Þú ert Kristur
(Matteus 16:16)
Við viljum að börn okkar trúi á Jesú Krist, tilheyri Jesú Kristi og kirkju hans í gegnum sáttmála og leitist við að verða eins og Jesús Kristur.
Þegar Elí sonur okkar var í fjórða bekk setti bekkurinn hans upp hermistjórn þar sem hann var kosinn af jafnöldrum sínum til að þjóna sem bekkjardómari. Dag einn kom sitjandi dómari úr öðru umdæmi héraðsdóms Utah í heimsókn, klæddi Elí í embættisskikkju sína og lét síðan bekkinn sverja embættiseið. Þetta kveikti í ungri, áhrifagjarnri sál Elí ástríðu fyrir laganámi og að læra um löggjafann sjálfan, Jesú Krist.
Eftir margra ára iðni og ástundun fékk Elí boð um viðtal við einn af helstu valkostum hans um laganám. Hann sagði: „Mamma, ég var spurður 10 spurninga. Lokaspurningin var: ‚Hvaðan færð þú þinn siðferðislega áttavita?‘ Ég sagði að í gegnum söguna hefði mannkynið þróað siðferðiskerfi með því að móta líf sitt út frá erkitýpum. Sú erkitýpa siðferðis sem ég leitast við að móta líf mitt út frá er Jesús Kristur. Ég sagði að ef allt mannkyn fylgdi kenningum Jesú Krists í fjallræðunni væri heimurinn betri, friðsælli staður.“ Svo lauk viðtalinu og hann hugsaði með sér: „Þar fara æskudraumar mínir. Enginn í veraldlegu fræðisamfélagi vill heyra um Jesú Krist.“
Tveimur vikum síðar fékk Elí inngöngu og skólastyrk. Áður en hann skuldbatt sig, heimsóttum við háskólasvæðið. Lagaskólinn leit út eins og kastali og stóð hátt á hæð með útsýni yfir fallegt vatn. Eftirtektarvert er að þegar við gengum um hið stórbrotna bókasafn og virðulega ganga þess, fundum við tilvitnanir í fjallræðuna á fánum og í steinristum.
Fjallræðan er vissulega athyglisverðasta ræða sem flutt hefur verið, brautryðjandi í kenningum sínum. Engin önnur ræða getur hjálpað okkur að skilja betur eiginleika Jesú Krists, guðlega eiginleika hans og lokatakmark okkar um að verða eins og hann.
Ævistarf okkar sem lærisveinar Jesú Krists hefst á heimilum okkar – og í Barnafélaginu við 18 mánaða aldur. Við viljum að börn okkar trúi á Jesú Krist, tilheyri Jesú Kristi og kirkju hans í gegnum sáttmála og leitist við að verða eins og Jesús Kristur.
Trúum á Jesú Krist
Í fyrsta lagi, trúum á Jesú Krist.
Eftir ræðuna um brauð lífsins áttu „margir af lærisveinum [Drottins]“ erfitt með að meðtaka kenningar hans og „hurfu … frá og voru ekki framar með honum“. Jesús snéri sér þá til hinna tólf og spurði mjög svo dapurlegrar spurningar: „Ætlið þið að fara líka?“
Pétur svaraði:
„Drottinn, til hvers ættum við að fara? Þú hefur orð eilífs lífs.
… Við trúum og vitum að þú ert hinn heilagi Guðs.“
Eins og Pétur sýndi fram á, þá er trú að „trúa á einhvern eða fallast á að eitthvað sé sannleikur“. Og ef trú okkar á að leiða til sáluhjálpar, verður hún að hafa Drottin Jesú Krist að þungamiðju. „Við iðkum trú á Jesú Krist þegar við erum fullviss um að hann lifir, höfum skilning á sönnum eiginleikum hans og eðli og vitum að við erum að keppast að því að lifa samkvæmt vilja hans.“
Okkar ástkæri spámaður, Russell M. Nelson forseti, sagði: „Trú á Jesú Krist er undirstaða allrar trúar og lykill að guðlegum krafti.“
Hvernig getum við hjálpað börnum að styrkja trú sína á Jesú Krist og fá aðgang að guðlegum krafti hans? Við þurfum ekki að horfa lengra en til sjálfs frelsarans.
„Drottinn talaði til þeirra og mælti:
Sjá. Ég er Jesús Kristur. …
Rísið á fætur og komið til mín. …
Mannfjöldinn gekk fram og þrýsti höndum sínum á síðu hans og fann naglaförin á höndum hans og fótum. Og þannig hélt fólkið áfram, hver af öðrum, … og allir sáu með augum sínum og fundu með höndum sínum og vissu með öruggri vissu og báru því vitni, að þetta var sá.“
Ég býð ykkur að hugleiða hvernig þetta getur litið út í lífi ungra barna. Heyra þau vitnisburði um Jesú Krist og fagnaðarerindi hans? Sjá þau lotningarfullar, tilbeiðslumyndir af þjónustu hans og guðdómi? Skynja þau og bera kennsl á heilagan anda að vitna um raunveruleika hans og guðleika? Þekkja þau boðskap hans og ætlunarverk?
