2025
Öldungur Aaron T. Hall
Maí 2025


„Öldungur Aaron T. Hall,“ Líahóna, maí 2025.

Öldungur Aaron T. Hall

Aðalvaldhafi Sjötíu

Öldungur Aaron T. Hall minnist þess þegar hann og eiginkona hans, Kimberly, voru sett í embætti sem trúboðsleiðtogar yfir Suður-Houston-trúboðinu í Texas. Þau sögðu öldungi David A. Bednar í Tólfpostulasveitinni að tilfinningar þeirra hefðu verið allt frá því að vera yfirþyrmandi yfir í tilhlökkun. Öldungur Bednar tjáði nauðsyn þess að vera þakklátur.

„Það sem hann kenndi okkur þennan dag hefur aldrei horfið úr huga mínum í tengslum við allar kallanir sem við höfum hlotið, sem er: ‚Við erum einfaldlega þakklát,‘ sagði hann. Þið veltið fyrir ykkur af hverju í veröldinni Drottinn myndi nokkurn tíma velja ykkur, en við berum vitni um að hann gerir það. Og vegna þess að við erum tilbúin og tiltæk, mun hann gera okkur hæf.“

Aaron Tracy Hall fæddist 4. mars 1971 í Provo, Utah, sonur Alan Eugene Hall og Paulu Jeanne Nowak Hall. Hann þjónaði í fastatrúboði í Osorno-trúboðinu í Síle og giftist síðan Kimberly Wade Hall, 28. desember 1993, í Logan-musterinu í Utah. Þau eiga saman fjögur börn.

Þegar öldungur Hall var kallaður, þjónaði hann sem svæðishafi Sjötíu á Utah-svæðinu. Hann hefur líka þjónað sem ráðgjafi í stikuforsætisráði, háráðsmaður, stikuframkvæmdaritari, biskup, forseti öldungasveitar og forseti Piltafélags deildar.

Öldungur Hall ávann sér B.A. gráðu í faglegri sölumennsku frá Weber State-háskóla og meistaragráðu í viðskiptastjórnun frá Utah-háskóla. Hann starfaði áður sem framkvæmdastjóri tækni- og einkahlutabréfafyrirtækja en starfaði síðast sem stjórnandi í trúboðsdeild kirkjunnar.