2025
Öldungur Ozani Farias
Maí 2025


„Öldungur Ozani Farias,“ Líahóna, maí 2025.

Öldungur Ozani Farias

Aðalvaldhafi Sjötíu

Bænir í erfiðum ákvörðunum urðu þýðingarmiklar hjá öldungi Ozani Farias, allt frá unga aldri. Öldungur Farias baðst fyrir eftir að hann hitti trúboðana 15 ára gamall. Hann baðst fyrir varðandi fastatrúboð, menntun, hjónaband og atvinnutækifæri.

Jafnvel þegar leiðin var ekki greið, vissi hann hvað hann varð að gera.

„Guð kemur alltaf fyrst,“ sagði hann. „Þjónið honum fyrst. Við höfum séð miklar blessanir af því að gera þetta.“

Að fylgja hvatningu frá heilögum anda hefur aldrei leitt hann og eiginkonu hans afvega, sagði hann. „Ég hef lært um mátt persónulegrar opinberunar. Guð talar til barna sinna. Guð er hefur áætlun fyrir okkur.“

Ozani Barboza Marques Farias fæddist í Recife í Brasilíu 19. október 1969, sonur José Osanã Farias og Severina Barbosa Marques. Hann og eiginkona hans, Giovanna de Medeiros Prata Farias, voru innsigluð í São Paulo-musterinu í Brasilíu, 18. janúar 1994. Þau eiga saman þrjú börn.

Öldungur Farias lauk B.A. gráðu í bókhaldi frá kaþólska háskólanum í Pernambuco, framhaldsnámi í fjármálum frá háskólanum í Pernambuco og meistaragráðu í fyrirtækjastjórnun frá Getulio Vargas Foundation. Hann hefur starfað fyrir kirkjuna í ýmsum stöðum, meðal annars sem fjármálastjóri, mannauðsstjóri og nú síðast sem framkvæmdastjóri stundlegra málefna fyrir Brasilíusvæðið.

Öldungur Farias þjónar sem stendur sem trúboðsforseti Atlanta-trúboðsins í Georgíu. Hann hefur líka þjónað sem ráðgjafi í stikuforsætisráði, stikuritari, háráðsmaður, biskup, ráðgjafi í biskupsráði og kennari í Barnafélaginu.