„Bróðir David J. Wunderli,“ Líahóna, maí 2025.
Bróðir David J. Wunderli
annar ráðgjafi í aðalforsætisráði Piltafélagsins
Bróðir David J. Wunderli hefur alltaf vitað að Jesús Kristur lifir.
„Ég naut þeirrar blessunar að finna fyrir nærveru hans, svo lengi og ég man eftir mér,“ sagði hann. „Ég hef alltaf verið trúaður í hjarta.“
Þar með er ekki sagt að hann hafi ekki tekist á við erfiðleika, „en hugleiðingar mínar hafa alltaf hneigst að því að vita að svör komi frá honum“.
Bróðir Wunderli vill að ungmenni kirkjunnar finni að þau tilheyri og viti að þau eigi liðsfélaga í öllum löndum og að Jesús Kristur þekki þau með nafni.
David John Wunderli fæddist í Salt Lake City 22. júní 1961, sonur Fredric Theodore Wunderli og Bernardine Lyman Wunderli. Hann kynntist Diane Robins þegar hún flutti frá Kanada í deildina hans. Þau voru innsigluð í Salt Lake-musterinu árið 1984 og ólu upp fjögur börn sín í Kaliforníu og síðar í Alpine, Utah.
Bróðir Wunderli þjónaði í Ríó de Janeiro-trúboðinu í Brasilíu og ávann sér B.A. gráðu í bókhaldi frá Utah-háskóla, með portúgölsku sem aukafag. Hann starfaði sem framkvæmdastjóri hjá Easton Sports og sem forseti OGIO International. Hann hefur einnig setið í nokkrum stjórnum fyrirtækja og góðgerðarsamtaka.
Þegar hann var kallaður, þjónaði hann í aðalráðgjafanefnd Piltafélagsins. Systir Wunderli þjónar í aðalráðgjafanefnd Barnafélagsins. Frá 2020 til 2023 þjónuðu þau sem leiðtogar Praia-trúboðsins á Grænhöfðaeyjum. Bróðir Wunderli hefur líka þjónað sem stikuforseti og biskup fyrir ungt einhleypt fólk, ráðgjafi í forsætisráði trúboðsskóla og forseti Piltafélags deildar.