Aðalráðstefna
Kærleikur – merki um sannan lærisvein
Aðalráðstefna apríl 2025


11:29

Kærleikur – merki um sannan lærisvein

Raunverulegur ákvörðunarstaður lærisveinsins er bókstaflega að verða eins og Jesús Kristur er.

Nýlega bauð Russell M. Nelson forseti okkur að „hafa lærisveinshlutverkið í algjöru fyrirrúmi“. Þetta öfluga boð hefur hreyft við mér til að ígrunda persónulegt líf mitt sem lærisveins Jesú Krists.

Lærisveinshlutverkið er meðvitað

Lærisveinn er fylgjandi eða nemandi annars. Lærisveinar eru „lærlingar“ sem helga líf sitt því að verða eins og kennari sinn. Það að vera lærisveinn Jesú Krists felur því meira í sér en að trúa kennslu hans og kenningum. Það felur í sér meira en að viðurkenna guðlegt eðli hans og að samþykkja hann sem frelsara okkar og endurlausnara – eins mikilvægt og það er.

Dallin H. Oaks forseti útskýrir: „Að fylgja Kristi er ekki hversdagsleg eða tilfallandi iðkun. Það er viðvarandi skuldbinding og lífsháttur sem ætti að vera leiðandi öllum stundum og alls staðar.“ Að vera lærisveinn er að fara meðvitað í ferðalag til að umbreytast í gegnum friðþægingarfórn Drottins og virkjandi kraft hans. Raunverulegur ákvörðunarstaður lærisveinsins er bókstaflega að verða eins og Jesús Kristur er – jafnvel upp að því marki að „mynd hans [greypist] í svip [okkar]“.

Til að verða lærisveinar Krists verðum við meðvitað að líkja eftir hugsunum hans og gjörðum alla daga – til dæmis hlýðni hans, auðmýkt og þolinmæði. Þegar við smám saman gerum þessa eiginleika að okkar, verðum við „hluttakendur í guðlegu eðli [hans]“. Að líkja eftir eiginleikum Krists er kjarninn í tilbeiðslu á honum. Eins og Nelson forseti kenndi: „Aðdáun okkar á Jesú sýnum við best með því að líkja eftir Jesú.“

Merkið um sannan lærisvein

Af öllum þeim guðlegu eiginleikum Jesú Krists sem við eigum að líkja eftir er einn sem er æðstur og felur í sér alla aðra. Sá eiginleiki er hrein elska hans, eða kærleikur. Bæði spámaðurinn Mormón og Páll postuli minntu okkur á að án kærleika „[erum við] ekki neitt“. Eða, eins og spámaðurinn Joseph Smith opinberaði, án „kærleika, getum [við] ekkert gjört.“

Frelsarinn sjálfur auðkenndi elsku sem merki eða tákn sem sannir lærisveinar hans myndu þekkjast af þegar hann lýsti yfir:

„Nýtt boðorð gef ég yður, að þér elskið hvert annað. Eins og ég hef elskað yður skuluð þér einnig elska hvert annað.

Á því munu allir þekkja að þér eruð mínir lærisveinar, ef þér berið elsku hver til annars.“

Kærleikur er ríkt hugtak sem getur verið erfitt að skilgreina, en áhrif hans skynja allir auðveldlega. Boða fagnaðarerindi mitt kennir að „kærleikur leiðir til verka eins og trúin“. Í raun má tala um kærleika sem „elsku í verki“. Þessi lýsing veitir frábæra innsýn í þá lýsingu sem dregin var saman um líf frelsarans: „Hann gekk um, gerði gott.“

Sem fylgjendur Jesú Krists, ættum við að leitast við að líkja eftir því hvernig meistari okkar sýndi hreina elsku sína gagnvart öðrum. Jafnvel þótt frelsarinn sýni kærleika með ýmsum hætti, vil ég beina athyglinni að þremur ákveðnum mynstrum sem kærleiksverk hans fylgja og sjá má hjá sönnum lærisveinum hans.

