ferðalagi ykkar.

Göngumaður með lukt.

Hversu langt munið þið ganga í von ykkar og trú á Krist?

Munið þið eftir sögunni minni í sundlauginni? Á örvæntingarstundu kom kraftaverkið, eins og ég hafði vænst, en Guð tryggir ekki að það verði alltaf samkvæmt vilja okkar. Trú okkar verður að hafa Krist að þungamiðju og von okkar beinast að blessunum hans, kjósi hann að senda þær. „Væntum kraftaverka,“ en „látum Guð ríkja í lífi okkar.“

Loforð Guðs til sinna trúföstu

Kæru ungu vinir, hve heitt við elskum ykkur og treystum! Þið tilheyrið fjölskyldu Guðs og eruð börn sáttmálans. Trúið á og setjið traust ykkar á Jesú Krist. Hann mun gera ykkur mögulegt að verða sannir lærisveinar hans.

Ég býð ykkur að byrja í dag á því að leggja rækt við samband ykkar við Jesú Krist. Einsetjið ykkur að yfirgefa hann aldrei.

Tryggð ykkar, elska og traust á Kristi mun móta persónuleika ykkar og sjálfsmynd að hans. Þið munuð hljóta fullvissu og styrk til að sigrast á árásum Satans. Þegar þið svo gerið mistök, munuð þið þrá fyrirgefningu hans. Að lokum, þá verður framtíðarvon ykkar björt. Hann treystir ykkur fyrir mætti sínum til að áorka öllu því sem hann væntir af ykkur, jafnvel kraftinum til að snúa aftur í návist hans.

Ég ber ykkur vitni um gleðina sem hlýst af því að syngja „söng hinnar endurleysandi elsku“ og að vera „eilíflega umvafin elskandi örmum hans“. Í hinu helga nafni Jesú Krists, amen.

Heimildir

  1. Russell M. Nelson, „Að færa kraft Jesú Krists inn í líf okkar,“ aðalráðstefna, apríl 2017.

  2. Orðið trú kemur úr latneska orðinu fides, sem þýðir „að treysta“ (sjá Michiel de Vaan, Etymological Dictionary of Latin and the Other Italic Languages [2008], „fido“). Gríska orðið cognate, πίστις, þýðir „að treysta“ (sjá Robert Beekes, Etymological Dictionary of Greek [2010], 1:1161–62).

  3. „Faith is confidence and trust in Jesus Christ“ (Guide to the Scriptures, „Faith,“ Gospel Library).

  4. Sjá „Look unto Christ“ (heimslæg umræða fyrir ungmenni, 5. jan. 2025), Gospel Library; sjá einnig Alexander Dushku, „Stólpar og geislar,“ aðalráðstefna, apríl 2024.

  5. Sjá Neil L. Andersen, „Andlega auðkennandi minningar,“ aðalráðstefna, apríl 2020.

  6. Sjá 2. Korintubréf 3:2–3; sjá einnig Moróní 10:3; Russell M. Nelson, „Hlýð þú á hann,“ aðalráðstefna, apríl 2020.

  7. Sjá Ronald A. Rasband, „Að guðlegri skipan,“ aðalráðstefna, október 2017.

  8. Sjá Mósía 2:20–21; Kenning og sáttmálar 59:21.

  9. Sjá „Appendix 1: Sixth Theological Lecture on Faith, circa January–May 1835, as Published in Latter Day Saints’ Messenger and Advocate,“ 124–25, josephsmithpapers.org.

  10. Sjá Moróní 7:41; sjá einnig Stephen M. R. Covey and Rebecca R. Merrill, The Speed of Trust: The One Thing That Changes Everything (2006), 215.

  11. 2. Nefí 4:21.

  12. „Guð er vinur minn. Í honum mun ég huggun hljóta. … Ég þrái að vera með Kristi. Líf mitt er ekki mikils virði [nema] ég gjöri vilja hans“ (Kenningar forseta kirkjunnar: Joseph Smith [2007], 241).

