„Öldungur Eduardo F. Ortega, Líahóna, maí 2025.
Öldungur Eduardo F. Ortega
Aðalvaldhafi Sjötíu
Öldungur Eduardo F. Ortega hefur lært dýrmæta lexíu í gegnum árin í þjónustu innan kirkjunnar. Í hverri köllun, hvort heldur sem biskup eða þjónandi bróðir, auðveldar það starfið í kölluninni að vita að við erum fulltrúar Drottins.
„Ef við hugsum það hvernig hann myndi gera það, þá verður það auðveldara,“ sagði hann og vísaði í Jakob 5:71–72 í Mormónsbók. „Mér hefur oft fundist Drottinn þjóna mér við hlið í mörgum köllunum, því þetta er víngarðurinn hans, ekki okkar.“
Eduardo Franciso Ortega fæddist í Godoy Cruz, Mendoza, Argentínu, 10. júlí 1977, sonur Fernando Daniel Ortega og Irmu Elviru Endstorfer. Hann giftist Gabrielu Alejandra Cappi Franzia í Montevídeó-musterinu í Úrúgvæ, 13. september 2002. Þau eiga saman fimm börn og voru búsett í Mexíkóborg í Mexíkó þegar hann var kallaður.
Öldungur Ortega útskrifaðist árið 2008 með B.A. gráðu í arkitektúr frá John F. Kennedy-háskóla, Argentínu, og meistaragráðu frá Belgrano-háskóla árið 2016. Árið 2017 hlaut hann diplómagráðu í leiðtogastarfi frá Harvard Business School. Hann starfaði sem byggingarverkefnastjóri, fyrst fyrir SBA Company og síðan fyrir argentínska útibúið Village Roadshow Entertainment Group. Hann varð fasteignastjóri American Express Company árið 2014, stjórnarmaður í Arch Royale Projects Ltd. árið 2023 og stjórnarmaður CorNet Global árið 2024.
Þegar öldungur Ortega var kallaður, þjónaði hann sem svæðishafi Sjötíu. Hann hefur líka þjónað sem ráðgjafi í stikuforsætisráði, biskup, ráðgjafi í biskupsráði, öldungasveitarforseti, hópleiðtogi hápresta og fastatrúboði í Cali-trúboðinu í Kólumbíu.