2025
Steven C. Barlow
Maí 2025


„Öldungur Steven C. Barlow,“ Líahóna, maí 2025.

Öldungur Steven C. Barlow

Aðalvaldhafi Sjötíu

Ein áhrifamesta reynslan sem öldungur Steven C. Barlow hefur hlotið með heilögum anda var „óyggjandi hughrif frá himni um að [hann] þyrfti að giftast Christinu Evans“. Þau giftust í Salt Lake-musterinu árið 1991 og eiga saman fimm börn.

Öldungur og systir Barlow þjónuðu sem trúboðsleiðtogar í Ekvador frá 2017 til 2020, þar á meðal í upphafi Kóvid-19 faraldursins. Á þeim tíma sneru margir trúboðar heim og öðrum trúboðum var falið að þjóna í trúboði Barlow-hjónanna. Öldungur og systir Barlow urðu vitni að hönd Drottins við stjórn þessa trúboðsstarfs.

„Við settum traust okkar á Drottin,“ rifjaði hann upp. „Það komu tímar þar sem við vissum ekki hvað myndi gerast daginn eftir. Við vorum sveigjanleg og tilbúin. Við vorum bænheit og þetta gekk allt upp.“

Þessi reynsla styrkti lexíur sem honum hafði áður verið kenndar, að Drottinn er við stjórnvölinn og að við getum ætíð sett traust okkar á hann.

Öldungur Barlow hlaut B.A. gráðu í heilbrigðisfræðum frá Utah-háskóla árið 1993. Hann hefur starfað sem framkvæmdastjóri í gagnagreiningu og gæðaumbótum í heilbrigðisþjónustu. Þegar öldungur Barlow var kallaður, þjónaði hann sem svæðishafi Sjötíu á Utah-svæðinu.

Steven Chad Barlow fæddist í Bountiful, Utah, 1. janúar 1969, sonur Jon Kay Barlow og Becky Christensen Barlow. Hann var „alinn upp af afar trúföstum, dyggum foreldrum“, sem kenndu honum fagnaðarerindið frá unga aldri.