  13. Bible Dictionary, „Faith.“

  14. Hebreabréfið 11:6.

  15. Sjá Jóhannes 8:29.

  16. 1. Mósebók 39:9.

  17. Joseph Smith – Saga 1:25.

  18. Gordon B. Hinckley forseti kenndi: „Biðjið til himnesks föður ykkar í nafni Drottins Jesú Krists og ætíð, í öllum kringumstæðum, hvers eðlis sem líf ykkar er, sýnið hollustu og kærleika“ („Loyalty,“ Liahona, maí 2003, 60; sjá einnig Brent J. Schmidt, Relational Faith: The Transformation and Restoration of Pistis as Knowledge, Trust, Confidence, and Covenantal Faithfulness [2022], 9; Teresa Morgan, Roman Faith and Christian Faith: Pistis and Fides in the Early Roman Empire and Early Churches [2015], 127–28).

  19. Sjá Russell M. Nelson, „The Everlasting Covenant,“ Liahona, október 2022.

  20. „Hebreska orðið fyrir trú er אמונה (emunah) og er aðgerðamiðað orð sem þýðir ‚stuðningur‘. … [Það] leggur verkið á þann sem ‚styður Guð‘. Það felst ekki í því að vita að Guð muni framkvæma, heldur að ég muni gera það sem ég get til að styðja Guð. Þessa hugmynd um stuðning varðandi orðið emunah má sjá í 2. Mósebók 17:12. … Það er stuðningurinn/emunah frá Aroni og Húr sem héldu uppi örmum Móse, ekki stuðningur/emunah Móse. Þegar við segjum: ‚Ég trúi á Guð,‘ ættum við að hugsa: ‚Ég geri það sem ég get til að styðja Guð‘“ (Jeff A. Benner, „Faith,“ Ancient Hebrew Research Center, ancient-hebrew.org).

  21. Jóhannes 14:21; sjá einnig vers 23.

  22. Sjá Jóhannes 15:9–10.

  23. Sjá Russell M. Nelson, „Að færa kraft Jesú Krists inn í líf okkar.“

  24. Kenning og sáttmálar 6:36.

  25. Sjá Neil L. Andersen, „Trú ykkar mun ekki vaxa af tilviljun, heldur af eigin vali,“ aðalráðstefna, október 2015.

  26. Russell M. Nelson, „Máttur andlegs skriðþunga,“ aðalráðstefna, apríl 2022.

  27. Sjá Russell M. Nelson, „Lát Guð ríkja,“ aðalráðstefna, október 2020.

  28. Sjá Russell M. Nelson, „Children of the Covenant,“ Ensign, maí 1995, 32–35.

  29. Jesús er vinur minn. Enginn annar hefur gefið mér svo mikið. … Ég vona að ég teljist verðugur þess að vera vinur hans“ (Gordon B. Hinckley, „My Testimony,“ Liahona, júlí 2000, 85).

  30. Sjá Jóhannes 6:67–68; Kenning og sáttmálar 6:20.

  31. Sjá Russell M. Nelson, „Choices for Eternity,“ (heimslæg trúarsamkoma fyrir ungt fullorðið fólk, 15. maí 2022), Gospel Library; Richard G. Scott, 21 Principles: Divine Truths to Help You Live by the Spirit (2013), 90.

  32. Sjá Alma 48:17.

  33. Sjá Mósía 4:2; Alma 36:18.

  34. Sjá Thomas S. Monson, „Verum vonglöð,“ aðalráðstefna, apríl 2009.

  35. Sjá Jesaja 58:9; Helaman 10:4–5; Eter 12:30; Moróní 7:33.

  36. Sjá 2. Nefí 25:23.

  37. Alma 5:26; sjá einnig Alma 5:9; 26:13.

  38. 2. Nefí 1:15.