Aðalráðstefna
Endurreisnartími allra hluta
Aðalráðstefna apríl 2025


15:21

Endurreisnartími allra hluta

(Postulasagan 3:21)

Mikilvægustu og dýrðlegustu „gleðitíðindin“ eru þau tíðindi að Drottinn Jesús Kristur hefur endurreist fagnaðarerindi sitt og kirkju sína á síðari dögum.

Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu var stofnuð fyrir 195 árum síðan í dag, þann 6. apríl, 1830.

Fámennur söfnuður trúaðra og vina var saman kominn af þessu mikilvæga og gleðilega tilefni. Mikil úthelling andans blessaði alla viðstadda er helgiathöfn sakramentisins var þjónustuð, gjöf heilags anda var veitt, prestdæmisvígslur framkvæmdar og sannleikur fagnaðarerindis Jesú Krists prédikaður.

Í endurreisn kirkju sinnar, útnefndi Drottinn með opinberun hinn 24 ára Joseph Smith sem jarðneskan leiðtoga hennar: „sjáanda, þýðanda, spámann, postula Jesú Krists og öldung kirkjunnar fyrir vilja Guðs föðurins og náð Drottins yðar Jesú Krists.“

Ég bið einlæglega um liðsinni heilags anda, er við íhugum mikilvæg og viðvarandi áhrif þessa einstaka atburðar í sögu heimsins.

Fyrsta sýnin

Formleg stofnun Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu var hápunktur atburðarrásar undursamlegra upplifana. Sá fyrsti þessara viðburða átti sér stað 10 árum áður í uppsveitum New York-ríkis.

Vorið 1820 fór ungur drengur að nafni Joseph Smith út í skóg nærri heimili sínu til að biðjast fyrir. Hann var með spurningar varðandi hjálpræði sálar sinnar og hann þráði að vita „hver allra [kirknanna] hefði rétt fyrir sér, svo að [hann] vissi, í hverja [hann] ætti að ganga“. Joseph treysti því að Guð myndi svara bæn sinni og leiðbeina sér.

Gætið að því að Joseph baðst ekki einungis fyrir til að vita hvað væri rétt. Hann baðst fremur fyrir til að vita hvað væri rétt, svo hann gæti gert það sem rétt var. Joseph spurði í trú og var staðráðinn í að breyta í samræmi við svörin sem hann hlyti.

„Sem svar við [einlægri] bæn Josephs Smith, birtust Guð faðirinn og sonur hans, Jesús Kristur, honum og innleiddu ,endurreisn allra hluta‘ (Postulasagan 3:21), eins og sagt er fyrir um í Biblíunni. Í þessari sýn komst hann að því að kirkja Krists í Nýja testamentinu hefði glatast á jörðu, eftir dauða hinna upprunalegu postula.“ Joseph Smith yrði verkfæri í að endurreisa aftur kenninguna, valdið, og sáttmála og helgiathafnir hinnar fornu kirkju frelsarans.

Fyrsta sýnin.

Joseph staðfesti: „Ég sá tvær verur, svo bjartar og dýrðlegar, að ekki verður með orðum lýst, og stóðu þær fyrir ofan mig í loftinu. Önnur þeirra ávarpaði mig, nefndi mig með nafni og sagði, um leið og hún benti á hina – Þetta er minn elskaði sonur. Hlýð þú á hann!

Gegnum þessa sýn og guðlega reynslu sem fylgdi í kjölfarið, fór Joseph Smith að skilja að Guð og Jesús Kristur þekktu hann sem einstakling, létu sér annt um eilífa sáluhjálp hans og voru með ætlunarverk fyrir hann að framkvæma. Hann lærði líka mikilvæga lexíu um eiginleika, persónugerð og fullkomnun Guðdómsins – og að faðirinn og sonurinn eru aðskildar og aðgreindar verur. Jesús Kristur er í raun sonur Guðs í andanum og holdinu.

Joseph Smith lýsti því yfir að himneskur faðir og Jesús Kristur væru efnislegar verur. Hann sagði: „Faðirinn hefur líkama af holdi og beinum, jafn áþreifanlegan og mannslíkaminn er, sonurinn einnig, en heilagur andi hefur ekki líkama af holdi og beinum, heldur er hann andavera.“

Ég ber vitni um að vitjun föðurins og sonarins til Josephs Smith var upphafsatburðurinn í hinni miklu „endurreisn allra hluta, sem talað hefur verið um fyrir munn allra hinna heilögu spámanna frá upphafi veraldar“.

