„Öldungur Kevin G. Brown,“ Líahóna, maí 2025.
Öldungur Kevin G. Brown
Aðalvaldhafi Sjötíu
Þegar Kevin Brown var 12 ára skoraði systurtrúboði á hann að lesa Mormónsbók. Hann baðst því fyrir, las og baðst aftur fyrir á hverjum morgni. Í hverri bæn, spurði hann himneskan föður hvort Mormónsbók væri sönn.
Hann minnist þess að dag einn, þegar hann baðst fyrir, „þurfti hann ekki einu sinni að spyrja spurningarinnar. Svar Drottins kom á mjög djúpan hátt“. Hann fann Drottin segja við sig: „Ég þekki þig og ég elska þig. Þú ert sonur minn.“
Heilagur andi staðfesti samstundis fyrir honum: „Þetta er sannleikur Guðs. Mormónsbók er sönn. Joseph Smith var spámaður.“ Þessi upplifun breytti lífi hans.
Öldungur Brown þakkar áhrifum þessa systurtrúboða og annarra fyrir líf sitt eins og það er núna. Frá unga aldri naut hann áhrifa meðlima kirkjunnar sem hjálpuðu honum – allt frá umdæmisforseta hans til Barnafélagskennara, frá ungum trúboðum til eldri trúboða og einkum eiginkonu sinnar, Nadine, sem hefur haft mest áhrif á hann af öllum, utan Drottins.
Kevin G. Brown fæddist 18. maí 1976 í Manchester á Jamaíka og eru foreldrar hans Desmond Holness og Patsy Williams Brissett. Hann giftist Nadine Lezanne Carter árið 1999. Þau eiga fimm börn.
Öldungur Brown hlaut B.A. gráðu frá tækniháskólanum á Jamaíka árið 2008. Hann lauk meistaragráðu í stjórnmálafræði og opinberri stefnumótun frá háskóla Vestur-Indíu árið 2012. Frá 2001 hefur hann starfað fyrir eldri og yngri deildir trúarskóla kirkjunnar.
Þegar öldungur Brown var kallaður þjónaði hann sem svæðishafi Sjötíu á Utah-svæðinu.