Til styrktar ungmennum
Áætlun himnesks föður fyrir fjölskyldur
Til styrktar ungmennum, mars 2026


Áætlun himnesks föður fyrir fjölskyldur

Kenningar, helgiathafnir og sáttmálar musterisins blessa allar fjölskyldur jarðar.

Jakob dreymir stiga upp til himna

Myndskreyting: Shawna Tenney

Nýlega vorum ég og systir Uchtdorf viðstödd við skírn eins barnabarnabarna okkar. Þegar við horfðum á margar kynslóðir fagna þessum atburði, fundum við innilegt þakklæti til himnesks föður fyrir sáluhjálparáætlun hans fyrir börn hans. Við skynjuðum hve mikilvæg fjölskyldan og helgir sáttmálar hafa verið honum allt frá upphafi.

Þetta mikilvægi má sjá í frásögn Gamla testamentisins um hinn trúfasta Jakob, sem fór í langa og stranga ferð til að finna eiginkonu, giftast í sáttmálanum og stofna fjölskyldu. Kvöld eitt stoppaði Jakob og hvíldi sig yfir nóttina, en fann aðeins steina fyrir kodda. Hann hlýtur að hafa verið mjög þreyttur því honum tókst samt að sofna – og hann dreymdi draum.

Jakob sá „stiga standa á jörðu og ná til himins og englar Guðs fóru upp og ofan eftir stiganum.

Þá stóð Drottinn hjá honum og mælti: ‚Ég er Drottinn, Guð Abrahams, föður þíns, og Guð Ísaks‘“ (1. Mósebók 28:12–13).

Drottinn gaf síðan Jakobi nokkur mikilvæg sáttmálsloforð – loforð sem hann hafði einnig gefið föður og afa Jakobs, Ísak og Abraham, þar á meðal:

  • Fyrirheit um að Jakob muni „verða að fjölda þjóða“ (1. Mósebók 28:3, 14).

  • Fyrirheitið land fyrir afkomendur Jakobs (sjá 1. Mósebók 28:4, 13).

  • Fyrirheit um að með Jakobi og niðjum hans muni „allar ættkvíslir jarðarinnar … blessun hljóta“ (1. Mósebók 28:14; skáletrað hér).

Svo helg var reynsla Jakobs að hann lýsti yfir: „Sannarlega er Drottinn á þessum stað. … Hér er vissulega Guðs hús og hlið himins“ (1. Mósebók 28:16–17). Jakob gaf því svæðinu nafnið Betel, sem merkir „Guðs hús“ (sjá 1. Mósebók 28:19, neðanmálstilvísun a).

Musterin eru mjög áþekk stiganum sem Jakob sá. Kenningar, helgiathafnir og sáttmálar húss Drottins tengja saman himin og jörð. Líkja mætti sáttmálunum við þrep í stiga sem færir okkur nær Drottni. Með þjónustu okkar í heilögum musterum blessum við „allar ættkvíslir jarðarinnar“ – í fortíð, nútíð og framtíð.

Gleðileg sýn á himnaríki

Öldungur Bruce C. Hafen, einn af hinum Sjötíu sem látið hefur af störfum, fékk eitt sinn símtal frá ritstjóra landsþekkts fréttatímarits, til að ræða bók sem rannsakaði sögu trúar á himnaríki í mismunandi trúarbrögðum.

„Höfundarnir komust að því að almenningur upplifir víðtæka löngun eftir himnum – fjölskyldum á himnum,“ sagði öldungur Hafen. En „flestar kristnar kirkjur bjóða upp á fá svör við þessari innri löngun“ – með einni undantekningu: Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu.

Í hinni endurreistu kirkju frelsarans höfum við helg musteri. Við höfum eilíf hjónabönd, með innsiglunarvaldi sem blessar út fyrir líffræðilegan dauða. Við höfum loforð um eilífa framtíð með ástvinum í návist föðurins og sonarins. Með hliðsjón af öllu þessu, komust höfundar að þeirri niðurstöðu að hugmyndin um himnaríki Síðari daga heilagra væri sú fullkomnasta – og ég bæti við, sú hamingjusamasta.

Eins og Russell M. Nelson forseti hefur kennt: „[Drottinn] skapaði jörðina [svo] að við gætum öðlast efnislíkama og myndað fjölskyldur. Hann stofnaði kirkju sína til að upphefja fjölskyldur. Hann sér okkur fyrir musterum, svo fjölskyldur geti verið saman að eilífu.“

fjölskylda við musterið

Vernda fjölskylduna

Það ekki að koma okkur á óvart að nokkuð svo mikilvægt fyrir áætlun Guðs mætir andstöðu. M. Russell Ballard forseti (1928–2023) sagði: „Satan veit að öruggasta og áhrifaríkasta leiðin til að sundra verki Drottins er að gera lítið úr áhrifum fjölskyldunnar og helgi heimilisins.“

Vitandi það sem við vitum, ættum við að vera meðal heimsins kostgæfnustu verndara fjölskyldunnar.

Hvernig gerum við það?

Við getum gert „hið smáa og einfalda“ (Alma 37:6) sem styrkir fjölskylduböndin. Það felur einnig í sér að fylgja reglunum sem útskýrðar eru í fjölskylduyfirlýsingunni: „reglum trúar, bænar, iðrunar, fyrirgefningar, virðingar, kærleika, umhyggju, vinnu og heilbrigðrar dægrastyttingar.“ Óháð núverandi fjölskylduaðstæðum ykkar, getið þið sýnt með verkum ykkar að fjölskyldusambönd eru ykkur eilíflega mikilvæg.

Með því að lifa, verja og miðla hinum eilífa sannleika um fjölskyldur, getum við hjálpað öðrum að skilja að „fjölskyldan er kjarninn í áætlun skaparans um eilíf örlög barna hans“ og að „sáttmálar í heilögum musterum gera mönnum mögulegt að komast aftur í návist Guðs og fjölskyldum að sameinast að eilífu“.

Jesús Kristur

Hinn útvaldi, eftir Dan Wilson

„Ég er með þér“

Þegar ég og systir Uchtdorf horfum á fjölskyldumeðlimi okkar gera helga sáttmála við ástkæran, eilífan himneskan föður, fyllast hjörtu okkar gleði og þakklæti. Við gleðjumst ekki einungis yfir börnum okkar og börnum þeirra, heldur einnig yfir foreldrum okkar og foreldrum þeirra. Við íhugum af djúpri elsku hvernig sáttmálar fagnaðarerindisins sameina okkur í gegnum kynslóðir.

Blessanirnar sem Drottinn lofaði Abraham, Ísak og Jakob í draumi hans hafa allt að gera með fjölskyldur. Og þær ná til allra sáttmálsbarna hans – þar á meðal þín og mín. „Og sjá,“ sagði Drottinn, „ég er með þér og gæti þín hvar sem þú ferð … því að ég yfirgef þig ekki“ (1. Mósebók 28:15).

Ég lofa að þegar þið fylgið og miðlið áætlun himnesks föður okkar fyrir fjölskyldur, þá mun hann vera með ykkur, einkum þegar erfiðleikar koma yfir ykkur eða ástvini ykkar. Hann mun bera ykkur, lyfta ykkur upp og leiða ykkur til fyllingar gleðinnar með sér, með syni sínum, Jesú Kristi, og fjölskyldum ykkar – að eilífu.