Mormónsbók

Annað í röð undursamlegra upplifana, sem leiddu til formlegrar stofnunar hinnar endurreistu kirkju frelsarans, var þýðing og tilkoma Mormónsbókar.

Mormónsbók: Annað vitni um Jesú Krist.

„Joseph Smith fékk gjöf og kraft Guðs til að þýða forna heimild – Mormónsbók: Annað vitni um Jesú Krist. … Í þessu helga riti má finna frásögn um persónulega þjónustu Jesú Krists meðal fólks á vesturhveli jarðar, fljótlega eftir upprisu hans. [Mormónsbók] kennir um tilgang lífsins og útskýrir kenningu Krists, sem er kjarni þess tilgangs. Sem ritningarfélagi Biblíunnar, vitnar Mormónsbók um að allar manneskjur séu synir og dætur kærleiksríks föður á himnum, að hann hafi guðlega áætlun fyrir líf okkar og að sonur hans, Jesús Kristur, talar á okkar tíma, sem til forna.“

Sem meðlimir endurreistrar kirkju frelsarans „[trúum við], að Biblían sé orð Guðs, að svo miklu leyti sem hún er rétt þýdd. [Við] trúum einnig, að Mormónsbók sé orð Guðs“. Mormónsbók er annað vitni um Jesú Krist, staðfestir sannleiksgildi Biblíunnar og endurreisir skýran og dýrmætan sannleika sem hafði glatast úr Biblíunni.

Endurreisn prestdæmisins

Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu kennir að hin upprunalega kirkja, sem frelsarinn stofnaði, með sínu guðlega valdi, kenningum, sáttmálum og helgiathöfnum, hafi glatast á jörðu. Sem hluti af spádómi um endurreisn allra hluta á síðari dögum, veittu fornir spámenn og postular Joseph Smith prestdæmisvaldið persónulega og veittu honum prestdæmislykla. Þetta var hið þriðja í röð undursamlegra upplifana sem leiddu til formlegrar stofnunar hinnar endurreistu kirkju frelsarans.

Prestdæmisvald gerir þjónum Guðs kleift að „koma fram sem fulltrúi [hans] og starfa í hans nafni“. „Prestdæmislyklar eru valdsumboðið til að stjórna notkun prestdæmisins í þágu barna Guðs.“

Endurreisn prestdæmisins.

Hinn upprisni Jóhannes skírari endurreisti valdið til að skíra með niðurdýfingu til fyrirgefningar synda árið 1829, undir leiðsögn föðurins og sonarins. Sama ár, endurreistu þrír hinna upprunalegu tólf postula – Pétur, Jakob og Jóhannes – postuladóminn og frekara prestdæmisvald og lykla.

Sex árum eftir formlega stofnun kirkjunnar, veittu Móse, Elías og Elía Joseph viðbótarvald í Kirtland-musterinu, sem nauðsynlegt var til að framkvæma verk Guðs á síðari dögum.

Móse veitti lyklana að samansöfnun Ísraels.

Elías innleiddi ráðstöfun fagnaðarerindis Abrahams, þar á meðal endurreisn sáttmála Abrahams.

Elía afhenti lykla innsiglunarvaldsins, sem veitti vald sem gerir mögulegt að helgiathafnir sem framkvæmdar eru á jörðu verði bindandi í eilífðinni, svo sem að sameina fjölskyldur í eilíf sambönd, sem ná út fyrir dauða.

Kirkja Jesú Krists er stofnuð

Þegar Joseph Smith þýddi Mormónsbók, fékk hann opinberanir sem gáfu til kynna að kirkja Jesú Krists yrði endurreist. Drottinn sagði Joseph hins vegar að stofna ekki kirkjuna þegar í stað. Öllu heldur opinberaði Drottinn Joseph „með anda spádóms og opinberunar“, „nákvæmlega … þann dag, sem [hann] … skyldi stofna kirkju hans aftur hér á jörðu“.

Kirkjan var skipulögð í réttri röð, en einungis eftir endurreisn prestdæmisins og útgáfu Mormónsbókar. Fyrstu eintök Mormónsbókar urðu fáanleg 26. mars 1830 og kirkjan var formlega stofnuð 6. apríl.

Frelsarinn Jesús Kristur.

„Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu … er hin endurreista kirkja Krists úr Nýja testamentinu. Kirkja þessi er grundvölluð á hinu fullkomna lífi hyrningasteins hennar, Jesú Krists, og altækri friðþægingu hans og bókstaflegri upprisu. Jesús Kristur hefur enn að nýju kallað postula og veitt þeim prestdæmisvald. Hann býður okkur öllum að koma til sín og kirkju sinnar, að taka á móti heilögum anda, helgiathöfnum sáluhjálpar og hljóta varanlega gleði.“

Ráðstöfunin í fyllingu tímanna

Birting föðurins og sonarins frammi fyrir Joseph Smith, þýðing og tilkoma Mormónsbókar og endurreisn valds og lykla prestdæmisins voru nauðsynlegar forsendur fyrir stofnun hinnar endurreistu kirkju Drottins fyrir 195 árum í dag.

Í Gamla testamentinu túlkaði spámaðurinn Daníel draum um stein sem losnaði úr fjallinu, án þess að mannshönd kæmi þar nærri og fyllti alla jörðina. Einu ári eftir stofnun kirkjunnar sagði Drottinn Joseph Smith að lyklar ríkis Guðs hefðu enn á ný verið „afhentir manni á jörðu“ og að „fagnaðarerindi [Jesú Krists myndi] breiðast út til endimarka jarðar, líkt og steinninn, sem losaður er úr fjallinu án þess að hendur komi nærri“.

Ég ber vitni: Drottinn er að uppfylla loforð sitt. Verið er að setja endurreista kirkju frelsarans á stofn um allan heim og er hún það verkfæri sem Guð notar til að „safna öllu sem til er á himni og jörðu undir eitt höfuð í Kristi“.

Síðari daga verk Drottins er málstaður sem „fólk Guðs hefur á öllum öldum haft áhuga á, … á því hafa spámenn, prestar og konungar haft sérstakt dálæti. Þeir hafa horft fram til okkar tíma, og af himneskum eldmóði, tilhlökkun og fögnuði hafa þeir sungið, ritað og spáð um okkar tíma“.

Á þessari stórkostlegustu og síðustu ráðstöfun fagnaðarerindisins, mun „heil og algjör og fullkomin eining og samanhlekkjun ráðstafana, lykla, valds og dýrðar, eiga sér stað og verður opinberuð frá dögum Adams allt til þessa tíma. Og ekki aðeins það, heldur mun það, sem aldrei hefur verið opinberað frá grundvöllun veraldar … verða opinberað … í þessum ráðstöfunum í fyllingu tímanna.“

Spámaðurinn Joseph útskýrði enn fremur: „Allar helgiathafnir og skyldur sem ávallt hefur verið krafist í prestdæminu, að leiðsögn og fyrirmælum almættisins, í sérhverri ráðstöfun, mun allt verða í síðustu ráðstöfuninni … og gera að veruleika þá endurreisn sem hinir heilögu spámenn hafa rætt um.“

Fyrirheit og vitnisburður

Ég hef reynt að draga saman grunnþætti mikilvægustu og dýrðlegustu „gleðitíðindanna“ sem nokkur manneskja, hvar sem er í heiminum, getur nokkru sinni meðtekið – boðskapinn um að Drottinn Jesús Kristur hafi endurreist fagnaðarerindi sitt og kirkju á síðari dögum.

Ég býð öllum að læra um og sannreyna þennan boðskap. Ég lofa að einstaklingar „sem af kostgæfni ígrunda boðskap endurreisnarinnar og ganga fram í trú, munu blessaðir [með krafti heilags anda] til að hljóta eigin vitnisburð um guðleika hennar og tilgang til að búa heiminn undir síðari komu Drottins okkar, Jesú Krists.“ Þegar þið biðjið einlæglega í þeirri von um að hljóta svar frá Guði og bregðast við því, eins og hinn ungi Joseph Smith gerði, mun geta ykkar til að þekkja og bregðast við þessum guðlega vitnisburði aukast.

Ég ber vitni um að Guð, hinn eilífi faðir er faðir okkar. Ég ber vitni og vitna um að Jesús Kristur er ástkær sonur föðurins og hans eingetni í holdinu. Hann er frelsari okkar og lausnari.

Ég vitna einnig af gleði um að faðirinn og sonurinn birtust drengnum Joseph Smith og innleiddu þannig endurreisn fagnaðarerindis Jesú Krists á síðari dögum. Mormónsbók er annað vitni um Jesú Krist og inniheldur orð Guðs. Prestdæmisvald sem starfar fyrir hönd frelsarans og í hans nafni er aftur að finna á jörðinni. Og Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu er hin endurreista kirkja Krists í Nýja testamentinu. Ég gef mitt örugga vitni um að allt þetta er sannleikur í hinu helga nafni Drottins Jesú Krists, amen.