Kærleikur er að sýna samúð

Í fyrsta lagi, sýndi frelsarinn kærleika með því að vera samúðarfullur. Meðan á þjónustu hans meðal Nefítanna stóð, eins og sagt er frá í Mormónsbók, bauð Drottinn fólkinu að snúa heim og íhuga það sem hann hafði kennt og búa sig undir að hann snéri aftur næsta dag. Heimildin segir því næst:

„Fólkið grét og starði á hann, eins og það vildi biðja hann að dvelja örlítið lengur hjá sér.

Og hann sagði við það: Sjá, hjarta mitt er fullt samúðar með yður.“

Samúð er sá hluti kærleikans sem leitast við að létta þjáningu. Fullur samúðar, læknaði Drottinn sjúka og þjáða meðal fólksins. Þar á eftir, blessaði hann börnin þeirra á meðan englar stigu niður af himni og umkringdu þau. Hann framkvæmdi þessi ljúfu, kærleiksríku verk og mörg fleiri, vegna þess að „hann [kenndi] í brjósti um [þá]“.

Þegar ég þjónaði sem ungur trúboði í Suður-Ameríku, naut ég líka góðs af samúð kærs vinar. Kvöld eitt, þegar ég var að aka heim til trúboðsforsetans okkar, birtist ungur maður á reiðhjóli skyndilega fyrir framan bílinn minn. Þetta gerðist svo snögglega að ég gat ekki forðast áreksturinn. Með hörmulegum hætti lést þessi ungi maður við áreksturinn. Ég var niðurbrotinn vegna dauða hans. Skelfingu lostinn, og í áfalli þegar hræðilegur raunveruleikinn yfir því sem hafði komið fyrir rann upp fyrir mér, var ég færður í fangelsi og lokaður inni. Ég hef aldrei fundið fyrir jafnmikilli hræðslu og einmanaleika. Ég var fullur örvæntingar og óttaðist að vera lokaður inni í fangelsi það sem eftir væri ævinnar.

Samtrúboði minn, öldungur Brian Kochever, heyrði af slysinu og kenndi í brjósti um mig. Hann kom í fangelsið og bað verðina um leyfi til að dvelja með mér í fangaklefanum svo ég yrði ekki einn. Fyrir kraftaverk, leyfðu þeir það. Allt til dagsins í dag finn ég fyrir djúpstæðu þakklæti fyrir kristilega elsku þessa lærisveins sem róaði mig, huggaði og hughreysti á tíma mestu neyðar í lífi mínu. Hin kærleiksríka samúð hans var merki um sannan lærisvein. Eins og Russell M. Nelson forseti sagði: „Ein einfaldasta leiðin til að bera kennsl á sannan fylgjanda Jesú Krists er að sjá hversu samúðarfull breytni fólks er við aðra.“

Góðvild er að sinna hinum ósögðu þörfum

Annað dæmi um það hvernig frelsarinn sýndi elsku sína, er með því að fylgjast með og sinna hinum ósögðu þörfum annarra. Manninum sem hafði verið sjúkur og hjálparlaus í 38 ár, lyfti Drottinn upp og hvatti til að lifa réttlátu lífi. Konunni sem varð uppvís að því að drýgja hór, bauð hann von og huggun frekar en fordæmingu. Lamaða manninum sem þeir létu síga niður í gegnum þakið, bauð Drottin fyrirgefningu synda, ekki bara lækningu líkamans.