Tilheyrum Jesú Kristi og kirkju hans
Í öðru lagi, tilheyrum Jesú Kristi og kirkju hans.
Þjóð Benjamíns konungs upplifði gjörbreytingu í hjarta og helgaði líf sitt vilja Guðs með sáttmála. Vegna sáttmálans sem þau gerðu við Guð og Jesú Krist, voru þau „nefnd börn Krists, synir hans og dætur hans“. Við, sem meðlimir Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu, höfum þá sáttmálsábyrgð að byggja upp ríki hans og búa okkur undir endurkomu hans.
Hvernig getum við hjálpað börnum að gera og halda helga sáttmála? Í viðauka A og B í kennslubókinni Kom, fylg mér finnum við tillögur að samræðum og lexíur sem munu styrkja fjölskyldur og styðja kennara og leiðtoga í helgri ábyrgð þeirra við að búa börn undir ævilanga veru á sáttmálsvegi Guðs.
Verðum eins og Jesús Kristur
Í þriðja lagi, verðum eins og Jesús Kristur.
Í Mormónsbók áminnti frelsarinn hina nýkölluðu lærisveina sína um að líkja eftir sér eins nákvæmlega og mögulegt væri: „Hvers konar menn ættuð þér því að vera? Sannlega segi ég yður, alveg eins og ég er.“
Hvernig getum við hjálpað skírðum og staðfestum börnum að framfylgja þeirri sáttmálsábyrgð sinni að safna sjálfum sér og öðrum til Jesú Krists? Ævistarf sem lærisveinn krefst þess að við séum „gerendur orðsins og eigi aðeins heyrendur þess“.
Þegar yngstu lærisveinum Drottins er boðið, notið þá hvert tækifæri til að leiða þá, leiðbeina þeim, ganga við hlið þeirra og hjálpa þeim að finna veginn. Ráðgist við þessi dýrmætu börn er þau búa sig undir að kenna, vitna, biðja eða þjóna, svo þau hafi sjálfstraust og upplifi gleði við að uppfylla skyldur sínar. Leitið innblásinna leiða til að hjálpa þeim að skilja að þetta er þeirra kirkja og að þau gegna mikilvægu hlutverki í því að búa sig undir endurkomu frelsarans.
Þegar Jesús Kristur verður miðpunktur lífs okkar, breytist það sem við þráum og hvernig við þráum það. Trúarumbreyting breytir öllu! Hún breytir eðli okkar „að við hneigjumst ekki lengur til illra verka, heldur stöðugt til góðra verka“. Hún breytir því hvernig við verjum tíma okkar, úrræðum okkar, því sem við lesum, horfum á, hlustum á og miðlum. Hún breytir því jafnvel hvernig við bregðumst við í virðulegu, fræðilegu viðtali, sem getur haft úrslitaáhrif á starfsferil okkar.
Við þurfum að blása ljósi Jesú Krists í hvert horn lífs okkar. Ef við erum ekki að vitna um sannleiksgildi guðdóms hans í fortilverunni, guðdómlegt hlutverk hans og upprisu sem rífur hlekki fangelsisins á heimilum okkar og á hverri einustu samkomu þessarar kirkju, þá getur boðskapur okkar um kærleika, þjónustulund, heiðarleika, auðmýkt, þakklæti og samúð orðið lítið annað en hressileg hvatningarræða um meðvitaða lífshætti. Án Jesú Krists er enginn kraftur til að breytast, enginn tilgangur til að stefna að og engin sátt í erfiðleikum lífsins. Ef við verðum værukær í lærisveinshlutverki okkar fyrir Jesú Krist, gæti það orðið skelfilegt fyrir börnin okkar.
Þegar við segjum börnum okkar að við elskum þau, erum við þá líka að segja þeim að faðir þeirra á himnum og frelsarinn Jesús Kristur elski þau? Elska okkar getur huggað og innblásið, en elska þeirra getur helgað, upphafið og læknað.
Þessi Jesús ætti ekki að vera skáldaður Jesús eða einfaldur Jesús eða líkamslaus Jesús eða værukær Jesús eða óþekktur Jesús, heldur dýrðlegur, almáttugur, upprisinn, upphafinn, tilbeiðslufullur, kraftmikill eingetinn sonur Guðs, sem hefur máttinn til að frelsa. Og eins og barn á Filippseyjum bar mér sannfærandi vitni einn daginn: „Við erum björgunar virði!“ Í hinu helga nafni hans sem „Guð bendir á … sem [hina miklu] sáttarfórn“, Jesú Krists, amen.