2025
Öldungur Wan-Liang Wu
Maí 2025


„Öldungur Wan-Liang Wu,“ Líahóna, maí 2025.

Öldungur Wan-Liang Wu

Aðalvaldhafi Sjötíu

Þegar öldungur Wan-Liang Wu var 10 ára flutti fjölskylda hans frá Taívan til Bólivíu. Það var þar sem systur hans hitti trúboðana gegnum vinkonur. Hann hóf að hitta trúboðana og var skírður 11 ára.

Það reyndist erfitt að aðlagast nýju heimili, en hann er þakklátur fyrir flutning fjölskyldu sinnar. „Ég missti af einhverju til að geta gert betur að hætti Drottins,“ sagði hann.

Wan-Liang Wu fæddist í Taípei, Taívan, 22. desember 1970, yngsta barn Chang Yung Wu og Bao Guey Lin. Hann á þrjár systur og einn bróður.

Eftir að fjölskylda hans flutti til Santa Cruz, Bólivíu, flutti hún til Buenos Aires, Argentínu, þegar hann var 14 ára. Eftir þjónustu í Hong Kong-trúboðinu í Kína, giftist hann Marcelu Beatriz Castellani, 17. mars 1995, í Buenos Aires-musterinu í Argentínu. Þau eiga saman þrjú börn.

Hann og Marcela áttu og ráku matvöruverslun fjölskyldu hennar í Buenos Aires. Hann hefur starfað fyrir kirkjuna frá 2007, fyrst í deild samkomuhúsa og síðan sem framkvæmdastjóri rekstrar og viðhalds á suðursvæði Suður-Ameríku.

Öldungur Wu ávann sér B.A. gráðu í fyrirtækjastjórnun frá Universidad Argentina de la Empresa árið 2014 og meistaragráðu í fyrirtækjastjórnun frá Universidad del CEMA í Buenos Aires árið 2020.

Þegar öldungur Wu var kallaður, þjónaði hann sem trúboðsforseti Antofagasta-trúboðsins í Síle. Hann hefur líka þjónað sem stikuforseti, ráðgjafi í stikuforsætisráði, biskup, forseti öldungasveitar, ritari deildar, ráðgjafi í forsætisráði öldungasveitar og musterisþjónn við helgiathafnir.