2025
Öldungur Brian J. Holmes
Maí 2025


„Öldungur Brian J. Holmes,“ Líahóna, maí 2025.

Öldungur Brian J. Holmes

Aðalvaldhafi Sjötíu

Öldungur Brian J. Holmes sagði sig og eiginkonu sína, Maggie, vera vitni að loforði Drottins í Kenningu og sáttmálum 84:88 um að hann „muni fara fyrir yður“.

„Það er það sem hann hefur gert fyrir okkur allt okkar líf,“ sagði öldungur Holmes. „Þegar við felum Drottni líf okkar, getur hann gert meira úr því en við getum á eigin spýtur.“

Í nýju hlutverki sínu sem aðalvaldhafi Sjötíu, vonast öldungur Holmes til þess að honum gefist tækifæri til að bera vitni um mikilvægt hlutverk Jesú Krists í áætlun himnesks föður.

„Hann er frelsari og lausnari allra barna himnesks föður,“ sagði hann.

Brian J. Holmes fæddist 5. desember 1977 í Salt Lake City, Utah, og er eitt af 12 börnum þeirra Michael H. Holmes og Marian R. Holmes. Þegar hann var ungur maður þjónaði hann í trúboði í München, Þýskalandi. Hann giftist Maggie Wilson í Salt Lake-musterinu 29. mars 1999. Öldungur og systir Holmes eiga saman sex börn og áttu heima í Queen Creek, Arisóna, þegar hann var kallaður.

Öldungur Holmes ávann sér B.A. gráðu í stjórnmálavísindum og doktorsgráðu í lögfræði, hvort tveggja frá Arizona State-háskóla. Hann hefur starfað sem varaforseti Holmes Homes í Arizona, stofnað Holmes Law, PLC og nýlega starfaði hann sem almennur ráðgjafi Charter One, LLC.

Áður en öldungur Holmes var kallaður sem aðalvaldhafi þjónaði hann sem svæðishafi Sjötíu á suðvestursvæði Norður-Ameríku. Hann hefur líka þjónað sem stikuforseti, háráðsmaður og biskup.