Aðalráðstefna
Fyrir augum okkar
Aðalráðstefna apríl 2025


14:1

Fyrir augum okkar

Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu vex af meðlimum og fjölskyldum, af trúboðsvæðum og trúboðum, samkomuhúsum og musterum.

Bræður og systur, ég er svo þakklátur fyrir að vera með ykkur. Við elskum ykkur, við erum þakklát fyrir ykkur og okkur finnst við blessuð vegna bæna ykkar.

Russell M. Nelson sagði á síðustu aðalráðstefnu: „Sjáið þið það sem er að gerast fyrir augum okkar? Ég bið þess að við missum ekki af mikilfengleika þessarar stundar! Drottinn er vissulega að hraða verki sínu.“

Hraða verki sínu. Að „hraða“ er orð sem skiptir máli. Það gefur til kynna að hreyfa sig hratt, auka hraðann og jafnvel eitthvað brýnt. Í vexti kirkjunnar og áætlun Krists er verkinu hraðað. Og við erum öll hluti af því.

Í aprílmánuði 1834 í Kirtland, Ohio, safnaði spámaðurinn Joseph Smith öllum prestdæmishöfum saman inn í lítið skólahús, sem var um 4,3 metrar á hverja hlið. Við gætum sett tugi slíkra skólahúsa inn í þessa Ráðstefnuhöll og ættum enn rými til viðbótar. Joseph Smith sagði: „Hér í kvöld sjáið þið aðeins örfáa prestdæmishafa, en kirkjan mun fylla Norður- og Suður-Ameríku – hún mun fylla alla jörðina.“

Það loforð er að uppfyllast „fyrir augum okkar“. Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu vex að meðlimum og fjölskyldum, trúboðssvæðum og trúboðum, samkomuhúsum og musterum og að nýskráningu í trúarskóla yngri og eldri deilda og háskólum um allan heim.

Við erum þakklát fyrir að vera á jörðinni þegar meðlimafjöldi og áhrif kirkjunnar er að aukast, en þar sem er mikilvægast er í hjörtum og lífi meðlima hennar. Við erum þekkt sem lærisveinar Jesú Krists. Við miðlum vitnisburði okkar um hann, kirkju hans, hætti hans og sáttmálsveginn hans. Við erum hans fólk og hann er frelsari okkar.

Ég dáist að því sem Nelson forseti kallar „mikilfengleika þessarar stundar“ og tjái djúpstætt þakklæti til Drottins fyrir verk hans. Ég hvet okkur öll til að standa upprétt sem lærisveinar hans, sjónarvottar að uppfyllingu spádóma, bæði fornra og nútíma.

Það eru gagnrýnisraddir sem hrópa: „Sjá hér og sjá þar,“ rétt eins og þær gerðu á tíma spámannsins Joseph Smith. Samt sem áður eru og munu verða fleiri neðanmálstilvísanir í þessu göfuga verki. Munið orð Josephs Smith: „Engin vanheilög hönd fær stöðvað framrás verksins. … Sannleikur Guðs mun sækja fram óháður, ákveðinn og göfugur, þar til hann hefur farið um hvert meginland, vitjað hvers lands, þrætt hvert hérað og hljómað í hverju eyra, þar til tilgangi Guðs er náð og hinn mikli Jehóva segir að verkinu sé lokið.“

Í verkefnum mínum þetta árið, hef ég verið í fremstu sætaröð til að sjá Drottin „hraða verki sínu“. Kirkjan er að byggja musteri á áður óséðum hraða, sem gefur fleiri meðlimum tækifæri til að tilbiðja í húsi Drottins. Annað, trúboðsstarf er að safna saman metfjölda í hjörð góða hirðisins, Jesú Krists. Og þriðja, menntun í kirkjunni af mismunandi toga nær nýjum og hærri hæðum við kennslu þeirra sem „leita þessa Jesú“.

Í dag hefur kirkjan 367 musteri á ýmsum stigum hönnunar, byggingar eða notkunar. Og í hvaða tilgangi? Svarið er skráð á hvert musteri: „Í heilagleika Drottins.“ Musterið opnar leið að æðstu blessununum sem faðir okkar á himnum hefur fyrir hvert og eitt okkar. Bræður og systur, við erum að hraða heilagleika okkar, er við lifum verðug musterisins, er við tilbiðjum í húsi Drottins, er við gerum sáttmála við Guð fyrir okkur sjálf og í þágu áa okkar hinum megin hulunnar.