Þegar ég var kallaður til að þjóna sem biskup gerðu sex ung börn okkar sakramentissamkomurnar erfiðar fyrir Cristinu eiginkonu mína, sem þurfti að hafa stjórn á þeim ein á meðan ég sat á pallinum. Eins og þið getið ímyndað ykkur, voru börnin okkar oft ekki lotningarfull. Þegar tveir meðlimir deildarinnar okkar, John og Debbie Benich, tóku eftir þessu, fóru þau að sitja við hlið hennar á hverjum sunnudegi til að hjálpa. Góðmennska þeirra hélt áfram um árabil og þau urðu nokkurs konar staðgenglar afa og ömmu fyrir fjölskylduna okkar. Eins og Drottinn, höfðu þessir lærisveinar tekið eftir hinni ósögðu þörf og framkvæmt af kærleika – sem sýndi með áberandi hætti að þau væru lærisveinar.

Kærleiksþjónusta er að hjálpa öðrum á sáttmálsveginum

Að lokum, þá einblínir hin fullkomna elska frelsarans á að gera öllum börnum Guðs kleift að uppfylla guðlega möguleika okkar svo við megum „taka við hjálpræði hans og endurlausnarkrafti“. Því líkari sem við verðum meistara okkar, mun þrá okkar til að hjálpa bræðrum okkar og systrum á sáttmálsveginum aukast sjálfkrafa.

Við getum til dæmis upplyft og vingast við þá sem hafa móðgast eða finnast þeir vera gleymdir, hjálpað þeim sem eru nýir í söfnuði okkar að finnast þeir velkomnir eða boðið vinum að tilbiðja með okkur á sakramentissamkomum – til dæmis þessa komandi páska. Það eru óteljandi leiðir til að hvetja og aðstoða aðra við framgang þeirra ef við leitum meðvitað og í bænarhug eftir hjálp himins til að hafa augu til að sjá og hjörtu til að skynja hvernig Jesús Kristur sér og skynjar þau.

Að hjálpa öðrum á sáttmálsveginum getur tekið á sig óhefðbundnar myndir þjónustu. Til dæmis, meðan á verkefni mínu á Filippseyjum stóð, frétti ég af Agamata-fjölskyldunni. Þau voru skírð árið 2023 og síðan völdu þau dagsetningu með eftirvæntingu til að innsiglast sem fjölskylda í nálægu Undaneta-musterinu á Filippseyjum. Rétt áður en þau áttu að innsiglast, gengu hins vegar nokkrir fellibyljir yfir svæðið. Bróðir Agamata, sem er hrísgrjónabóndi, gat ekki gróðursett hrísgrjónin sín á meðan öflugir fellibylirnir gengu yfir. Þegar óveðrinu loksins slotaði, varð hann að setja hrísgrjónin niður meðan vatnið flæddi yfir landið hans – sem voru kjöraðstæður til að setja niður hrísgrjón. Því miður þyrfti að fresta musterisferðinni.

Trúboðar hjálpa við að planta hrísgrjónafræjum.
Trúboðar planta hrísgrjónafræjum.

Tveir lærisveinar, öldungur og systir Cauilan, ásamt þremur ungum þjónustutrúboðum, heyrðu um vandræði Agamata-fjölskyldunnar og buðust til að hjálpa, þrátt fyrir að hafa enga reynslu í bústörfum. Undir steikjandi sólinni, hjálpuðu þau við að planta hrísgrjónafræjunum, sem gerði Agamata-fjölskyldunni kleift að ljúka verki sínu og mæta á réttum tíma til að innsiglast í musterinu sem fjölskylda. Öldungur Cauilan sagði að „ásjóna [Agamata-fjölskyldunnar] ljómaði þegar við sáum þau hvítklædd í húsi Drottins. Gleðin sem við fundum við að þjóna hinum eina er gleði sem á sér engan samanburð!“

Agamata fjölskyldan fyrir utan musterið.

Agamata-fjölskyldan nýtur nú þeirra ríkulegu blessana að vera innsigluð sem eilíf fjölskylda vegna þess að nokkrir samlærisveinar sem voru fylltir kærleika – merki um lærisveinshlutverk þeirra – ákváðu að hjálpa bræðrum sínum og systrum áfram á sáttmálaleið sinni.

