2025
Öldungur Brik V. Eyre
Maí 2025


„Öldungur Brik V. Eyre,“ Líahóna, maí 2025.

Öldungur Brik V. Eyre

Aðalvaldhafi Sjötíu

Öldungur Brik V. Eyre sagði þá reynslu að þjóna í þrjú ár sem trúboðsforseti Phoenix-trúboðsins í Arisóna „ótrúlega“.

Um það að þjóna við hlið Susan eiginkonu sinnar, sagði hann: „Þú og félagi þinn bera jafna byrði … og þess vegna þjónuðum við hlið við hlið.“ Hann bætti svo við, varðandi þjónustu með hundruðum fastatrúboða: „Ég veit ekki hvort ég geti útskýrt þá ótrúlegu blessun að verja hverjum degi með réttmætum fulltrúum Jesú Krists í þrjú ár.“

Brik Vern Eyre fæddist 17. janúar 1964 í Logan, Utah, sonur Vern Bingham Eyre og Emmu Rae Anderson Eyre. Hann á fimm eldri systur og nokkur ættmenni meðal fyrri meðlima kirkjunnar.

Öldungur Eyre þjónaði í Gvatemala-trúboðinu í Gvatemalaborg. Hann giftist Susan Zari Rahimzadeh í Logan-musterinu í Utah, 27. júní 1987. Faðir systur Eyre er af múslimskum uppruna og móðir hennar er af ættum Síðari daga heilagra. Eyre-hjónin, sem bjuggu í Park City í Utah þegar hann var kallaður, eiga fimm fullorðin börn.

Öldungur Eyre ávann sér B.A. gráðu í fjármálum frá Utah State-háskóla og meistaragráðu í fyrirtækjastjórnun frá háskólanum í Tulsa. Hann hefur starfað í lækningavöruiðnaðinum, þar á meðal fyrir Baxter International sem varaforseti og forseti Ameríkusvæðisins og síðast sem stjórnarmaður í HemaSource.

Þegar öldungur Eyre var kallaður, þjónaði hann sem svæðishafi Sjötíu. Hann hefur líka þjónað sem stikuforseti, ráðgjafi í stikuforsætisráði, háráðsmaður, biskup, forseti Piltafélagsins í deild og kennari árla morguns í trúarskólanum.