2025
Öldungur B. Corey Cuvelier
Maí 2025


„Öldungur B. Corey Cuvelier,“ Líahóna, maí 2025.

Öldungur B. Corey Cuvelier

Aðalvaldhafi Sjötíu

Þegar öldungur B. Corey Cuvelier tilkynnti að hann ætlaði að hætta í starfi sínu til að verða trúboðsforseti fyrir Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu, spurðu starfsfélagar hans: „Ertu ekki með öllum mjalla?“

Öldungur Cuvelier sagði að starfsfélagar hans hefðu átt erfitt með að skilja hvers vegna hann hygðist draga sig í hlé frá blómstrandi starfsframa í þrjú ár. En spurningar þeirra voru tækifæri, sagði hann, „til að segja frá því hvers vegna við gerum það sem við gerum og hvers vegna við trúum því sem við trúum og á hvern við trúum. Það er Jesús Kristur.“

Brian Corey Cuvelier fæddist 12. janúar 1969 í Los Angeles í Kaliforníu, þar sem hann var ættleiddur og uppalinn. Faðir hans, Heinz Joachim Cuvelier, var lögreglumaður. Móðir hans, Joann Leslie Jarnecke Cuvelier, sá um heimilið. Hann er elstur fjögurra barna.

Sem ungur trúboði, þjónaði öldungur Cuvelier í Suður-trúboðinu í São Paulo í Brasilíu. Hann útskrifaðist frá Brigham Young-háskóla árið 1994 með gráðu í almannatengslum. Hann gekk til liðs við Shell Oil Company árið 1996, þar sem hann starfaði víða í hinum ýmsu fyrirtækjaeiningum í Norður-Ameríku.

Öldungur Cuvelier giftist Wendi Sue Manwaring 18. júlí 1992 í Los Angeles-musterinu í Kaliforníu. Þau eiga saman fjóra drengi. Cuvelier-hjónin þjónuðu sem trúboðsleiðtogar í Suður-Curitiba-trúboðinu í Brasilíu, frá 2016 til 2019 og voru búsett í Katy, Texas, þegar hann var kallaður.

Áður þjónaði öldungur Cuvelier sem svæðishafi Sjötíu á suðvestursvæði Norður-Ameríku, stikuforseti, ráðgjafi í stikuforsætisráði, háráðsmaður, biskup, ráðgjafi í biskupsráði og forseti Piltafélags deildar.