Nelson forseti hefur sagt: „Árásir andstæðingsins aukast gífurlega, bæði að styrk og fjölbreytni. Þörf okkar á því að fara reglulega í musterið hefur aldrei verið meiri. Ég sárbæni ykkur um að meta það í bænar hug hvernig þið verjið tíma ykkar.“ Í húsi hans getum við fundið helga nærveru Drottins og frið ofar öllum skilningi.

Öldungur og systir Rasband við Mendoza-musterið, Argentínu.

Á síðasta ári, naut ég þeirra forréttinda vera í forsæti við vígslu Mendoza-musterisins í Argentínu. Í boðskap mínum, vitnaði ég í spádóm öldungs Melvin J. Ballard frá árinu 1926, þess efnis að verk Drottins myndi vaxa hægt um tíma í Suður-Ameríku „eins og eikartré vex hægt af eikarfræi. Það mun ekki þjóta upp á einum degi“ en þúsundir munu ganga í kirkjuna og þjóðir Suður-Ameríku munu verða að „máttarstólpa í kirkjunni“. Ég sá þann spádóm uppfyllast fyrir augum mínum.

Mendoza, sem eitt sinn var lítið eikarfræ, er orðið að mikilfenglegu eikartré. Slíkur vöxtur er endurtekinn í meginlöndum og á eyjum úthafs.

Við sjáum Drottin hraða verki sínu á trúboðssvæðunum sínum. Árið 2024, þjónuðu 80.000 trúboðar á 450 trúboðssvæðum. Af þeim eru þrjátíu og sex ný trúboðssvæði. Á síðasta ári varð trúboðsstarf til þess að meira en 308.000 nýir meðlimir gengu í kirkjuna. Fyrir utan fjöldann, þá er andi samansöfnununar að færa sálir til Jesú Krists og fagnaðarerindis hans.

Ég hugsa um postula eins og Brigham Young og Heber C. Kimball, sem fóru árið 1839 sem trúboðar til Bretlandseyja. Þeir voru veikir; þeir skildu eftir veikar og snauðar fjölskyldur. Samt sem áður, klifruðu þeir tveir inn í vagninn og meðan ástvinir þeirra voru enn í sjón, sagði Heber „ Við skulum rísa á fætur og hrópa húrra fyrir þeim.“ Þeir stóðu báðir upp með erfiðleikum og hrópuðu: „Húrra, húrra fyrir Ísrael.“

Fundur með trúboðum í Líma, Perú.

Ég sá þennan sama eldmóð í verki Drottins í Lima, Perú, þar sem ég hitti trúboða frá trúboðsskólanum og trúboðssvæðum í Lima. Þvílík sjón! Ég sá hröðunina fyrir augum mínum. Þar eru nú sjö trúboðsstöðvar, bara í borginni Lima.

Við samkomulok, komu trúboðarnir mér sérstaklega á óvart. Þeir risu á fætur og hrópuðu: „Húrra fyrir Ísrael.“ Ég mun aldrei gleyma þessu augnabliki. Ég vildi óska þess að þið hefðuð getað verið þarna. Fyrir augum mínum voru trúboðar sem höfðu lagt til hliðar „það sem heimsins er“ til að þjóna Drottni og hjálpa við að hraða komu hans.

Við sjáum Drottin hraða tækifærum til menntunar fyrir meðlimi okkar og jafnvel þá sem ekki eru okkar trúar um heim allan. Eitt af því sem einkennir kirkjuna okkar er áhersla okkar á menntun. Drottinn bauð okkur á fyrri dögum endurreisnarinnar að sækjast eftir „fræðslu með námi og einnig með trú“. Þetta er að gerast í dag og er verðugt tilefni til þess að hrópað sé „húrra“.

Nú eru um 800.000 nemendur um heim allan skráðir í trúarskóla yngri og eldri deilda, metfjöldi skráðra í sögu kirkjunnar. Ungmenni okkar safnast saman með ýmsum hætti, frá því á morgnana, yfir daginn og á kvöldin í kennslustundum og á netinu og í heimakennslu. Þau eru máttug og réttlát fylking, sem hlýtur styrk hvert frá öðru, er þau læra um Jesú Krist, fylgja honum og vitna um hann sem son Guðs.

Samræður við nemendur trúarskóla yngri og eldri deilda.

