2025
Öldungur Ronald M. Barcellos
Maí 2025


„Öldungur Ronald M. Barcellos,“ Líahóna, maí 2025.

Öldungur Ronald M. Barcellos

Aðalvaldhafi Sjötíu

Öldungur Ronald M. Barcellos las Mormónsbók í fyrsta sinn 12 ára gamall. Þegar hann lauk lestrinum, fór hann til trúarskólakennarans í deildinni sinni og spurði hvort hann mætti byrja að sækja trúarskólanám.

„Ég sótti trúarskólann frá 12 til 18 ára aldurs, því ég naut þess að vera þar og hlusta á sögur úr Biblíunni og Mormónsbók,“ sagði hann. „Ég hef alltaf fundið fyrir þessari elsku til fagnaðarerindisins og alltaf fundið að það væri sannleikur.“

Að þjóna í trúboði, styrkti síðar trú hans og hann lofaði að hafa fagnaðarerindið alltaf í fyrirrúmi í lífi sínu.

„Haldið ykkur nálæg [himneskum föður], virðið sáttmála ykkar og áætlanir hans fyrir ykkur munu verða að veruleika,“ sagði hann.

Ronald Maldonado Barcellos fæddist í São Paulo, Brasilíu, nóvember 4, 1975, þeim Sérgio Barcellos Silveira og Marcia Maldonado Barcellos Silveira. Hann giftist Karin Spat Albino Barcellos Silveira í São Paulo-musterinu í Brasilíu, 4. desember 1999. Þau eiga saman þrjú börn.

Öldungur Barcellos lærði viðskiptafræði við São Marcos-háskólann í São Paulo. Starfsferill hans fólst meðal annars í því að vinna fyrir nokkur fyrirtæki í sölu- og markaðshlutverkum og sem sjálfstæður athafnamaður. Hann stofnaði nokkur fyrirtæki, þar á meðal GreenMile, LLC, þar sem hann var forstjóri í nokkur ár.

Öldungur Barcellos lauk nýverið þjónustu sinni sem trúboðsforseti í Lissabon-trúboðinu í Portúgal. Hann hefur líka þjónað sem ráðgjafi í stikuforsætisráði, háráðsmaður, stikuforseti Piltafélags, biskup, ráðgjafi í biskupsráði, leiðtogi háprestaflokks, forseti öldungasveitar og kennari í trúarskóla.