„Bróðir Sean R. Dixon,“ Líahóna, maí 2025.
Bróðir Sean R. Dixon
annar ráðgjafi í aðalforsætisráði Piltafélagsins
Bróðir Sean R. Dixon er meðvitaður um hinar fjölmörgu raddir sem keppast um athygli ungs fólks og vonar að ungmennin fylgist með nútíma spámönnum og postulum og treysti og fylgi leiðsögn þeirra.
„Þeir munu leiða þau til Jesú Krists,“ sagði hann. „Það er ekki spámaðurinn [Russell M. Nelson forseti] sem er lokamarkmiðið; það er frelsarinn. En spámaðurinn einblínir algjörlega á frelsarann og ef þau fylgja honum, verða þau búin undir það sem þau munu takast á við í lífi sínu.“
Sean Romney Dixon fæddist 5. maí 1970 í Provo, Utah, sonur Donald Romney Dixon og Diane Scott Dixon. Hann þjónaði í fastatrúboði í Toronto-trúboðinu í Kanada. Hann giftist síðar M‘Shelle Lundquist, 14. maí 1992 í Salt Lake-musterinu. Þau eiga saman fimm börn.
Bróðir Dixon hlaut B.A. gráðu í fjölskylduvísindum frá Brigham Young-háskóla og meistaragráðu í menntunarfræðum frá Phoenix-háskóla. Hann hefur starfað við ýmis verkefni í trúarskóla yngri og eldri deilda í 30 ár, nú sem stjórnandi trúarskóla Utah South-svæðisins og hefur haft umsjón með trúarskólanum allt frá Orem til St. George. Áður var hann kennari í trúarskóla yngri deildar í Utah-sýslu og stjórnandi Utah Valley Institute of Religion.
Þegar bróðir Dixon var kallaður, þjónaði hann sem forseti Spanish Fork Utah East-stikunnar. Hann er fyrrverandi trúboðsforseti Redlands-trúboðsins í Kaliforníu, ráðgjafi í stikuforsætisráði, biskup, ráðgjafi í biskupsráði og forseti Piltafélags deildar.