Síðastliðið haust talaði ég á trúarsamkomu á leikvangi sem fullur var af trúarskólanemum og foreldrum þeirra við Utah-háskóla. Mæting þeirra sagði mikið um þrá þeirra til að þekkja og fylgja Jesú Kristi. Boðskapur minn til þessarra nemenda var skýr: Gefið Drottni jafnmikinn tíma. Ég leiðbeindi þeim að samræma nám þeirra við sannan og æðri lærdóm, jafnvel lærdóm um „son hins lifandi Guðs“.

Ég bið þess sama af öllum í dag: Hvað svo sem er á verkefnalistanum, gefið Drottni jafnan tíma, ekki afgangstíma, fyrir persónulegt ritningarnám, fjölskyldunám í Kom fylg mér, bænir, kallanir, þjónustu, viðtöku sakramentisins, tilbeiðslu í musterinu og til íhugunar þess sem frá Guði er. Drottinn okkar og frelsari hefur sagt: „Lærið af mér … og þá munuð þér finna hvíld sálum yðar.“ Takið hann á orðinu. Og gefið honum jafnmikinn tíma.

Russell M. Nelson forseti sagði: „Ég bið ykkur að láta Guð ríkja í lífi ykkar. Gefið honum góðan hluta af tíma ykkar. Þegar þið gerið það, takið þá eftir því sem gerist varðandi jákvæðan andlegan skriðþunga ykkar.“

Við sjáum þennan skriðþunga byggjast upp í trúarskóla yngri og eldri deilda og í háskólum kirkjunnar. Í því umhverfi er Drottinn í forgangi. Það ætti hann að vera í lífi hvers og eins okkar.

Annar vettvangur sem sýnir vöxt menntunar í kirkjunni, er hið heimslæga BYU–Pathway. Um allan heim, hafa skráningar náð næstum 75.000 og þeim heldur áfram að fjölga hratt. Flestir eru meðlimir og meira en þriðjungur er í Afríku. Pathway snýst um aðgang að menntun. Að ljúka námskeiðunum, þýðir aðgang að atvinnu og aðgangur að atvinnu þýðir betra líf fyrir fjölskyldur og fleiri tækifæri til að þjóna Drottni.

Fundur með stikuleiðtogum í Úganda.

Þegar ég var að hitta stikuleiðtoga í Úganda, komst ég að því að allt stikuforsætisráðið var skráð í BYU–Pathway. Því betur undirbúin sem við erum stundlega og andlega, því meira getum við komið í veg fyrir lævísar árásir andstæðingsins. Munið orð Péturs: „Djöfullinn gengur um sem öskrandi ljón, leitandi að þeim sem hann getur tortímt.“

Ég geri mér grein fyrir að mitt í gleðifréttunum um fagnaðarerindið eru þeir sem berjast, sem hafa trúaráskoranir, efasemdir og spurningar sem virðast engin svör vera við. Bræður og systur, Jesús Kristur er svarið. Byrjið með honum. Leitið að hönd hans í lífi ykkar. Hlustið á hann. „Hjarta yðar skelfist ekki né hræðist,“ sagði hann á síðustu stundum sínum við lærisveina sína fyrir Getsemane, áður en hann bar kross sinn um götur Jerúsalem, fyrir Golgata, þar sem hann fullgerði friðþægingarfórn sína, sem einungis hann, hinn eingetni sonur Guðs, gat gert.

Vitið að hann skilur. Hann tók sjálfur á sig allar okkar syndir, mistök, vansæld og mjög slæma daga, svo við mættum lifa aftur með föður okkar á himnum í eilífðinni. Hann sagði: „Beinið öllum hugsunum yðar til mín. Efist ekki, óttist ekki.“ Trú á Jesú Krist megnar að „lyfta ykkur upp“ og lækna sárar sálir ykkar. Treystið honum og þið munuð hraða ykkur aftur í „elskandi arma hans“.

Kæru bræður og systur, ég ítreka orð okkar lifandi spámanns: „Sjáið þið það sem er að gerast fyrir augum okkar? Ég bið þess að við missum ekki af mikilfengleika þessarar stundar! Drottinn er að hraða verki sínu.“ Megum við sem lærisveinar okkar tíma hrópa: „Húrra fyrir Ísrael,“ er við búum okkur undir endurkomu Drottins okkar og frelsara. Í nafni Jesú Krists, amen.

