2025
Öldungur Michael Cziesla
Maí 2025


„Öldungur Michael Cziesla,“ Líahóna, maí 2025.

Öldungur Michael Cziesla

Aðalvaldhafi Sjötíu

Öldungur Michael Cziesla man mjög vel eftir erfiðleikunum árið 2017. Á þriðjudegi í janúar missti hann atvinnu sína hjá alþjóðlegri lögmannsstofu, þegar fyrirtækið lýsti yfir gjaldþroti. Daginn eftir varð flóð á heimili hans þegar vatnsleiðsla brast. Innbrotsþjófar rændu hús hans á þriðja degi og reyndu að taka verðmæti fjölskyldunnar. Á nokkrum dögum fór líf hans á annan endann.

„Ég brosti þennan sunnudag, eins og venjulega, þegar ég sat á pallinum sem stikuforseti,“ sagði hann. „Það vissi enginn hvað var í gangi. En innra með mér var mikil sorg. Ég var á mjög dimmum stað.“

Eftir samkomuna, spurði rólegur og blíður maður í deildinni hvað væri að. „Hann hlustaði bara og faðmaði mig síðan,“ sagði öldungur Cziesla. „Ég fann að Drottinn faðmaði mig, að hann þekkti aðstæður mínar, að allt færi vel.“

Michael Cziesla fæddist Armin Ludwig og Irmtraut Hanna í Neumünster, Þýskalandi, 26. júlí 1972. Hann ólst upp í Slésvík-Holtsetalandi og þjónaði síðar í Ogden-trúboðinu í Utah. Eiginkona hans, Margret Anne Rauh, þjónaði í trúboðinu á Musteristorginu. Þau giftust í Frankfurt-musterinu, Þýskalandi, 4. apríl 1997. Þegar hann var kallaður, bjuggu þau með börnunum sínum fimm í Griesheim í Þýskalandi, þar sem þau hafa notið þess að ganga um skógana og fara í frí á eyju í Danmörku.

Öldungur Cziesla lauk lögfræðiprófi frá háskólanum í Mainz árið 2000. Hann lauk lögfræðiferli sínum sem sameigandi hjá McDermott Will & Emery.

Áður en öldungur Cziesla var kallaður sem aðalvaldhafi Sjötíu, þjónaði hann sem svæðishafi Sjötíu á Mið-Evrópusvæðinu, tímabundinn trúboðsforseti í Frankfurt-trúboðinu í Þýskalandi, stikuforseti, háráðsmaður og ráðgjafi í biskupsráði.