2025
Öldungur Pedro X. Larreal
Maí 2025


„Öldungur Pedro X. Larreal,“ Líahóna, maí 2025.

Öldungur Pedro X. Larreal

Aðalvaldhafi Sjötíu

Í fjórða mánuði öldungs Pedro X. Larreal sem fastatrúboði, heimsótti Gordon B. Hinckley forseti (1910–2008) Caracas-trúboðið í Venesúela.

Öldungur Larreal sagði: „Hann setti fram dásamlegt boð um helgun: ‚Ef þið einbeitið ykkur 100 prósent, þá lofa ég ykkur því að fjölskylda ykkar í framtíðinni mun hljóta blessanir.‘“

Eftir það skrifaði öldungur Larreal bréf til að segja skilið við kærustuna sína heima. „Ég þurfti að setja allt á altarið því ég þurfti að vera einbeittari.“

Þegar hann horfir til baka, sér hann margar blessanir – góða menntun og farsæla atvinnu – sem hafa sprottið af því að treysta á þetta postullega loforð.

„Þegar við fylgjum leiðsögn spámanns, sjáanda og opinberara, hljótum við blessanir í lífi okkar,“ sagði hann. „Ég lofa þessu.“

Pedro Xavier Larreal Noguera fæddist 6. júlí 1976 í Valencia í Venesúela og er sonur Duilio Antonio Larreal Romero og Haydee Maria Noguera De Larreal. Hann giftist Sariah Alvarez Campos í Caracas-musterinu í Venesúela 25. ágúst 2001. Þau eiga saman þrjú börn.

Öldungur Larreal lauk B.A. gráðu í stjórnun frá Simón Rodriguez-háskólanum, meistaragráðu í vísinda- og menntunarfræðum frá Santa Maria-háskóla og meistaragráðu í viðskiptastjórnun frá Brigham Young-háskóla. Hann starfaði sem umsjónarmaður trúarskóla eldri og yngri deilda og starfaði fyrir Nature‘s Sunshine Products Inc. sem framkvæmdastjóri og svæðisstjóri Mexíkó, Mið-Ameríku og Dóminíska lýðveldisins.

Áður en öldungur Larreal var kallaður sem aðalvaldhafi, þjónaði hann sem forseti McAllen-trúboðsins í Texas. Hann hefur þjónað sem svæðishafi Sjötíu á tveimur svæðum: stikuforseti, ráðgjafi í stikuforsætisráði, háráðsmaður, stikuframkvæmdaritari og biskup.