Heimildir

  1. Sjá Russell M. Nelson, „Drottinn Jesús Kristur mun koma aftur,“ aðalráðstefna, október 2024; sjá einnig Kenning og sáttmálar 88:73: „Sjá, ég mun hraða verki mínu þegar að því kemur.“

  2. Kenningar forseta kirkjunnar: Joseph Smith (2007), 135.

  3. Russell M. Nelson, „Drottinn Jesús Kristur mun koma aftur“; sjá einnig Kenning og sáttmálar 88:73: „Sjá, ég mun hraða verki mínu þegar að því kemur.“

  4. Joseph Smith – Saga 1:5.

  5. Joseph Smith,í History, 1838–1856, bindi C-1, 1285, josephsmithpapers.org.

  6. Eter 12:41.

  7. Yfirskriftin „Í heilagleika Drottins“ er utan á hverju musteri kirkjunnar. Flest hafa einnig orðin „Hús Drottins“.

  8. Russell M. Nelson, „Verðum fyrirmyndar Síðari daga heilagir,“ aðalráðstefna, október 2018.

  9. Melvin J. Ballard, í Melvin R. Ballard, Melvin J. Ballard: Crusader for Righteousness (1966), 84.

  10. Sjá Mary Richards, gestgjafi, Church News hlaðvarp, þáttur 217, „Elder W. Mark Bassett and David N. Weidman of the Church’s Missionary Department on the Expanding Role of Missionary Work,“ Church News, 3. des 2024, thechurchnews.com.

  11. Sjá „The Church of Jesus Christ Will Create 36 New Missions in 2024,“ Newsroom, 1. nóv. 2023, newsroom.ChurchofJesusChrist.org.

  12. Upplýsingar sem koma frá trúboðsdeild kirkjunnar. Árið 2022 var fjöldi skírðra trúskiptinga 212.172. Árið 2023 hafði þeim fjölgað upp í 251.763. Árið 2024 voru 308.682 einstaklingar skírðir.

  13. Gordon B. Hinckley forseti sagði: „Ég þarf ekki að minni ykkur á að þessi málstaður, sem við helgum okkur, er enginn venjulegur málstaður. Hann er málstaður Krists. Hann er ríki Guðs, okkar eilífa föður. Hann er að reisa Síon á jörðu“ („An Ensign to the Nations,“ Ensign, nóv. 1989, 53).

  14. Í Orson F. Whitney, Life of Heber C. Kimball: An Apostle, the Father and Founder of the British Mission (1888), 276.

  15. Upplýsingar sem koma frá trúboðsdeild kirkjunnar.

  16. Þýðing Josephs Smith, Matteus 6:38Matteus 6:33, neðanmálstilvísun a).

  17. Kenning og sáttmálar 88:118.

  18. Sjá Tad Walch, „Enrollment Growth at Latter-day Saint Universities Rebuts Narrative About Young Adults Losing Faith,“ Deseret News, 23. nóv 2024, deseret.com.

  19. Sjá Rachel Sterzer Gibson, „Give the Lord ,Equal Time,‘ Elder Rasband Encourages During Devotional to 10,000 Youth and Young Adults,“ Church News, 14. okt 2024, thechurchnews.com.

  20. Matteus 16:16.

  21. Matteus 11:29.

  22. Russell M. Nelson, „Máttur andlegs skriðþunga,“ aðalráðstefna, apríl 2022.

  23. Sjá Walch, „Enrollment Growth at Latter-day Saint Universities,“ Deseret News, 23. nóv 2024, deseret.com.

  24. 1. Pétursbréf 5:8.

  25. Sjá Russell M. Nelson, „Svarið er ávallt Jesú,“ aðalráðstefna, apr. 2023.

  26. Jóhannes 14:27.

  27. Sjá Matteus 26:36–38.

  28. Sjá Lúkas 23:26; Jóhannes 19:17.

  29. Sjá Jóhannes 19:17; 1. Nefí 11:33; 3. Nefí 27:14–15.

  30. Sjá Alma 7:14; Kenning og sáttmálar 76:41–42.

  31. Sjá HDP Móse 1:39.

  32. Kenning og sáttmálar 6:36.

  33. Sjá Moróní 9:25.

  34. Sjá Sálmarnir 147:3; Jakob 2:8.

  35. Sjá Orðskviðirnir 3:5.

  36. 2. Nefí 1:15.

  37. Russell M. Nelson, „Drottinn Jesús Kristur mun koma aftur,“ skáletrað hér; sjá einnig Kenning og sáttmálar 88:73: „Sjá, ég mun hraða verki mínu þegar að því kemur.“