„Timothy L. Farnes forseti,“ Líahóna, maí 2025.
Timothy L. Farnes forseti
Aðalforseti Piltafélagsins
Þegar Timothy L. Farnes forseti var 14 ára tók vinur hans, sem var annarrar trúar, að véfengja trú hans. Í fyrsta sinn sinni stuttu ævi, vitnaði Timothy um að Joseph Smith væri spámaður Guðs og að Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu væri sönn.
„Andinn fyllti herbergið. Það var áþreifanlegt,“ rifjaði hann upp. „Við fundum það öll og við breyttumst öll.“
Farnes forseti sagði að hann vildi að ungmenni kirkjunnar vissu að þau tilheyrðu fjölskyldu Guðs.
„Þau eru börn Guðs og börn sáttmálans,“ sagði hann, „og þau geta orðið lærisveinar Jesú Krists ef þau vilja meðtaka hann – taka á móti gjöfinni sem þau eiga vegna friðþægingar hans.“
Timothy Lowell Farnes fæddist 29. júní 1969 í Baltimore, Maryland, sonur Gary William Farnes og Mary Ellen Farnes. Þegar hann var barn, flutti fjölskylda hans til Utah, þar sem hann ólst upp. Hann er elstur sjö barna.
Hann þjónaði sem trúboði í Porto Alegre-trúboðinu í Brasilíu. Hann lærði hagfræði við Brigham Young-háskólann og stofnaði síðar mörg fyrirtæki, þar á meðal MedSource Direct, Aspire og mannúðarsamtökin World Joy.
Hann giftist Linsey Anne Farnes í Salt Lake-musterinu 27. ágúst 1992. Þau eiga saman fimm börn og sex barnabörn og eiga heima í Bountiful, Utah.
Farnes-hjónin þjónuðu sem trúboðsleiðtogar í Norður-São Paulo-trúboðinu í Brasilíu frá 2014 til 2017. Fyrri kallanir Farnes forseta eru meðal annars svæðishafi Sjötíu á Utah-svæðinu, stikuforseti, háráðsmaður, biskup og biskup ungra einhleypra.