Bræður og systur, að vera lærisveinar Jesú Krists er eina leiðin til að öðlast langvarandi hamingju. Það er leið sem er full af meðvituðum og markvissum kærleiksverkum til handa öðrum. Þó að vegur lærisveinsins sé erfiður og krefjandi, og þó að við getum stundum átt í baráttu og mistekist, getum við huggað okkur við að Guð er minnugur okkar og þráir að hjálpa okkur í hvert skipti sem við reynum. Jesaja minnir okkur á að Guð heldur í hönd okkar og segir: „Óttast eigi, ég bjarga þér.“

Með þessa fullvissu frá föður okkar á himnum í huga, bið ég einlæglega um að við megum fylgja boði Nelsons forseta um að setja lærisveinshlutverk okkar í forgang. Megum við „biðja þess vegna til föðurins, … af öllum hjartans mætti“, til að „fyllast þessari elsku, sem hann hefur gefið öllum sönnum fylgjendum sonar síns, Jesú Krists; … að þegar hann birtist, þá verðum vér honum líkir“, vegna þess að við berum merki hins sanna lærisveins, sem er „kærleikurinn … hin hreina ást Krists“.

Ég ber vitni um að Jesús Kristur er lifandi dýrðlegur frelsari okkar, lausnari, fyrirmynd og vinur. Í nafni Jesú Krists, amen.

Heimildir

  1. Russell M. Nelson, „Drottinn Jesús Kristur mun koma aftur,“ aðalráðstefna, október 2024.

  2. Sjá Merriam-Webster.com Dictionary, „disciple.“

  3. Dallin H. Oaks, „Fylgja Kristi,“ aðalráðstefna, október 2024.

  4. Alma 5:14; sjá einnig Alma 5:19.

  5. Sjá 2. Pétursbréf 1:3–8.

  6. Russell M. Nelson, „Perfection Pending,“ Liahona, nóv. 1995, 87.

  7. Moróní 7:46; sjá einnig 1. Korintubréf 13:3.

  8. Kenning og sáttmálar 18:19; skáletrað hér.

  9. Jóhannes 13:34–35; leturbreyting hér.

  10. Boða fagnaðarerindi mitt: Leiðarvísir að miðlun fagnaðarerindis Jesú Krists (2023), 127.

  11. Postulasagan 10:38.

  12. Sjá 3. Nefí 17:3.

  13. 3. Nefí 17:5–6.

  14. Sjá Merriam-Webster.com Dictionary, „compassion.“

  15. Sjá 3. Nefí 17:7–25.

  16. Matteus 9:36; 14:14; Markús 1:41; 6:34.

  17. Lögreglumennirnir settu mig í fangelsi sem var hluti af hefðbundnu verklagi þeirra, vegna slyss sem leiddi til dauða. Þeir aðskildu mig frá félaga mínum því ég var ökumaðurinn. Ég var í fangelsinu í tvo daga. Við rannsókn lögreglunnar komust þeir að því að þessi ungi maður var ölvaður þegar slysið varð og að það hafi líklega orðið til þess að hann beygði skyndilega fyrir ökutækið okkar. Ég kom fram fyrir dómara til formlegrar yfirheyrslu þar sem kom fram að engin sönnun væri fyrir sök eða gáleysi, heldur að þetta væri einfaldlega óheppilegt og hörmulegt slys.

  18. Sjá Matteus 25:31–40, sérstaklega vers 36.

  19. Russell M. Nelson, „Þörf er á friðflytjendum,“ aðalráðstefna, apríl 2023.

  20. Sjá Jóhannes 5:2–9, 14.

  21. Sjá Jóhannes 8:1–11.

  22. Sjá Markús 2:1–12.

  23. Omní 1:26.

  24. Sjá Kenning og sáttmálar 76:12.

  25. Sjá 2. Nefí 26:24.

  26. Persónuleg samskipti við Darwin Serrano Cauilan, 1. desember 2024.

  27. Jesaja 41:13.

  28. Moróní 7:48.

  29. Moróní 7:47.