„Öldungur Clement M. Matswagothata,“ Líahóna, maí 2025.
Öldungur Clement M. Matswagothata
Aðalvaldhafi Sjötíu
Þegar öldungur Clement M. Matswagothata var barn í Botsvana, las hann Biblíuna upphátt fyrir ömmu sína. Hann rakst á 1. Samúelsbók 3, þar sem Guð talar við Samúel, sem síðar var kallaður sem spámaður.
„Spurning mín var einlæglega: ‚Gerir Guð enn það sama?‘“
Sú spurning hóf ferð hans í leit að Guði sem talaði enn. Hann hitti trúboða Síðari daga heilagra þegar hann var 16 ára, las Mormónsbók á nokkrum dögum og hringdi í þá klukkan 3 að morgni til að segja þeim að hann vildi skírast.
Síðar varð hann fyrsti stikuforsetinn sem kallaður var í Botsvana, síðan fyrsti svæðishafi Sjötíu og nú fyrsti aðalvaldhafi Sjötíu.
„Ég hef djúpstæðan vitnisburð um að Guð lifir og talar til okkar á þessum síðustu dögum og að við lifum á þeim degi og tíma þegar spámenn eru á jörðinni,“ sagði hann.
Clement Mosiame Matswagothata fæddist í Middlepits í Botsvana 8. janúar 1980 og foreldrar hans eru Bojotlhe J. og Rachel M. Matswagothata. Eftir að hafa þjónað í Höfðaborgartrúboðinu í Suður-Afríku, hitti hann eiginkonu sína, Novelty Busisiwe Buthelezi, á svæðismóti fyrir unga einhleypa. Þau giftust í Jóhannesarborgarmusterinu í Suður-Afríku 28. febrúar 2004. Þau eiga þrjú börn.
Hann hlaut B.A. gráðu í heimspeki. Hann hefur starfað í bílaiðnaðinum með ýmis bílamerki og gegnt nokkrum leiðtogastöðum, þar á meðal sem sölustjóri, framkvæmdastjóri og landstjóri Barloworld Motor.
Þegar öldungur Matswagothata var kallaður, þjónaði hann sem helgiathafnaþjónn í Jóhannesarborgarmusterinu í Suður-Afríku og sem sérfræðingur í sjálfsbjargarstarfi svæðisins.