2025
Öldungur Edward B. Rowe
Maí 2025


„Öldungur Edward B. Rowe,“ Líahóna, maí 2025.

Öldungur Edward B. Rowe

Aðalvaldhafi Sjötíu

Á ferli sínum við ástundun alþjóðalaga, bjuggu öldungur Edward B. Rowe og fjölskylda hans stundum á stöðum þar sem líklegt var að þau væru einu meðlimir kirkjunnar. Þau fengu leyfi til að hafa kirkjulegar fjölskyldusamkomur á heimili sínu, mörgum árum fyrir tilkomu námsefnisins Kom, fylg mér . Tilbeiðsla þeirra var heimilismiðuð – með sunnudagaklæðnaði og ræðuverkefnum.

Öldungur Rowe minntist þess að hafa áttað sig á því að „eina kennslan sem börnin [þeirra] hlytu um fagnaðarerindi Jesú Krists, væri frá [þeim]“.

Þessar upplifanir sameinuðu fjölskylduna og gerðu fagnaðarerindi Jesú Krists einfalt, er þau hjálpuðu börnum sínum að þróa samband við frelsarann. „Þetta voru helgir, sérstakir tímar,“ sagði hann.

Edward Butler Rowe fæddist 23. apríl 1967 í Provo, Utah, þeim Fred A. Rowe og Sherrel Rowe. Hann giftist Barböru Bowen í Salt Lake-musterinu, 3. janúar 1989. Þau eiga saman fimm börn og áttu heima í Pleasant Grove, Utah, þegar hann var kallaður.

Öldungur Rowe lauk B.A. gráðu í heimspeki frá Brigham Young-háskóla, meistaragráðu í opinberri stefnumótun og doktorsgráðu í lögfræði frá Chicago-háskóla. Hann hefur ástundað alþjóðalög sem meðeigandi á ýmsum lögmannsstofum í Washington, D.C. og víða um heim. Frá árinu 2019 hefur hann starfað sem forstjóri Stirling Foundation.

Þegar hann var kallaður, þjónaði hann sem svæðishafi Sjötíu. Hann er fyrrverandi trúboðsforseti Norður-Adríahafs (2011–2014), biskup, stikuforseti Piltafélags, öldungasveitarforseti, deildartrúboðsleiðtogi og fastatrúboði í Fort Lauderdale-trúboðinu í Flórída.